Málfríður - 15.05.1998, Blaðsíða 27
HUGMYNDABANK I
Að þessu sinni er tvö gullkorn að finna í hugmyndabankanum. Ása María Valdimarsdóttir segir
okkur frá því hvernig sameina megi tungumálanám göngufríi með því að skipuleggja ratleiki og
Jette Dige Pedersen segir frá sagnaspilinu „Historie roulette" sem þjálfar ritleikni nemenda á
skapandi hátt.
■■ (
Ása María Valdimarsdóttir:
Ratleikur
á útlensku
„Megum við fá göngufrí?"
Hvaða kennari kannast ekki við
þessa setningu? En það er líka
hægt að gefa göngufrí með
„góðri samvisku". Fara út og
læra í leiðinni. Fara í ratleik á
„útlensku"! Ratleikur hentar hvar
sem er og í hvaða grein sem er.
Raunar þarfnast hann örlítils
undirbúnings, en í þessu tilviki
er undirbúningurinn kærkomin
hvatning til kennarans að drífa
sig út undir bert loft, skoða nán-
asta umhverfi sitt og setja hug-
myndaflugið í gang.
Hér á eftir er dæmi um ratleik
um miðbæ Reykjavíkur sem ég
gerði fyrir nemendur mína í
þýsku við M.R. Markmiðið með
leiknum er m.a. að skilja leið-
beiningar á þýsku, að leysa
þrautir í sameiningu, að sjá um-
hverfi sitt með öðrum augum og
að fá tilbreytingu.
Nemendum er skipt í tvo
hópa. Hvor hópur fær í hendur
eitt umslag. í umslaginu eru:
A) blað með leiðbeiningum um
gang leiksins (á íslensku),
B) númeraðir, samanbrotnir mið-
ar með verkefnum (á erlenda
málinu),
C) lausnablað (línustrikað blað).
Ratleikurinn var settur þannig
upp að hóparnir voru með sömu
verkefnin en fóru hvor í sína
áttina. Þannig skapaðist ákveðin
keppni um það hvor væri á
undan. Það skiptir í raun ekki
máli hve margir eru í hóp, en í
stórum bekkjum má líka hugsa
sér að tveir eða fleiri hópar með
sömu þraut fari á mismunandi
tíma af stað.
Þrautirnar geta verið á hvaða
tungumáli sem er og orðaðar
þannig að viðkomandi hópur
eigi að geta skilið þær. T.d. er
þetta kjörið tækifæri að æfa
leiðarlýsingar á erlendu máli. Ég
gef dæmin hér á eftir upp á ís-
lensku þannig að allir geti skilið
og aðlagað hugmyndirnar að
sínu tungumáli og sínu um-
hverfi.
Hvað stendur á blöðunum í
umslaginu?
A) Leiðbeiningablað á íslensku:
Ratleikur - Orientierung.
í umslaginu eru 7 númeraðar
þrautir til að leysa á leið ykkar
um nágrenni skólans. Aðeins rpá
opna eina í einu. Þegar búið er
að leysa þraut númer 1 má opna
númer 2 og síðan koll af kolli.
Æskilegt er að nemendur skipt-
ist á að opna og lesa þrautirnar.
Skrifið lausn við hverja þraut á
lausnablaðið, - á þýsku ef þið
getið. Núna má opna þraut núm-
er 1 og kanna hvar leikurinn
hefst. Góða skemmtun! Viel
SpaiS!
B) Þrautir á „útlensku". Hver
miði brotinn saman og númer-
aður.
1. þraut: Þið byrjið við inn-
keyrsluna á bílastæðið á bak
við gamla skólann. Beygið til
hægri og gangið upp götuna.
Beygið til hægri við fyrstu
gatnamót og gangið beint
áfram. Finnið hús númer 24.
a) Hvaða litur er á húsinu?
b) Hvað eru margir gluggar á
framhlið hússins?
2. þraut: Gangið upp götuna sem
er beint á móti húsinu. Finnið
hús númer 7 við þá götu.
Hvað liggur á tröppunum fyr-
ir framan aðalinngang húss-
ins?
3. þraut: Haldið áfram upp
götuna og í áttina að veitinga-
húsi og hóteli sem þið eigið
að sjá. Á ákveðnum stað fyrir
framan það má sjá þrjú mis-
munandi götuskilti sem bera
nöfn sem tengjast norrænni
goðafræði.
Hvað stendur á þessum skilt-
um?
4. þraut: Með bakið í hótelið er
haldið áfram til hægri. Við
hver gatnamót skulið þið
27