Málfríður - 15.05.1998, Side 18

Málfríður - 15.05.1998, Side 18
Námskeið og alþjóðasam- vinna blása nýju lífi í skóla- starfið allt. Þeir sem ætla að taka að sér IB-kennslu verða að fara á sér- stök vikunámskeið sem IBO held- ur fyrir nýliða í sinni grein. Einnig er ætlast til að þeir fari af og til á styttri greinatengd nám- skeið eða ráðstefnur. Hluta af sérfjárveitingu vegna IB er ein- mitt ætlað að standa straum af kostnaði við að senda kennara á námskeið. Samvinna milli IB- kennara ýmissa landa er mikil og fer vaxandi með tilkomu Internetsins þar sem IBO er með sérstaka rás. Bóklegt nám til undirbúnings háskólanáms fjall- ar um svipuð grundvallaratriði, hvernig svo sem skólakerfi eða kennsluhættir eru á hverjum stað. Það sama gildir um IB-nám og nám til stúdentsprófs en IB- kennarar kenna einnig í „MH- áföngum“. Því koma samkennar- ar og nemendur til með að njóta góðs af nýjum hugmyndum og nýrri reynslu IB-kennaranna og nemenda. Við leggjum einnig áherslu á að nemendur, sem annars eru ekki í IB-námi, verði hvattir til að stunda nám í einhverjum IB- áfanga, höfði slfkt til þeirra. Það getur komið sér vel þegar í háskólann er komið að hafa fengið þjálfun í að vinna sín fræði á ensku. Auk þess kemur reynsla af ólíkum áherslum og e.t.v. kennsluháttum nemendum til góða og falli þeim eitthvað sérstaklega í geð er viðbúið að þeir hefji umræðu innan skólans um hvernig IB-aðferðir gætu nýst í „MH-áföngum“ - eða öfugt. Við höfum þegar fundið fyrir því að tilkoma IB-náms eflir gagn- rýna umræðu um fagleg mál í skólanum. IB-nám stuðlar að persónu- legum og félagslegum þroska nemenda einkum á sviði sérein- kenna IB-námsins, þekkingar- fræði og SHS, en þar eru gerðar kröfur til nemenda sem ekki er fordæmi fyrir í Námskrá handa framhaldsskólum. í þekkingarfræði er leitast við að örva nemendur til gagnrýnn- ar umhugsunar um alla þá þekk- ingu og reynslu sem þeir öðlast innan skólans og utan, í öllum námsgreinum og lífi sínu almennt. Þekkingarfræðikennar- ar fylgjast með því sem nemend- ur eru að fást við í hinum ýmsu fögum og kanna með nemendum tengslin milli greina og þekking- arsviða. Nemendur eru hvattir til að spyrja sig spurninga um grundvöll þekkingar, að vera vakandi fyrir eðlilegri hlut- drægni sem fylgir persónulegum og hugmyndafræðilegum við- horfum og að temja sér að greina gögn og beita rökhugsun. Sú krafa að nemendur leggi reglulega - og meðvitað - tíma í einhverja skapandi iðju, líkams- þjálfun og störf í þágu annarra er grundvallaratriði til að ná því markmiði að nemendur verði upplýstir og ábyrgir þátttakend- ur í samfélagi síns heimalands og heimsins alls. Reyndar er al- vanalegt að íslenskir nemendur stundi einhverja skapandi iðju og líkamsþjálfun. Þeir eru ekki margir sem einangrast algerlega í heimi námsmannsins, í það minnsta ekki á framhaldsskóla- stiginu. Aftur á móti er ekki sterk hefð fyrir því hér að leggja eitthvað á sig fyrir aðra, án umb- unar. IB-nemendur taka þátt í slíku starfi og skrifa dagbók um það. Þeir geta unnið í þágu ein- staklings, hóps eða samtaka, á sínum heimavelli eða í stærra samhengi. Þegar þeir svo vinna úr reynslu sinni undir hand- leiðslu kennara öðlast þeir betri skilning á sjálfum sér, þeim áhrifum sem þeir geta haft á umhverfi sitt og þeirri ábyrgð sem því fylgir. Nú er það svo að við í MH erum rétt búin að taka saman okkar nesti og nýja skó og varla komin af stað á vit þessa ævin- týris. Við vitum lítið um hvort eða hvernig þær áætlanir og hugsjónir, sem ég hef lýst, koma til með að standast í raun. Átján manna teymi ber hitann og þungann af brautryðjendastarf- inu og þótt við séum jákvæð og full af eldmóði brenna á okkur margar spurningar og efasemd- irnar eru ekki langt undan. Það sama gildir um nemendahópinn; þeir eru áhugasamir en um leið áhyggjufullir. Stór hluti annarra kennara skólans er með IB-nem- endur í hópum hjá sér á fyrsta ári og ljóst er að þeir fylgjast sérstaklega vel með þeim og eru líka með sínar efasemdir. Samt held ég að megi segja að mönnum beri saman um ágæti þess að gera þessa til- raun. Verulegir ókostir hafa ekki enn komið í ljós, hvað svo sem síðar verður. Vel ígrunduð til- raun til að auka þjónustu og bæta skólastarfið teljum við af hinu góða í sjálfu sér og kost- irnir við nákvæmlega þessa til- raun hafa einmitt verið viðfangs- efni þessarar greinar. Wincie Jóhannsdóttir, konrektor við Menntaskólann við Hamrahlíð. 18

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.