Málfríður - 15.09.2000, Blaðsíða 5

Málfríður - 15.09.2000, Blaðsíða 5
við Dani. Nú er ekki gott að átta sig á hvernig nemendur hafa túlkað spurning- una eða hversu mikil þessi samskipti eru en óneitanlega virðist sem 16 ára nem- endur hafi meiri samskipti við Dani en búast hefði mátt við og þarf ekki að þöl- yrða um þau áhrif sem slíkt getur haft á dönskunámið. Það kemur líka í ljós við athugun á tölunum að meirihluta nem- enda finnst að það eigi að kenna dönsku á Islandi. Það skal tekið franr að nemend- ur þurftu að rökstyðja svar sitt, hvort heldur þeir sögðu já eða nei.Við lauslega athugun kemur í ljós að margir nefna nauðsyn þess að kunna eitt norrænt mál fyrir utan íslensku, við séum hluti af nor- rænu samfélagi og því nauðsynlegt fyrir okkur að geta tjáð okkur í samskiptum við hinar Norðurlandaþjóðirnar. Einn nemandi tók sérstaklega fram að það hefði hjálpað sér að læra þýsku að hafa áður lært dönsku. Bendir þetta ekki til þess að unglingar á Islandi skilji mikilvægi dönskunámsins? Sem fyrr greinir voru 60 verkefni val- in úr 448 verkefnum til nánari úrvinnslu. Við úrtakið var tekið mið af fjölda nem- enda á 1. ári/2. önn í viðkomandi skóla og deilt í nreð heildarfjölda. Gætt var kynjahlutfalls við útdráttinn. 1. Málfræði Eftir að búið var að draga út 60 verkefni var farið yfir hvert verkefni orð fyrir orð og merkt við á vinnuskema, sem hafði verið útbúið, rétt eða rangt.'Við athugun á málfræðifærni (grammatisk kompetence) einskorðaðist rannsóknin við vald nem- enda á beygingum helstu orðflokka, þ.e. sagnorða, lýsingarorða, fornöfna og nafn- orða ásamt notkun á samtengingum, for- setningum, tímaákvörðunum og spurnar- orðum. Jafnframt voru affnarkaðir þættir í setningaskipan athugaðir. Til að gefa nokkra hugmynd urn hvernig flokkað var í rétt og rangt má sem dæmi nefna að einn af þeim þáttum sem var rannsakaður innan sagnorða, var nútíð. Stafsetningarvillur höfðu ekki áhrif á flokkunina og því var sagnorðið at hedde flokkað sem rétt þó að vantaði -d sbr, heder (stafsetningarvilla). En hedde án nútíðar -r var flokkað rangt (beygingarvilla). 1.1 Sagnorð Eftirfarandi súlurit yfir sagnir gefur vís- bendingu um færni nemenda í ýmsum sagnbeygingum. ro ■o c ra £ ra c 'ÍS C «o 14 12 10 8 6 4 2 0 Sagnorð □ rétt ■ rangt Sundurgreining í rétta og ranga notkun á ýmsum beygingum sagnorða. Tölurnar sýna meðaltalsnotkun Við athugun á sagnorðabeygingum var sögninni at vaere sleppt í nútíð og þátíð, en sú sögn var notuð 622 sinnum í nútíð og 297 sinnum í þátíð. Var þetta gert til að auðvelda yfirferð verkefnanna. I stuttri grein er ekki hægt að birta öll súluritin, en þau sýndu glögglega að nem- endur hafa tiltölulega gott vald á þeim beygingum, sem mest eru notaðar. í stuttu máli eru helstu niðurstöður könnunar á málfræðifærni nemenda þessar: • Nemendur hafa gott vald á nútíð sagna. • Nemendur hafa lítið vald á þátíð veikra sagna. • Samsettar tíðir koma varla fyrir. • Sérstæð lýsingarorð í fleirtölu valda erf- iðleikum. • Nemendur hafa lítið vald á beygingum lýsingarorða í ákveðnum hætti. • Nemendur hafa gott vald á persónu- fornöfnum og eignarfornöfnum.

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.