Málfríður - 15.09.2000, Síða 7

Málfríður - 15.09.2000, Síða 7
og það eru stutt hlutbundin orð. Nem- endur hafa tilhneigingu til ofnotkunar (overgeneralisering) á ákveðnum orðum vegna þess að þá skortir orð sem lýsa ná- kvæmar því sem við er átt. Stofn orðanna, einkum nafnorðanna, er mikið notaður. Annað sem bendir til að málvitund nem- endanna sé ekki mjög þroskuð er að þeir nota fá orð í víðri merkingu (overeksten- sion til dækning afstore semantiske felter). Sem dæmi má nefna sagnorðið at ga og lýsingarorðið meget. Það er líka einkenn- andi fýrir orðaval nemendanna, að þeir nota orð sem líkjast íslenskum orðum, bæði að formi og merkingu. Ekki er mikið um notkun fastra orða- sambanda (flerordsudtryk) en þó virðast nemendur hafa nokkurt vald á tveimur orðasamböndum og nota þau því óspart. Þetta eru orðasamböndin det er/var (meget) sjovt og det kan/kunne jeg (meget) godt lide/jeg kan/kunne(meget) godt lide det. Það kemur á óvart hversu fá föst orða- sambönd nemendur hafa á takteinum. Þegar nemandi þarf að tjá sig munnlega eða skriflega á erlendu máli er mjög mik- ilvægt að fost orðatiltæki séu aðgengileg, því að það auðveldar tjáninguna og hægt er að beina athyglinni að flóknari þáttum tjáningarinnar. (Henriksen 1998) Full ástæða er til að leggja áherslu á notkun fastra orðasambanda í tungumálanámi. Það sýnir sig líka í skrifum nemendanna, að þeir nota þessi orðasambönd ef þau eru þeim tiltæk. 2.1. Nafnorð Einstaklingsmunurinn í orðavali kom skýrast í ljós við athugun á einstökum orðflokkum. Athugun á nafnorðum ein- skorðaðist við að rannsaka hvaða nafnorð nemendur notuðu til að segja frá Islandi og íslendingum eins og eftirfarandi dæmi sýna. (Sjá verkefni í heild á bls. 9). II. Fortæl om Island og islændingene o, snehuse, turist, moden, telefoner, gud, fisk, kartofler, indbyggere, isbjorn, kod, „landrystelser", livsstil, nation. Islændingenes hverdag og hvad de arbejder med fisk, fiskefabrik, fabrik, firma, gárd, handel, industri, kontor, landbrug, landmand, arbejdsloshed, arbejdstid, alkohol, „farm“, græs, havet, hverdagslivet, hándværker, landbrugsarbejde, teknologi. Naturen og spændende steder man kan besoge vand, is, Gullfoss, Geysir, gejser, vandfald, Vatnajökull, Þingvellir, bjerge, træer, ture, Þórsmörk, fjelde, gletscher, kilder, blá lagune, udlændinge, vulkaner, attraktion, Bláfjöll, information, lava, turistattraktion- er, Þingvallavatn. Uttektin í heild sýndi að mikill meiri- hluti nafnorðanna, sem notaður var til að lýsa íslandi og íslendingum, kom einungis einu sinni eða tvisvar sinnum fýrir og ekkert nafnorðanna var notað oftar en 15 sinnum í öllum textunum. Sameiginlegur nafnorðaforði nemenda er því mjög lítill. Nafnorð sem komu oftar fýrir en þrisvar sinnum eru einkvæð eða tvíkvæð orð í flestum tilvikum en notkun á fleirkvæð- um nafnorðum var mjög einstaklings- bundin. Það er áberandi, hve mörg íslensk sérnöfn eru á listanum og skýrist það að hluta til af verkefninu, en það var nokkuð um að nemendur teldu upp ýmsa staði og söfn, án þess að gera nánari grein fýrir þeim. Það er erfitt að fullyrða að nemend- ur vanti nafnorð til að lýsa íslandi, landi og þjóð. E.t.v. hafa þeir ekki meiri þekkingu á landinu sínu. Það verður líka að hafa í huga að mikill munur getur verið á þeim orðaforða sem nemandi skilur og ber kennsl á (receptiv) og þeim orðaforða sem hann hefur á takteinum þegar hann talar og skrifar (produktiv). 2.2. Sagnorð. Eftirfarandi sagnorð komu oftar en 14 sinnum fýrir í öllum nemendatextunum. 975 vœre, 289 have, 241 gá, 187 kunne, 145 ville, 130 bo, 113 hedde, 87 arbejde, 85 komme, 82 skulle, 74 rejse, 64 se, 59 skrive, 58 gore, 56 blive, 46 vide, 34 spille, 32 fá, 31 fortcelle, 30 sige, 7

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.