Málfríður - 15.09.2000, Blaðsíða 24
kennarar gleymdu ekki keppnishliðinni,
þar sem hún á við, og reyndu að hugsa
upp frumleg verðlaun og jafnvel saklaus
skammarverðlaun eða refsingar. Af eftir-
minnilegum refsingum má t.d. nefna hné-
beygjur (sem þátttakendur fengu svo
sannarlega að prófa við mismikla
ánægju...), og tungubrjóta af ýmsum gerð-
um sem eru auðvitað stórsniðug og mark-
viss „hegning“ í tungumálakennslu, ekki
síst þegar um erfiðan framburð er að ræða.
Þegar htið er yfir námskeiðið í heild er
óhætt að fullyrða að það hafi verið efnis-
og fjörmikið. Þátttakendur fengu innsýn í
nýjan heim og ótal hugmyndir að fjöl-
breyttum kennsluaðferðum, allt frá sára-
einfoldum leikjum til flókinna verkefna.
Margar þessara hugmynda hafa þegar sett
mark sitt á frönskukennslu víða um land
og er það einlæg von greinarhöfundar að
nánari útlistanir á ávöxtum þessa
skemmtilega námskeiðs muni verða lagðar
inn í hugmyndabanka Málfríðar á næstu
misserum.
Margrét Helga Hjartardóttir, frönskukennari við
Kvennaskólann í Reykjavík
SÓKRATES/Comeníus
styrkir tungumálakennara
nemendur og menntastofnanir
• Endurmenntun tungumálakennara. Styrkir
eru veittir til að sækja námskeið til ESB
landa í 2-4 vikur.
• Aðstoðarkennsla í tungumálum. Tungumálakennarar á grunn- og
framhaldsskólastigi geta sótt um að fá evrópskan verðandi tungu-
málakennara í 3-8 mánuði. Nemarnir eru kostaðir frá sínu heima-
landi. Umsóknarfrestur 1. mars
• Gagnkvæmar nemendaheimsóknir - samstarfsverkefni tveggja
skóla frá ESB/EES löndum. Heimsóknir eiga að standa yfir í a.m.k. 2
vikur, ekki færri en 10 í hóp og nemendur séu 14 ára og eldri. Um-
sóknarfrestur er 1. mars ár hvert.
• Námsgagnagerð í tungumálakennslu. Samstarfsverkefni 3 þátttöku-
landa og þarf af eitt ESB land. Umsóknarfrestur er til 1. mars ár
hvert.
• Samvinnuverkefni stofnana til að koma á fót námskeiðum til að þjálfa
tungumálakennara sem byggir á þriggja landa samstarfi. Umsóknar-
frestur rennur út 1. nóvember og 1. mars. Tillaga send inn 1. nóvem-
ber og ef hún fær jákvæða umfjöllun þá er aðalumsókn send inn 1.
mars.
• Undirbúningsheimsóknir. Kennarar fá styrki til að koma á fót sam-
vinnuverkefnum við menntastofnanir í þátttökulöndum Sókratesar.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð:
Alþjóðaskrifstofa Háskólastigsins/ Landsskrifstofa SÓKRATESAR, Neshaga 16,
107 Reykjavík. Sími: 525 5813 bréfsími: 525 5850
Netfang: rz@hi.is http://www.ask.hi.is