Málfríður - 15.05.2003, Side 3
Ritstj órnarrabb
Þegar Daninn Michael Svendsen Pedersen kemur
til Islands, finnst honum einstök upplifun að geta
tjáð sig á eigin móðurmáli í erlendu landi sem ekki
tilheyrir konungsríkinu. En verra finnst honum
reyndar að yfirleitt er honum svarað á ensku. I ljósi
þessarar reynslu, ritaði hann grein um þjálfun
munnlegrar tjáningar í dönsku sem birt er í blaðinu.
Kennsla orðaforða er stöðugt umhugsunarefni
hjá tungum£akennurum. Hvernig á að kynna ný
orð fyrir nemendum? Hvernig getum við verið viss
um að þeir hafi gert þessi orð að sínum þannig að
þeir geti notað þau í öðru samhengi? Auður Torfa-
dóttir og Hlín Magnúsdóttir hafa hvor um sig ritað
grein um kennslu orðaforða og nálgast þær efiiið firá
mismunandi sjónarhornum.
Armann Halldórsson fræðir okkur um
ritsmiðju í ensku fyrir bráðger börn sem hann hef-
ur umsjón með. Sigríður Anna Guðbrandsdóttir
deilir með okkur reynslu sinni af kennsluaðferðum
í ritun sem og af notkun spila í tungumálakennslu.
Margrét Helga Hjartardóttir brá sér til Graz í febr-
úar sl. þar sem hún tók þátt í áhugaverðri vinnu-
stofu íTungumálamiðstöðinni. I skemmtilegri grein
fræðir hún okkur um Undraland tungumálakennara
og fleira.
Auk þess er að finna annað áhugavert efni í
þessu vorblaði og bjóðum við ykkur að njóta vel.
Eftirtalin fagfélög tungumálakennara
eiga fulltrúa í ritstjórn Málfríðar
vorið 2003:
Félag dönskukennara:
Bryndís Helgadóttir
Iðnskólanum í Hafnarfirði
heimasími: 557 4343
netfang: bryndish@ismennt.is
Félag enskukennara:
Þórhildur Lárusdóttir
Kvennaskólanum
heimasími: 561 1945
netfang: thlar@simnet.is
Félag frönskukennara:
Jóhanna Björk Guðjónsdóttir
Háskóla Islands
heimasími: 562 2677
netfang: jobg@hi.is
Félag þýskukennara:
Asmundur Guðmundsson
Menntaskólanum í Reykjavík
heimasími: 568 1267
netfang: asmgud@isl.is
Efnisyfirlit
Michael Svendsen Pedersen:
„Danska — á munnlegan hátt“:.................. 4
Hlín Magnúsdóttir:
Að kenna orðaforða ........................... 6
Auður Totfadóttir:
Að sjá orðin í samhengi ........................11
Armann Halldórsson:
Um enska ritsmiðju fyrir bráðger börn .... 15
Sigríður Anna Guðbrandsdóttir:
Gamalt vín á gömlum og nýjum belgjum . . 19
Gyða Bentsdóttir:
„Det sjipper ikke...............................21
Jórunn Tómasdóttir:
Expolangues 2003 23
Ásta Emilsdóttir og Björg Helga Sigurðardóttir:
Nýtt kennsluefni í þýsku: Þýskafyrir þig 1 . . 24
Margrét Helga Hjartardóttir:
Fréttir af Undralandi í Graz ...................26
Tilkynningar: ..................................31
Málfríður,
tímarit Samtaka tungumálakennara,
l.tbl. 2003.
Utgefandi:
Samtök tungumálakennara á
Islandi.
Ábyrgðarmaður:
Auður Torfadóttir
Ritnefnd:
Ásmundur Guðmundsson
Bryndís Helgadóttir
jóhanna Björk Guðjónsdóttir
Þórhildur Lárusdóttir
Prófarkalestur:
Árný M. Eiríksdóttir
Umsjón með netútgáfu:
Guðbjartur Kristófersson
Málfríður á Netinu:
http://malfridur.ismennt.is
Umbrot, prentun og bókband:
Steinholt ehf.
Heimilisfang Málfríðar:
Pósthólf 8247
128 Reykjavík.
Forsíðurteikning: Benoit Clicquet.
3