Málfríður - 15.05.2003, Qupperneq 7

Málfríður - 15.05.2003, Qupperneq 7
Gagngerar orðaforðaæfingar Með markvissum orðaforðaæfingum get- ur kennarinn haft nokkur áhrif á máltöku nemenda sinna. Gairns og Redman hafa bent á að markvissar orðaforðaæfingar séu eina uppspretta orðaforða innan kennslu- stofunnar sem kennarinn hefur fulla stjórn á. Aðrar uppsprettur eru námsbækurnar og æfingar tengdar þeim, aukaefni sem skólinn eða kennarinn hafa valið s.s. text- ar, vídeóspólur o.fi. og ný orð sem nem- endur koma með, einkum út frá spurn- ingum sínum og villum. Markvissar orða- forðaæfingar eru eina úrræðið sem kenn- arinn ræður einn yfir, þó hann geti vissu- lega haft einhver áhrif á hina þættina. I ljósi þessa eru slíkar æfingar tæki sem kennarinn getur notað til að hafa áhrif á framvindu námsins. Lítum á nokkur dæmi um orðaforða- æfingar. Nattinger og DeCarrico leggja til að nemendum séu kenndir utan að bútar eins og t.d. „I’m sorry.“ Bútar sem þessir búa yfir „glufum“ þar sem hægt er að bæta orðum inn í svo að úr verði t.d. „I’m very sorry about it.“ Markmiðið er að nemendur verði færir um að búa til hlið- stæða frasa sjálfir. (Þetta er það sem átt er við með því að kenna búta fyrst og greina þá svo á seinni stigum námsins.) Einnig er mikilvægt að hafa tilgang orðræðunnar í huga. Ef verið er að votta samúð vegna lít- ilsháttar atviks, eins og t.d. að einhver hafi týnt bókinni sinni, segir maður bara „I’m sorry“, en „I’m sorry to hear it“ væri not- að í tilfellum þar sem eitthvað alvarlegra væri á ferðinni (116—118). Þarna haldast því í hendur form og innihald eða setn- ingagerð og merking. Félagslegt samhengi skiptir þarna miklu máli varðandi merk- ingu og hefur áhrif á setningagerð. Við þetta hlýtur málanámið aukna vídd sem ekki fæst með því að læra stök orð. Orðaveggurinn er í sjálfu sér ein stór orðaforðaæfmg sem beinist að því að hraða máltöku nemenda með því að kenna þeim einstök orð. Það er tímafrekt að læra orð af því að sjá þau oft í mismun- andi samhengi og orðaveggnum er ætlað að flýta því ferli. Lykilatriði við val á orð- um til að setja á veggina er þess vegna að velja orð sem nemendur hafa áður séð í samhengi (Eyraud et al., 3). Megintilgang- ur orðaveggsins er þess vegna að festa ein- stök orð í minni. Aðferðir til sjálfsnáms Þó að markvissar orðaforðaæfingar séu vissulega mikilvægar er jafnvel enn mikil- vægara að kenna nemendum aðferðir til sjálfsnáms svo þeir geti upp á eigin spýtur beitt markvissum aðferðum við að tileinka sér orðaforða. Lewis nefnir sérstaklega að kenna nemendum aðferðir við að giska á merkingu út frá samhengi, aðstæðum eða vísbendingum í orðunum sjálfum (47). Athyglisvert dæmi um það síðastnefnda er færni barna til að tileinka sér orðaforðann í bókunum um Harry Potter eins og henni er lýst í grein eftir Nilsen og Nilsen. Þau bera árangur barna við að skilja þau fjölmörgu nýju orð sem birtast í þessum bókum saman við tregðu fullorðinna við að tileinka sér orðaforða tengdan Afganist- an og hryðjuverkasamtökum í kjölfar árásarinnar 11. september 2001. Þau segja muninn liggja í vísbendingum innan nýju orðanna í Harry Potter. Orðin eru mynd- uð úr kunnuglegum orðhlutum sem einn- ig gefa vísbendingar um merkingu. Les- endur þekkja því framburð orðhlutanna og eru færir um að giska á merkingu sam- setta orðsins út frá merkingu einstakra orðhluta þess. Þau leggja til að þessi eigin- leiki sé nýttur í kennslu og nefna sem dæmi morfemið „arm“ á ensku. Orðið eitt og sér þýðir handleggur og kemur fyr- ir í fjölda samsettra orða og orðasam- banda. Merking þess hefur þróast yfir í að eiga við framlengingu á handlegg í formi byssna eða fallbyssna (e. firearms) og í framhaldi af því yfir í vopn almennt. Orð- ið „unarmed“ þýðir því ekki handleggja- laus heldur óvopnaður. Ef nemendur fá að kynnast einu morfemi á þennan hátt ættu þeir að geta yfirfært aðferðina yfir á önnur morfem. Það er því ekki síður mikilvægt að kenna nemendum að nýta sér vísbendingar sem orðin sjálf fela í sér en að nýta sér það samhengi sem þau birtast í. Önnur aðferð sem ýtir undir sjálfstæði nemandans er að halda til haga í sérstakri glósubók því sem hann hefur lært. Lewis segir að slík bók eigi að vera persónulegt hjálpartæki nemenda þannig að hver bók Orðin eru mynduð úr kunnuglegum orðhlutum sem einnig gefa vís- bendingar um merkingu. Les- endur þekkja því framburð orð- hlutanna og eru færir um að giska á merk- ingu samsetta orðsins út frá merkingu ein- stakra orðhluta þess. 7

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.