Málfríður - 15.05.2003, Qupperneq 23

Málfríður - 15.05.2003, Qupperneq 23
Expolangues 2003 Expolangues, ein öflugasta tungumálasýn- ing sinnar tegundar var haldin í 21. skipti á Grande Halle de laVillette í París dagana 29., 30., 31. janúar og 1. febrúar (sjá www.expolangues2003.com). Um það bil 150 sýningarbásar voru dreifðir um geysistóran sabnn þar sem kynnt voru rúmlega 50 tungumál. Tungumálaskólar kynntu námskeið og dvöl í viðkomandi landi með litríkum lokkandi bæklingum, útgefendur sýndu íjölbreytt kennsluefni í tungumálum, margmiðlunar- og tölvu- fyrirtæki kynntu helstu tækninýjungar í tungumálakennslu, þýðenda- og túlka- skólar kynntu námið, starfið, tækni og tól til þýðinga og túlkunar svo bara fátt eitt sé nefnt. Fjöldi áhugaverðra og fræðandi fyr- irlestra var á dagskrá alla sýningardagana. Gestum var boðið uppá örnámskeið í ýmsum tungumálum auk þess sem þeir gátu kannað tungumálafærni sína með því að gangast undir munnleg og skrifleg stöðupróf í ensku, frönsku, ítölsku, spæn- sku og þýsku. Söngur, dans, upplestur og leikuppfærslur frá mismunandi málsvæð- um gáfu tungumálunum menningarlega vídd enda mynda tungumál og menning órofa heild. Af rúmlega 50 tungumálum sem kynnt voru á sýningunni, voru enskan, franskan og spænskan fyrirferðra mest. Spánvcrjar voru með kraftmikla og skemmtilega kynningu á tungumálaskólum víða um Spán. Auk þess kynntu þeir Cervantes stofnunina og nokkra háskóla, þeirra á meðal Universitat Autonoma de Barcelona og Universitat de Alcala. Kennsluefni í ensku var viðamikið og fjöl- breytilegt. Einkum var lögð áhersla á vandað og skemmtilegt kennsluefni fyrir börn. A þeim fyrirlestrum sem ég sótti voru allir sammála um mikilvægi þess að hefja tungumálakennslu strax á barnsaldri. Þar sem tungumálakennarar hafa ekki hlotið sértæka menntun til að kenna ung- um börnum brá Le Centre International d’Etudes Pédagogiques í Frakklandi á það ráð að setja upp kennsluvef þar sem kennarar eru leiddir áfiram skref fyrir skref bæði hvað varðar aðferðafræði og kennsluefni fýrir ung börn. A vefnum geta kennarar einnig skipst á skoðunum, upp- lýsingum, aðferðum og hugmyndum. Starf þýðenda og túlka var í brennid- epli á Expolangues sýningunni. I fyrirlestr- um kom fram hversu mikilvægt starf þeir- ra er, ekki bara í alþjóðlegum samskiptum, heldur ekki síst innan fýrirtækja jafnt stór- ra sem smárra. Góðir þýðendur hafa auk þess um aldaraðir opnað fólki leið inn í nýja og framandi menningarheima. Það var áberandi í öllum þeim fyrir- lestrum sem ég sótti hversu rík áhersla var lögð á fjöltyngda Evrópu. Það yrði að sporna gegn því að hún þróaðist upp í eitt málsvæði þar sem enskan yrði ríkjandi tungumál. Ofl þessi mismunandi tungumál eru auður og menningararfleifð sem ekki má glatast. Því er mikilvægt að halda áfram að vinna að því að Evrópubúar læri og hafi vald á a.m.k. tveim erlendum tungu- málum. Það er alkunna að tungumál opna dyr að menningarlegri auðlegð þjóðanna, hjarta þeirra og sál. Tungumálakunnátta eykur skilning manna á mifli og samkennd meðal fólks af ólíkum uppruna. Jérunn Tómasdóttir, frönskukennari Jórunn Tómasdóttir 23

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.