Málfríður - 15.05.2003, Page 26

Málfríður - 15.05.2003, Page 26
Fréttir af Undralandi í Graz — vinnustofa um Margrét Helga Hjartardóttir stöðu tungumálakennara. í Evrópu Kynning og aðdragandi Dagana 3.-8. febrúar sl. var haldin fyrsta vinnustofa ársins 2003 hjá Tungumála- miðstöðinni í Graz (The European Centre of Modern Languages). Var hún hluti af stærra verkefni sem hleypt var af stokkunum árið 2001 og kallast „Staða tungumálakennara“ (nánar tiltekið „Project 2.1.1.—The Status ofLanguage Educators“). Þarna mættust 29 þátttak- endur frá 28 löndum og var undirrituð fulltrúi íslenskra tungumálakennara. Leið- beinendur voru fjórir: Péter Radaí frá Ungverjalandi (sem var aðalstjórnandi), Gabriela Matei frá Rúmeníu, Merdeces Bernaus frá Spáni og Derk Sassen frá Hollandi. Unnið var á ensku og frönsku. Upphaf verkefnisins má rekja til mál- stofu sem haldin var í Graz í júní 2000 þar sem rætt var um nauðsynlegar breytingar á menntun kennara. Þar kom m.a. fram rík þörf á að bæta stöðu tungumálakennara og vellíðan í starfi víðs vegar í Evrópu og var ákveðið að efna til verkefnis með það há- leita markmið að vinna að umbótum í þessa átt. Fyrsti hluti verkefnisins var að mestu unninn á Netinu, aðallega á heimasíðu Tungumálamiðstöðvarinnar (ecml.at). Þar voru sett í gang tvö verkefni, „kennari vik- unnar“ (TÖW) og umræðusíða um tungu- málakennslu („discussion forum“). Þarna gátu kennarar tjáð sig um ýmsar hliðar starfs síns og kom margt fróðlegt í ljós. Sem dæmi um jákvæða þætti má nefna að áber- andi var að kennarar sögðu að samstarfið við nemendur væri mjög gefandi (m.a. vegna þess að allir gefa og þiggja, sbr.: „Eg læri alltaf eitthvað nýtt af nemendum mín- um“), að starfið væri skapandi og gæfi gott tækifæri til að kynnast öðrum menningar- heimum. Lág laun, slakt almenningsálit („allir geta kennt tungumál!“), skortur á tækifærum til endurmenntunar og í mörg- um tilvikum, sú þunga þraut að vekja og viðhalda áhuga nemenda, komu efst á blað í neikvæða dálkinum. Umræðurnar urðu þó ekki eins lifandi og forráðamenn höfðu vonað, en það var m.a. vegna tæknilegra örðugleika og skorti á kynningu. Utkom- una má enn skoða á heimasíðunni (a.m.k. þegar þetta er ritað). Annar hluti verkefhisins var vinnustofa í Graz í desember 2001 þar sem saman komu 25 þátttakendur frá 24 löndum. Að- alverkefni þessarar samkundu var að legg- ja fyrstu drög að svokölluðu „Undralandi tungumálakennara“ („Language Teachers’ Wonderland“, sbr. umfjöllun hér síðar). Enginn fulltrúi var frá Islandi á þessum viðburði, reyndar komu bara 5 þátttak- endanna aftur til Graz nú í febrúar þar sem þriðji og síðasti hluti verkefnisins fór fram (ef frá er talin lokaskýrsla sem væntanleg er haustið 2003). Það var því nýr, ferskur og spenntur hópur kennara sem hittist að morgni 3. febrúar í vel búnum umræðusal Tungu- málamiðstöðvarinnar. Enginn vissi al- mennilega á hveiju hann átti von en meg- inmarkmið næstu fimm daga voru eftir- farandi: • að kynna þátttakendum betur það sem komið hafði út úr verkefninu „The Status of Language Educators“ fram að þessu (TOW, umræðusíðan, Undraland- ið...) • þróa áfram fyrri niðurstöður (einkum Undralandið) og leita leiða til að nýta þær til að bæta stöðu tungumálakennara • gefa yfirsýn yfir nýjustu hugmyndir um tungumálakennslu og hvernig þær munu geta haft áhrif á stöðu þeirra • þjálfa þátttakendur í miðlun þess sem fram átti að fara þegar heim væri kom- ið, þ.e. gera þá að málsvörum bættrar stöðu tungumálakennara í heimahögum • leggja drög að einhvers konar aðgerðaá- ætlun eða áskorun til að stuðla að bættri stöðu tungumálakennara, bæði í hvequ landi fýrir sig og á alþjóðlegum vettvangi. Hvað ber nánasta framtíð tungu- málakennara í skauti sér? Til að átta okkur á hvar við vorum, hvar við erum og hvert við tungumálakennar-

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.