Málfríður - 15.05.2003, Side 31
Tilkynningar ★ Tilkynningar ★ Tilkynningar
Auglýst eftir umsóknum vegna starfs-
áætlunar Tungumálamiðstöðvarinnar
í Graz 2004-2007
Tungumálamiðstöðin í Graz (European
Centre for Modern Languages) er stofnun
á vegum Evrópuráðsins. Island er eitt 33
aðildarlanda. Hlutverk stofnunarinnar er
að efla og styðja við nám og kennslu í
tungumálum í Evrópu. Starfsemin felst
m.a. í skipulagningu námskeiða/vinnustofa.
Einnig er á vegum stofnunarinnar unnið
að margvíslegum þróunar- og rannsókn-
arverkefnum á sviði tungumálanáms og
tungumálakennslu, oft í tengslum við
vinnustofur/námskeið. Jafnframt fer fram
talsverð útgáfustarfsemi á vegum tungu-
málamiðstöðvarinnar. Aðildarlönd geta
almennt sent einn þátttakanda á hvert
námskeið (vinnustofu) sér að kostnaðar-
lausu.
Starfsemi Tungumálamiðstöðvarinnar í
Graz byggir á fjögurra ára starfsáætlunum
og er núverandi áætlun gerð fyrir árin
2000-2003. Undirbúningur að næstu
fjögurra ára áætlun fyrir árin 2004—2007
hófst þegar á síðasta ári. Stofnunin hefur
nú formlega auglýst eftir umsóknum að
verkefnum í nýju áætlunina en þema
hennar er: Languages for social cohesion.
Language education in a multilingual and
multicultural Europe. Aherslusvið eru þqú:
vitundarvakning, þjálfun og rannsóknir og
þróun. Umsóknarfrestur er til 30. iúní
2003.
Fyrrnefnda auglýsingu er að finna á
vefsíðu Tungumálamiðstöðvarinnar í
Graz. Slóðin er: www.ecml.at. Einnig er
bent á slóðina http://help.ecml.at þar sem
finna má frekari upplýsingar og aðstoð við
gerð umsókna. Einnig hefur verið komið
upp umræðuvettvangi:
http://www.ecml.at/interactive/2MTP_f
orum.asp til að stuðla að alþjóðlegu sam-
starfi. Þar gefst t.d. möguleiki á að leita
eftir samstarfsaðilum um verkefni. Aug-
lýsinguna má einnig nálgast á ensku á vef
menntamálaráðuneytisins (menntamala-
raduneyti.is). Þar er einnig að finna
upplýsingar á íslensku urn undirbúning,
frágang og skil umsókna.
I auglýsingu Tungumálamiðstöðvar-
innar er m.a. að finna upplýsingar um:
Hlutverk stofnunarinnar og starfsemi.
Aherslur og inntak starfseminnar á tíma-
bilinu 2004-2007.
Tegund verkefna og dæmi um verkefni.
Heimasíða STÍL
Nýja heimasíðu STÍL er að finna á slóð-
inni www.stil.is
Síðan er enn í vinnslu.
Sumarnámskeið STÍL í ágúst
Að þessu sinni verður fjallað um tölvu-
notkun í tungumálakennslu, þ.e. net-
notkun sem og helstu aðferðir og forrit
sem notuð eru við kennslu tungumála í
dag. Þetta er 28 tíma námskeið sem kennt
verður dagana 11.-14. ágúst, kl. 9-16.
Hámark fjölda þátttakenda miðast við 30
manns. Umsóknarfrestur er 1. júní. Skrán-
ing fer fram hjá Endurmenntunarstofnun.
31