Skólavarðan - 2019, Síða 10
10 SKÓLAVARÐAN VOR 2019
KENNARASAMBANDIÐ / Fréttir
Menntamálaráðuneytið stóð fyrir
ráðstefnu um stöðu og framtíð
íslenskukennslu í skólum landsins.
Hún var liður í aðgerðum stjórn-
valda til að styrkja íslensku sem
opinbert mál en eitt af markmiðum
aðgerðanna er að efla íslensku-
kennslu á öllum skólastigum.
Útgangspunktur ráðstefnunnar
var niðurstöður rannsóknar á
stöðu íslensku kennslu sem miðlað
er í nýrri bók sem ritstýrt var af
Kristjáni Jóhanni Jónssyni og
Ásgrími Angantýssyni, Íslenska í
grunnskólum og framhaldsskól-
um. Niðurstöðurnar sýna jákvætt
og virðingarvert starf en einnig ým-
islegt sem betur má fara. Skemmst
er frá því að segja að uppbókað
var á ráðstefnuna en áhugafólk gat
einnig fylgst með streymi af henni.
Ráðist var í áðurnefnda
rannsókn vegna þess að fræðimenn
töldu sig skorta vitneskju um
hvernig staðið væri að íslensku-
kennslu á öllum skólastigum.
Kennslan er drifin áfram af góðum
kennurum en bæta þurfi aðstöðu og
námsefni. Kennarar glíma við það
vandamál að vekja áhuga nemenda
á tungumálinu.
Huga þarf betur að þeim
tækjum og tólum sem kennarar
nota við íslenskukennslu og þar
kemur bókakosturinn sterkur
inn. Fram kom í máli Kristjáns
Jóhanns Jónssonar að bækur sem
nemendur eiga að lesa séu oft afar
kennaramiðaðar og að jafnaði 39
ára gamlar. „Til dæmis er fjarvist
unglingabóka úr unglingakennslu
fullkomlega óskiljanleg,“ sagði
Kristján Jóhann á ráðstefnunni.
„Það segir eitthvað um það hvernig
skólakerfið skilgreinir íslenskuna
sem viðfangsefni.“
Kristján Jóhann sagði jafn-
framt að einstaklingsframtak góðra
kennara skipti öllu máli en það
dygði ekki til. „Umhverfið þarf að
spila með, það þarf betri bókakost
og það verður að hlúa betur að
skólakerfinu,“ sagði hann.
Orð eru til alls fyrst og
kennarar og aðrir ráðstefnugestir
voru sammála um að spýta þurfi
í lófana. Læsi er grunnþáttur
menntunar og huga þarf að
öllum þáttum tungumálsins – ekki
einungis að kenna málfræðina,
bókmenntir mega ekki gleymast og
val nemenda má alls ekki vera of
kennaramiðað.
„Fjarvist unglingabóka í unglinga-
kennslu algerlega óskiljanleg“
Áfram íslenska – Ráðstefna um stöðu og framtíð íslenskukennslu í skólum landsins
Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta-
og menningar-
málaráðherra,
setti ráðstefn-
una og hóf
erindi sitt á
því að vitna
í vitundar-
vakningu
Kennara-
sambands
Íslands um
íslenskuna.
Íslenska í grunnskólum og
framhalds skólum
Höfundur: Kristján Jóhann Jónsson
Bókin er byggð á rannsókn sem unnið var
að á árunum 2013-2016 og var sam-
starfsverkefni tveggja háskóla, Háskóla
Íslands og Háskólans á Akureyri. Höfund-
ar bókarinnar eru sjö íslenskukennarar
við þessa skóla en þátt tóku auk þeirra
meistara- og doktorsnemar við báða
skólana. Verkefnið var unnið í samvinnu
við starfandi kennara og stjórnendur í
15 grunnskólum og framhaldsskólum.
Útgefandi: Háskólaútgáfan.