Skólavarðan - 2019, Side 39
VOR 2019 SKÓLAVARÐAN 39
Baldvin Ringsted / VIÐTAL
Það er alltof algengt
að talað sé um iðn-
og verknám eins
og það sé fatlaður
bróðir sem allir eigi
að vera góðir við
Við erum með fjórtán
manna hóp pípara
sem gerist nú ekki
á hverjum degi. Að-
sókn í pípulagnir og
múrverk hefur aukist
síðustu misseri
og nýlega endurreista deild í hársnyrtiiðn. Vandinn við
hársnyrtideildina er skortur á nemaplássum og okkar
nemendur hafa sumir farið til Noregs til að klára starfsþjálf-
un. Þá er gaman að segja frá því að við höfum útskrifað einn
kokkahóp og erum með efnivið í annan hóp. Hvað verður í
þessari grein vitum við þó ekki, ef dregur úr ferðamanna-
straumi hingað gæti aðsóknin minnkað,“ segir Baldvin.
Skipting nemenda í þremur stóru grunndeildunum er
að sögn Baldvins þannig að helmingur er nýnemar og helm-
ingur eldri nemendur sem hafa náð sér í reynslu í atvinnulíf-
inu. „Svo fáum við fjölmarga stúdenta inn á rafmagnssviðið.
Þeir koma úr hinum og þessum skólum, frá Laugum, MA og
FNV á Sauðárkróki, svo dæmi séu tekin,“ segir Baldvin.
Hann segir mikinn metnað innan rafmagnssviðsins og
að reynt sé að velja góða nemendur inn; nemendur sem séu
líklegir til afreka og hafi staðið sig vel í grunnskólanum. Ein
ástæðan séu ríkar kröfur í stærðfræði alveg frá fyrstu önn.
„Þeir sem koma beint inn í deildina fara flestir í stúdents-
prófið. Það er mikill jafningjaþrýstingur.“
Miklar kröfur gerðar til nemenda
Þá segir Baldvin bifvélavirkjun hafa tekið miklum og hröð-
um breytingum síðustu árin. „Þetta er orðin hátæknigrein,
enda bílar nútímans tölvustýrðir. Fyrirkomulagið er þannig
að nemendur taka eitt ár í grunndeild þar sem þeir læra
járnsmíði og suðu, vélfræði, teikningu og ensku. Nemendur
verða að ná góðum tökum á ensku því þegar komið er á
þriðju önn er allt námsefnið á ensku og þannig er það líka
úti í atvinnulífinu. Þessir nemendur búa við mikið álag og
við gerum kröfu um 90% mætingu, enda námið kennt í
lotum,“ segir Baldvin.
Hann segir VMA hafa skrifað eigin námskrá í bílgrein-
um sem hafi fengið samþykki. Nýja námskráin er nokkuð
frábrugðin þeirri sem var gefin út í Aðalnámskrá. „Við
leggjum meiri áherslu á smíðaþáttinn, við viljum að nem-
endur kunni járnsmíði og að sjóða og séu færir um að taka
að sér jeppabreytingar, til dæmis. Við höfum auk þess bætt
við áföngum og lengt námið um eina önn; úr fimm önnum í
sex. Nú kennum við nútímatækni, svo sem á leiðsögukerfi,
stýringar og búnað í bílum, loftpúða og fleira,“ segir Baldvin
og bætir við að einnig sé kennt á rafmagnsbíla. Síðastnefndi
þátturinn mun að mati Baldvins vaxa á næstu árum enda
bílaflotinn að breytast.
Nám til stúdentsprófs hefur sem kunnugt er verið stytt
úr fjórum árum í þrjú. Það á hins vegar ekki við verknámið.
„Iðnnám hefur lengst af verið tvö og hálft til þrjú ár á
skólabekk. Nú er það oftast fimm til sjö annir og svo starfs-
þjáĺfun frá 24 vikum upp í ríflega ár ,“ segir Baldvin.
Aðspurður hvort til standi að stytta verknám í annan
endann segist Baldvin ekki reikna með því. „Það kemur
reyndar fram í Hvítbók Illuga og víðar að það eigi að stytta
þetta nám. Það hefur bara enginn sagt hvernig. Hvað á að
skera niður? Iðnnámið er lengra en nám til stúdentsprófs og
það finnst engum neitt athugavert við það.“
Leiðandi í námskrárgerð
Baldvin segir mikið starf hafa verið unnið í VMA við að
skrifa námskrár fyrir iðnnám. Þegar hafa verið samþykktar
brautir í húsasmíði, rafvirkjun og stálsmíði, bifvélavirkjun
og rafeindavirkjun. „Við höfum verið leiðandi í námskrár-
gerð og það hafa ekki allir nýtt það tækifæri sem felst í að
endurskoða námskrána, einkum með tilliti til þess sem er að
gerast í viðkomandi fagi. Við höfum lagt okkur fram við að
fylgjast með þróuninni í hverri grein og bifvélavirkjunin er
gott dæmi um það – endurskoðun námskrár leiddi til þess
að námið lengdist,“ segir Baldvin.
Nýjar brautir eru ekki á teikniborðinu akkúrat núna.
„Ég hef sett saman nýjar brautir en það er enginn tilbúinn
að samþykkja braut sem ekki hefur
verið til áður. Dæmi um þetta er
bifhjólavirkjun sem ég kynnti mér vel í
Danmörku. Ég fékk dönsku námskrána
og speglaði hana inn í okkar námskrá
að viðbættum vélsleðum og smávél-
um. Ég sá þetta fyrir mér sem eins
árs námsbraut ef nemendur hefðu
undirbúning við hæfi. Það falla tólf
þúsund ökutæki hér á landi undir
þetta en hugmyndinni var hafnað af
viðtakendum,“ segir Baldvin.
Hann segir einnig að umsókn um
námsbraut í megatróník hafi verið
hafnað. Baldvin segir erfitt að koma
inn með nýjungar, því miður.
Jákvæðar fréttir úr iðnnáminu
eru hins vegar að í vor mun útskrifast
hópur pípulagningarmanna. „Við
erum með fjórtán manna hóp pípara
sem gerist nú ekki á hverjum degi.
Aðsókn í pípulagnir og múrverk
hefur aukist síðustu misseri og við
erum einnig að útskrifa flottan hóp
stálsmiða í vor. Um 35 leggja nú
stund á stálsmíði, sem er gott,“ segir
Baldvin og bætir við að að sama skapi
hafi aðsókn í húsgagnasmíði dregist
saman. Svona sveiflast eftirspurnin
og síðustu tvö ár hafa ívið færri
útskrifast af verknámsbraut í VMA en
af stúdentsbraut. „Við höfum gjarnan
verið með 50 til 60 prósent útskrif-
aðra okkar megin en það hefur hallað
á okkur síðustu tvö árin. Líklega er
það stytting náms til stúdentsprófs
sem hefur áhrif, þeir nemendur sigla
hraðar í gegn.“
Efins um eitt leyfisbréf
Nýtt frumvarp sem unnið er að í
menntamálaráðuneytingu gerir á
þessari stundu ráð fyrir að gefið
verði út eitt leyfisbréf fyrir kennara
á öllum skólastigum. „Mér hugnast
þessi breyting ekki sérlega vel, verði
hún að veruleika. Ef við horfum bara
á námið hér í VMA þá er það mjög
greinabundið og kennarar eru afar
sérhæfðir í sínum greinum. Það kennir
enginn faggreinar án þess að hafa til
þess faglega þekkingu, svo einfalt er
það. Það sem mætti sjá fyrir sér væri
skörun á milli efstu bekkja grunnskóla
og fyrstu bekkja framhaldsskólans.
Faggreinakennari á unglingastigi gæti
hugsanlega kennt 1. þreps áfanga í
framhaldsskóla en hann færi ekki
mikið lengra en það,“ segir Baldvin.
Eins og greint var frá í upphafi
greinarinnar þá er hugur í forráða-
mönnum VMA. „Ég hef svo lengi sem
ég hef starfað hér barist fyrir því að
fólk hætti að tala verknámið niður.
Við eigum að sameinast um að efla
verknám enn frekar og hætta að flytja
sífellt neikvæðar fréttir af því,“ segir
Baldvin Ringsted.
989
stunda nám við
Verkmennta-
skólann á
Akureyri