Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2007, Page 14

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2007, Page 14
ann hefur dansað frá því hann var lítill snáði á Indlandi. Þar varð Shiva, drott- inn dansaranna, honum kveikja að kraft- miklum og litríkum dönsum í anda þjóðar sinnar. Hann dansar berfættur og lætur tilefnið ráða stemmningunni hverju sinni, svo að engar tvær sýningar eru eins. Hann undirstrikar tónlistina með litlum bjöllum sem gefa okkur þá tilfinningu að við séum komin í hof Shiva í Himalaja-fjöllum. Sunny hvetur áhorfendur til að láta músíkina streyma gegnum líkamann og reyna þannig að skynja það Indland sem hann þekkir best. „Augu og hendur eignast mál,“ segir hann, „andinn fer á flug, hreyfingarnar mýkjast, tónlistin flæðir og líkami og sál verða eitt.“ Sunny kemur fram á Opnunarhátíð Hinsegin sunny Viltu vera me› atri›i í gle›igöngunni? Atriðum í gleðigöngunni hefur fjölgað ár frá ári og mörg hver hafa verið einstak- lega glæsileg. Til þess að setja upp gott atriði er mikilvægt að hugsa málin með fyrirvara. Góð atriði þurfa ekki að kosta mikla peninga. Gott ímyndunarafl og liðs- styrkur vina og vandamanna dugar oftast nær. Hinsegin dagar verða með verk- stæði í miðborginni síðustu þrjár vik- urnar fyrir hátíðina en nánari upplýs- ingar um húsnæðið er að finna á vef- síðunni (www.gaypride.is). Þar geta allir sem eru að setja saman atriði saumað og smíðað og nýtt sér það skraut sem er á boðstólum hverju sinni. Þau sem geta lagt til verkfæri, saumavélar og svo framvegis, vinsamlegast hafið samband við okkur. Þátttakendur sem ætla að vera með formleg atriði í göngunni verða að tilkynna það til Hinsegin daga fyrir 6. ágúst í síðasta lagi. Nauðsynlegt er að skrá atriði á vefsíðunni, www.gaypride. is, eða með því að senda tölvupóst á kaos@simnet.is eða heimirmp@internet. is Einnig má hafa samband við Katrínu göngustjóra í síma 867 2399 eða Heimi Má framkvæmdastjóra í síma 862 2868. Hægt er að sækja um styrki til einstakra gönguatriða. Byrjað verður að raða göngunni upp við lögreglustöðina á Hlemmi kl. 12, laugardaginn 11. ágúst og þeir þátt- takendur sem eru með atriði verða skilyrðislaust að mæta á þeim tíma. Gangan leggur stundvíslega af stað kl. 14 og bíður ekki eftir neinum. Do you want a float or space in the parade? This year’s Reykjavík Gay Pride Work- shop will be operating as previous years. It is located in the center of town, close to Hlemmur Square and the Police Station. There you can build your float or make your costumes. Those who wish to perform a number in the parade, please register before 6 August. You can register on the website www.gaypride. is, from the link “Parade Application” at the English version of the website, or send an e-mail to Katrín, kaos@simnet. is or Heimir, heimirmp@internet.is. Please inform us how many people will be participating in your number and whether it will involve a float or a car. We will also need the name, address and phone number of the contact person in charge. Participants please meet at 12 noon on Saturday 11 August by the Police Station at Hlemmur. The parade starts at 2 p.m. sharp. daga í Loftkastalanum 10. ágúst og dansar að sjálfsögðu niður Laugaveg í gleðigöng- unni 11. ágúst. Inspired by ancient Indian Lord of Dances, Shiva, and his Holy Dances for all occasions of Life, Sunny has, since his very childhood, mastered how to spread positive energy and relaxation to people through his energetic dances with varying styles, colors and emotions. Sunny, who now lives in Belgium, will be performing at the Opening Ceremony at Loftkastalinn Theater, Friday 10 August, and he will of course delight us with his dances in the Pride Parade, Saturday 11 August. H 14

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.