Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2007, Síða 39

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2007, Síða 39
réttur yrði til þess að við byrjum enn og aftur að draga fólk í dilka – hvað þá? Eins og það er mikilvægt að allar þær lesbíur sem langar til að sinna móðurhlut- verkinu fái hindrunarlaust að gera það, þá væri það hörmulegt ef þessi nýfengni réttur yrði til þess að til yrðu tveir hópar sam- kynhneigðra kvenna, sá æðri, sem ræktar móðurhlutverkið, og sá óæðri sem vogar sér að afþakka þetta hlutverk. Á sama hátt þætti mér það hörmulegt ef nýfenginn hjúskapar- réttur samkynhneigðra yrði til þess að til yrðu tveir flokkar, annars vegar fyrsti flokk- ur, hommar og lesbíur í hjúskap, og hins vegar þau sem ekki vilja, geta eða kæra sig um það lífsform. Ef slíkir flokkadrættir tækju að móta gildis- mat samkynhneigðra og fjölskyldna þeirra væri það ekkert annað en dapurlegt bergmál af hinu gamla gagnkynhneigða gildismati sem að okkur er rétt – að mæður séu merki- legri en aðrar konur, að hjón séu merkilegri en stakir ein- staklingar. Látum vera þótt við flokkum kartöflur og rófur, en við setjum ekki manneskjur í gæðaflokka. Ríkari og frjálsari manneskjur Ef við berum vit og gæfu til að sjá í gegnum þau margvíslegu kúgunarferli, sem enda- laust er þrýst yfir okkur og vinna gegn þeim, þá er ástæða til að hlakka til framtíðarinnar. Sú vinna er hlutverk allra manna og ég er ekki frá því að mörgu gagnkynhneigðu fólki fyndist það verða ríkari og frjálsari manneskjur við að fá að taka þátt í slíkri gagnrýni á menningu okkar allra. Ég held með öðrum orðum að eitt af brýn- ustu og skemmtilegustu verkefnum lífsins sé að vinna gegn hinu gagnkynhneigða reglu- veldi sem gegnsýrir lífið. Eftir því sem þessu verkefni þokar áfram munu okkur bjóðast betri og fleiri möguleikar til að velja hver við viljum vera, og til að vera metin fyrir það sem við erum og gerum, en ekki fyrir það sem við ættum að vera og ættum að gera. Thorvaldur Kristinsson is a writer and editor in Reykjavík. He has been a lead- ing figure in the lesbian and gay rights movements in Iceland for twenty five years. In addition to his political activ- ism, his contribution to the lesbian and gay cause includes books and numer- ous articles and lectures. Here he remi- nisces the first big Gay Pride parade in Reykjavík in the year 2000 and its impact on Icelandic community and social values.

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.