Bæjarins besta - 01.06.2005, Page 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk
Miðvikudagur 1. júní 2005 · 22. tbl. · 22. árg.
Unnur Lilja Þórisdóttir dux scholae
Menntaskólanum á Ísafirði var slitið við hátíðlega og afar fjölmenna athöfn í Ísafjarðarkirkju á laugardag. Alls voru 54 nemendur brautskráðir frá
skólanum að þessu sinni og hafa því 74 nemendur brautskráðst á þessu starfsári sem er mesti fjöldi frá stofnun skólans. Í máli Ólínu Þorvarðardóttur
skólameistara kom fram að útskriftarhópurinn nú væri einn sá al glæsilegasti sem skólinn hefur brautskráð á undanförnum árum. 22 stúdentar fengu fyrstu
einkunn. og sex voru með fyrstu ágætiseinkunn yfir 9,0. Þá var dúxinn í ár með óvenju háa meðaleinkunn eða 9,61. Dúxinn í ár er Unnur Lilja Þórisdóttir
frá Ísafirði. Fjölmennt útskriftarhóf fór fram á laugardagskvöld í íþróttahúsinu á Torfnesi. Auk útskriftarnema og fjölskyldna þeirra voru þar saman
komnir nokkrir afmælisárgangar. Meðfylgjandi mynd af stúdentunum tók Birgir Þór Halldórsson. Nánar má lesa um skólaslit Menntaskólans á bls. 4.
Þrír landsliðsmenn á móti grunnskólanemum
Nýr sparkvöllur var opnaður
með pompi og prakt á Þingeyri
í síðustu viku. Eyjólfur Sverr-
isson, fyrrum landsliðsmaður
og atvinnumaður í knatt-
spyrnu, klippti á borðann
ásamt Ástey Gyðu Gunnars-
dóttur, formanni nemendaráðs
Grunnskólans á Þingeyri.
Liðsmenn íþróttafélagsins
Höfrungs og grunnskólabörn
skoruðu svo á gesti í knatt-
spyrnuleik. Var því sett saman
lið með Eyjólfi Sverrissyni,
Birni Helgasyni íþróttafulltrúa
Ísafjarðarbæjar, Jakobi Skúla-
syni fulltrúa KSÍ, Halldóri
Halldórssyni, bæjarstjóra Ísa-
fjarðarbæjar og Guðna Guðna-
syni starfsmanni VÍS.
„Leikar fóru þannig að gest-
irnir unnu 3-1 enda voru þrír
landsliðsmenn í því liði.
Landsliðsmennirnir eru að
sjálfsögðu þeir Eyjólfur Sverr-
isson, Jakob Skúlason og
Björn Helgason. Þetta var
mjög skemmtilegt og algjör-
lega óvænt“, segir Sigmundur
Þórðarson, formaður Höfr-
ungs. Þá var Höfrungi og
grunnskólanum gefnir boltar
að gjöf og að athöfn lokinni
buðu styrktaraðilar sparkvall-
arins upp á veitingar.
„Það ríkir mikil ánægja með
völlinn og hann er nú þegar
mikið notaður. Skólakrakk-
arnir leika sér á honum í frí-
mínútum og fullorðna fólkið
nýtir sér hann á kvöldin“, segir
Sigmundur. Gerð vallarins er
hluti af sparkvallarátaki Knatt-
spyrnusambands Íslands sem
útvegaði gervigras vallarins,
en Ísafjarðarbær stóð straum
af öðrum kostnaði sem áætl-
aður var um 4,8 milljónir. Margir komu að gerð sparkvallarins.
22.PM5 6.4.2017, 09:371