Bæjarins besta


Bæjarins besta - 01.06.2005, Page 3

Bæjarins besta - 01.06.2005, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2005 3 AUGLÝSING UM BREYTINGU Á AÐAL- SKIPULAGI ÍSAFJARÐAR 1989-2009 Í samræmi við 2. mgr. 21. gr. skipu- lags og byggingalaga nr. 73/1997 með síðari breytingum er hér með auglýst tillaga að breyttu aðalskipulagi Ísa- fjarðar 1989-2009 með áorðnum breyt- ingum. Tillagan tekur til breytinga á svæði sunnan Tunguár og vestan við Skutulsfjarðarbraut og felur í sér eftir- farandi breytingar: 1) Verslunar- og þjónustureitur er stækkaður til norðurs á kostnað reits fyrir „opinberar byggingar.“ 2) Vegtengins við Skutulsfjarðarbraut er færð til norðurs og gerð að T-gatna- mótum. 3) Suðausturhluta verslunar- og þjón- ustusvæðis er breytt í „atvinnusvæði“ til samræmis við þá starfsemi sem fyrir er. 4) Landnotkunarreitur fyrir íbúða- svæði er lagfærður til samræmis við þegar samþykkt deiliskipulag. Breytingatillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofunum í Stjórnsýsluhús- inu á Ísafirði frá og með föstudeginum 3. júní 2005 til og með föstudeginum 24. júlí 2005. Samtímis breytingu á aðalskipulagi er auglýst breyting á deiliskipulagi sem tekur til færslu á tengingu Tungu- brautar við Skutulsfjarðarbraut, stækk- un lóðarinnar að Skeiði 1 og heimildar til eldsneytissölu á henni. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við aðalskipulags- breytingartillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til föstudagsins 24. júní 2005. Skriflegum athugasemd- um skal skilað á bæjarskrifstofur Ísa- fjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu, Hafn- arstræti 1, Ísafirði. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna, teljast henni samþykkir. Ísafirði, 26. maí 2005, Skipulags- og byggingarfulltrúi. Komur sérfræð- inga til Ísafjarðar Þóra Gunnarsdóttir, augnlæknir verður með móttöku á Ísafirði dagana 6.-10. júní. Davíð Arnar, sérfræðingur í hjartasjúkdóm- um verður með móttöku á Ísafirði dagana 8.-10. júní. Tímapantanir eru frá og með 2. júní í síma 450 4500 á milli kl. 8-16 alla virka daga. Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur víða á norð- anverðum Vestfjörðum. Eins og venja er fara hátíðarhöldin að mestu fram á laugardag. Á Flateyri verður boðið upp á kappróður, koddaslag, keppni í sjómanni, flekahlaup, reipi- tog og margt fleira. Um kvöld- ið verður svo haldinn sjó- mannadansleikur á skemmti- staðnum Vagninum. Á Suðureyri verður kapp- róður klukkan 16 á laugardag. Klukkan 20 verður hátíðar- kvöldverður í félagsheimili staðarins og dansleikur í beinu framhaldi af honum þar sem Baldur og Margrét skemmta. Á sunnudag verður sjómanna- dagsmessa klukkan 13.30 en skömmu áður verður gengið fylktu liði til kirkju frá Bjarna- borg á Suðureyri. Klukkan 16 verður boðið upp á skemmtun á hafnarsvæði staðarins og klukkan 20 verður siglt með gesti um fjörðinn. Í Bolungarvík hefst dagskrá á laugardag. Klukkan 10.30 verður farið í siglingu á Einari Hálfdáns og Þorláki, en hátíð- arhöld við höfnina hefjast kl. 13.30. Þar verður boðið upp á kappróður, belgjaslag, fiska- sýningu og leiki fyrir börnin. Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir á hafnarsvæðinu og sýndar verða björgunaræfing- ar. Um kvöldið verður dans- leikur í Víkurbæ með hljóm- sveitinni Brimkló með Björg- vini Halldórssyni í broddi fylk- ingar. Boðið verður upp á hlað- borð í húsinu á undan dansleik og verða rútuferðir frá Ísafirði, Súðavík, Suðureyri og Flat- eyri. Nauðsynlegt er að panta sæti í síma 456-7908. Á sunn- dag verður skrúðganga frá Brimbrjótssundi kl. 12.15 og messa í Hólskirkju klukkan 13. Kl. 15 verður boðið upp á kaffiveitingar, hátíðarræðu, verðlaunaafhendingu og skemmtun í Víkurbæ. Hátíðarhöld vegna sjó- mannadags verða vegleg á Þingeyri. Á laugardag verður dagskrá með hefðbundnu sniði, kappróður, koddaslagur, reipitog og leikir. Þyrla Land- helgisgæslunnar kemur í heimsókn upp úr kl. 14. Um kvöldið verður matarboð í fé- lagsheimili staðarins og munu kaffibrúsakarlarnir troða upp með glensi og gríni. Að loknu borðhaldi verður dansleikur með Hljóðkútunum. Á sunnu- dag verður messa kl. 15 og kaffisala björgunarsveitarinn- ar Dýra í beinu framhaldi af henni. Á Ísafirði verður farið í sigl- ingu kl. 10.30 á laugardag. Kl. 14 verður boðið upp á koddaslag og fleira á höfninni. Á sunnudag verður messa í Hnífsdalskapellu kl. 9 og í Ísa- fjarðarkirkju kl. 11. Strax að lokinni messu verður nýupp- gerð sjómannastytta Ísfirðinga afhjúpuð á Eyrartúni. Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur víða um Vestfirði Viðamesta dagskráin í Bolungarvík Gagnvirkt sjónvarp sem Síminn er þessa dagana að kynna viðskiptavinum sínum verður í bili aðeins í boði á Akureyri og Húsavík utan suð- vesturhorns landsins að sögn Evu Magnúsdóttur kynningar- fulltrúa Símans. Undanfarna mánuði hefur Síminn byggt upp dreifikerfi sjónvarps með ADSL tækni á landsbyggð- inni. Geta þeir sem þá tækni nýta sér horft á 10 sjónvarps- stöðvar í stafrænum gæðum. Nú er Síminn að kynna nýja þjónustu sem er svokallað gagnvirkt sjónvarp þar sem meðal annars verður hægt að panta sér áhorf á ákveðnum kvikmyndum ásamt mörgum örðum möguleikum. Þá verður einnig hægt að fjölga sjón- varpsrásum í allt að 60. Þessi þjónusta verður þó eins og áður sagði aðeins í boði á suðvesturhorni landsins og auk Akureyrar og Húsa- víkur. Fleiri staðir njóta hennar ekki þar sem ekki er til staðar nægileg bandbreidd til stað- anna. Eva Magnúsdóttir segir að verð á bandbreidd hamli því að ekki sé hægt að auka bandbreiddina til fleiri staða í bili og ekki sé hægt að segja til um hvenær það verði mögu- legt. Þegar sjónvarpsútsendingar Símans á höfuðborgarsvæðinu hefjast með ADSL tækni hafa um 93% landsmanna aðgang að þessari nýju tækni þótt úr- val stöðvannna verði misjafnt. – hj@bb.is Ónóg bandbreidd hamlar gagn- virku sjónvarpi á landsbyggðinni Veitingamaðurinn á flugvell- inum greiðir með vatnsglasinu Flugfarþegar sem notið hafa veitinga á Flugbarn- um á Ísafjarðarflugvelli hafa undanfarna daga rekið upp stór augu þegar þeir hafa lesið skilti þar sem stendur að Flugbarinn greiði 10 krónur með hverju vatnsglasi sem gest- irnir drekka. Einnig fá eldri borgarar ókeypis kaffi kjósi þeir svo. Jón Fanndal Þórðarson veitingamaður segist hafa viljað ganga á undan með góðu fordæmi hvað kaffi- veitingar til aldraða varð- ar. „Ég er formaður félags eldri borgara á Ísafirði og því fannst mér ekki annað hægt en að bjóða öldruð- um ókeypis kaffi og ég vona að aðrir geri slíkt hið sama“ segir Jón Fanndal. En hvernig í ósköpunum datt honum í hug að greiða með hverju vatnsglasi sem hann réttir viðskiptavinum sínum. „Við Ísfirðingar eigum besta vatn í heimi og enginn drykkur er hollari en vatnið. Ég vil með þessu hvetja til aukinnar vatns- neyslu ungra sem ald- inna“, segir Jón Fanndal. Hann segir gesti verða hálf vandræðalega í fyrstu þegar þeir átta sig á því að þeir fá greitt fyrir að drekka vatn. „Margir vilja ekki þiggja tíkallinn og því hef ég komið upp bauk frá Rauða krossinum og þangað renna þeir tíkallar sem fólk vill ekki taka við. Þannig getur fólk drukkið besta vatn í heimi og um leið hjálpað þeim sem eru hjálpar þurfi“, segir Jón Fanndal Þórðarson. – hj@bb.is Jón Fanndal veitingamaður með auglýsingarnar um vatnið og kaffið. Í baksýn er kona hans Margrét Magnúsdóttir. Mynd: Þorsteinn J. Tómasson. 22.PM5 6.4.2017, 09:373

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.