Fréttablaðið - 04.02.2021, Side 6

Fréttablaðið - 04.02.2021, Side 6
Vottar látnum félaga virðingu Lögreglukona vottar Brian D. Sicknick, látnum félaga sínum, virðingu við minningarathöfn sem fram fór í Washington, höfuðborg Bandaríkj- anna, í gær. Sicknick var 42 ára gamall þegar hann lést af sárum sem hann hlaut við störf sín við þinghúsið í Washington þegar árás var gerð á það þann 6. janúar síðastliðinn. Fimm létu lífið í árásinni, Brian D. Sicknick og tvær konur og tveir karlar sem tóku þátt í árásinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY ÖSKUDAGSFJÖR í Hókus Pókus! VIÐSKIPTI Lín ey Sif Sand holt vann sem f lug freyja hjá Icelandair frá árinu 2013 og sam hliða því vann hún sem verk taki í f lutnings þrifum. Þegar hún missti vinnuna hjá Ice­ landair á síðasta ári á kvað hún að kýla á sjálf stæðan rekstur í þrifum sem hana hafði lengi dreymt um. „Ég var alltaf að hugsa hvort ég ætti að stofna fyrir tæki í kringum þrifin og fara í sjálf stæðan rekstur en þorði því aldrei því ég er með tvö börn. En svo á kvað ég að taka séns­ inn þegar það var ljóst í hvað stefndi í þessum heims far aldri og á kvað að kýla á þetta og stofnaði því LS þrif í apríl,“ segir Lín ey Sif. Spurð hvers vegna hún valdi þrif segir Lín ey Sif að eftir að hún byrjaði að taka að sér f lutnings þrif á milli f lugferða hafi það f ljót lega farið að spyrjast út. „Ég held að mörg fyrir tæki sem taka að sér til dæmis sam eignar þrif séu að gefa sér of lítinn tíma í verkin til þess að reyna að vera ó dýrastir. Ég finn að það er ekki alltaf það sem fólk vill. Heldur vill það frekar borga meira og fá al menni lega þjón­ ustu og vönduð þrif,“ segir Lín ey Sif. Hún segir að þegar CO VID­far­ aldurinn skall á hafi hún þurft að byrja að skoða hvernig væri hægt að bæta sótt hreinsun við þrifin sem hún sinnti í fyrir tækjum. Hún hafi keypt fimm eða sex græjur héðan og þaðan til að reyna að finna þá einu réttu og fundið loks Vector Fog vélina. Vélin er notuð í svo kallaða þoku­ sótt hreinsun sem sótt hreinsar venju legt her bergi eða svæði á nokkrum mínútum. Það má nota tækið til að sprauta yfir tæki eins og tölvur, pappír og aðra yfir borðs­ fleti án þess að það verði blautt eða það hafi skað leg á hrif. Þá stuðlar að ferðin einnig að bættu and rúms­ lofti. Vélin er þróuð af fyrir tæki sem er frá Suður­Kóreu en er með bæki stöðvar í Banda ríkjunum. Hún segir að tækjunum fylgi allar rétt­ ar merkingar og leyfi fyrir Ís lands­ markað. Hún segir að vélin sé alls ekki hönnuð fyrir CO VID­19 heldur hafi hún verið búin til til að bæta and rúms loft með því að drepa in­ f lúensu og kvef pestir á spítölum og leik skólum og stöðum þar sem mikið marg menni er. „Í skólum og leik skólum er erfitt að taka einn og einn hlut og sótt hreinsa, en með græjunni er hægt að úða yfir allt. Það þarf svo ekki að þurrka neitt upp því hún gufar bara upp. En nær samt að smjúga alls staðar inn á milli,“ segir Lín ey. „Maður er að átta sig á því núna að það er margt af þessu, sem við erum að gera í sótt vörnum, sem við ættum alltaf að gera. Ég hef til dæmis heyrt frá World Class að þau ætli að halda á fram að nota vélina,“ segir Lín ey Sif. lovisa@frettabladid.is Þrifadraumurinn varð að veruleika í COVID Lín ey Sif Sand holt missti vinnuna sem flugfreyja hjá Icelandair í fyrra. Hún tók að sér flutningsþrif. Í leit sinni að réttri sótthreinsigræju fann hún sótt- hreinsibyssu frá Suður-Kóreu sem er nú notuð víða. Lét drauminn rætast. Líney sýnir virkni sótthreinsibyssunnar með því að úða á stiga á hóteli. Hana hafði alltaf langað að fara í sjálfstæðan rekstur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Meira á frettabladid.is Ég hef til dæmis heyrt frá World Class að þau ætli að halda á fram að nota vélina. Lín ey Sif Sand holt, athafnakona COVID-19 Yfirvöld í Sviss hafa neitað að samþykkja bóluefni Oxford­ háskóla og AstaZeneca við COVID­ 19. Þau segja ekki nægar upplýsing­ ar liggja fyrir um virkni þess. Þetta er fyrsta ríkið á meginlandi Evrópu sem hafnar að veita bóluefninu markaðsleyfi. Heilbrigðiseftirlit Sviss telur að frekari rannsókna sé þörf á gagn­ semi bóluefnisins en þessi ákvörð­ un þykir koma á óvart, samkvæmt frétt Financial Times. Áður hafði lyfjaeftirlitsstofnun Evrópusam­ bandsins heimilað notkun þess en Sviss er ekki hluti af sambandinu. Yfirvöld í Sviss vilja bíða eftir nið­ urstöðum úr tveimur klínískum rannsóknum á bóluefninu sem nú standa yfir í Norður­ og Suður­ Ameríku. – þp Sviss segir nei við AstaZeneca Sviss nesk yfir völd hafa sam þykkt notkun á bólu­ efnum BioNT ech og Pfizer. ÍTALÍA Sergio Mattarella, forseti Ítalíu, hefur beðið Mario Draghi að taka við embætti forsætisráðherra í ljósi stjórnarkrísunnar í landinu. Draghi, gjarnan kallaður Súper Maríó, var áður seðlabankastjóri Ítalíu og forseti Seðlabanka Evrópu. Stjórn Giuseppe Conte féll um miðjan janúar þegar f lokkurinn Italia Viva gekk úr samstarfinu vegna deilna um efnahagsmál. Far­ aldurinn og efnahagsaf leiðingar hans hafa á fáum stöðum bitið eins fast og á Ítalíuskaga. Conte og leið­ togar stjórnarflokkanna hafa ekki getað komið sér saman um nýja stjórn síðan þá. Í stað þess að boða til kosninga, rúmlega tveimur árum á undan áætlun, taldi Mattarella vænlegra að mynda stjórn undir utanþings­ ráðherra til þess að koma landinu yfir hjallann. Stjórnin yrði mynduð sem nokkurs konar neyðarstjórn og yrði hvorki til hægri né vinstri í pólitík. – khg Súper Maríó leysir vandann Mario Draghi talaði við blaðamenn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Stjórn Conte féll um miðjan janúar þegar flokk­ urinn Italia Viva gekk úr henni. COVID-19 Sérfræðingar frá Alþjóða­ heilbrigðismálastofnuninni, WHO, heimsóttu í gær veirurannsóknar­ stofu í Wuhan í Kína með það að markmiði að finna uppruna kóróna veirunnar. Þetta kemur fram á vef Reuters. Uppi hafa verið kenningar um að kórónaveiruna megi rekja til rann­ sóknarstofu í Wuhan en almennt er þó talið að veiran eigi uppruna sinn í leðurblökum. Þaðan hafi hún bor­ ist í önnur dýr og því næst í menn. Sérfræðingar WHO vildu lítið tjá sig um heimsóknina, en Thea Fisher, einn sérfræðinganna, sagði mörgum og stórum spurningum ósvarað. Hún vildi ekki tjá sig um það hvort sérfræðingarnir hefðu orðið einhvers vísari fyrsta daginn í Whuhan. Sérfræðiteymið mun verja tveimur vikur við rannsóknir á svæðinu. – bdj WHO heimsótti Wuhan-borg 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.