Fréttablaðið - 04.02.2021, Page 12

Fréttablaðið - 04.02.2021, Page 12
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Af hverju að fara út á götu þegar stór- hætta er á að vera lúbarinn af lögreglu og hugsanlega handtekinn? Þetta er ekki bara óend- anlega dapurt heldur stórhættu- legt út frá hagsmunum heildar- innar. Það er ríkt í eðli manneskjunnar að hugsa fyrst og fremst um eigin hag og hags-muni. Erfitt er að fordæma hana fyrir það. Lífið er stutt og freistandi að líta svo á að best sé að leggja sig fram við að gera eigið líf eins þægilegt og mögulegt er. Þannig hugsum við flest, mjög skiljanlega. Það gerist þó furðu oft að manneskjan lætur hagsmuni sína víkja, skeytir litlu um eigin velferð og virðist tilbúin að leggja allt í sölurnar, jafnvel eigið líf, fyrir baráttu sem hún trúir á. Umheimurinn hefur lengi fylgst með framgöngu rússneska stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalnís sem var byrlað eitur fyrir nokkrum mánuðum í Rússlandi. Hann féll í dá, var f luttur á sjúkrahús í Þýskalandi, náði bata og sakaði rússnesk yfirvöld um að hafa eitrað fyrir sér. Þau sóru það vitanlega af sér, eins og þeirra var von og vísa. Navalní, þessi sterki og þolni andstæðingur Pútíns, ákvað að snúa til Rússlands, þrátt fyrir að vita að þar fengi hann ekki blíðar móttökur. Við heimkomuna var hann snarlega handtekinn fyrir að hafa rofið skilorð. Honum hafði sem sagt láðst að tilkynna sig á lög- reglustöð í Rússlandi, eins og honum bar að gera mánaðarlega þar sem hann var með dóm á bakinu fyrir svokölluð „fjársvik“. Það blasir við öllu raun- sæju fólki að erfitt er fyrir mann að rölta inn á lög- reglustöð í Rússlandi þegar hann liggur fárveikur á sjúkrahúsi í allt öðru landi. Rússneskum yfirvöldum stendur þó hjartanlega á sama um þessa staðreynd, í huga þeirra skiptir öllu að þagga niður í þessum ein- beitta andstæðingi Pútíns. Þau hafa nú dæmt hann í fangelsi og vona um leið að draga ekki einungis mátt úr honum heldur einnig stuðningsmönnum hans. Undanfarið höfum við séð á sjónvarpsskjáum rússneskan almenning, að stórum hluta ungt fólk, þyrpast út á götur til að styðja Navalní. Þessir einstaklingar vissu nákvæmlega hverju þeir gætu átt von á. Heppnin ein myndi ráða því hvort þeir slyppu við handtöku og barsmíðar lögreglunnar. Í aðstæðum eins og þessum myndi enginn álasa ein- staklingi fyrir að skýla sér á bak við hugsunina um að hver sé sjálfum sér næstur. Af hverju að fara út á götu þegar stórhætta er á að vera lúbarinn af lögreglu og hugsanlega handtekinn? Er ekki bara best að sitja heima og láta eins og ekkert sé? Það þarf gríðarlegt hugrekki til að snúa aftur til lands síns og mæta yfirvöldum sem vilja mann feigan. Það gerði Navalní. Það þarf mikið hugrekki til að mótmæla handtöku Navalnís þegar hrottalegar barsmíðar og jafnvel handtaka bíður þess sem það gerir. Það hugrekki hefur rússneskur almenningur sýnt í ríkum mæli. Umheimurinn, sem oft kýs að líta undan þegar vondir hlutir gerast, hefur ekki horft þegjandi upp á fangelsun Navalnís og handtökur og barsmíðar á rússneskum almenningi. Ráðamenn víða um heim krefjast þess að Navalní verði látinn laus. Þar á meðal er utanríkisráðherra okkar, Guðlaugur Þór Þórðarson. Þar hlýtur hann að tala í nafni okkar allra. Hugrekki Það hefur verið lærdómsríkt að taka þátt í vinnu formanna allra stjórnmálaflokka um breytingar á stjórnarskrá. Á köflum var vinnan vönduð, jafnvel skemmtileg þótt dapurleikinn hafi einkennt síðustu daga vinnunnar. Þegar blákaldur veruleiki og hagsmuna- pólitík stjórnarheimilisins spilaði sterkar inn í vinnuna. Í upphafi var sammælst um að ræða afmörkuð svið stjórnarskrárinnar og að um hvert og eitt yrði flutt sér- stakt þingmál, með annaðhvort breiðri sátt eða auknum meirihluta. Ákvæði um framsal og þjóðaratkvæða- greiðslur hunsaði formaður VG þrátt fyrir samkomu- lag um annað og leit algerlega fram hjá skýrum vilja almennings um jöfnun atkvæðisréttar. Eitthvað sem ætti ekki að koma á óvart en lengi skal manninn reyna. Ég tók samt sem áður þátt í vinnunni og lýsti yfir að ég gæti auðveldlega verið sammála þingmálum sem snerta íslenskuna, umhverfismál og svonefndan forsetakafla enda tel ég þau skref í rétta átt. Betra væri að ganga hreint til verks um mína afstöðu í stað útpældrar leikjafræði. Enda mikið í húfi. Auðlindaákvæði formanns VG gat ég hins vegar ekki með nokkru móti stutt meðan ekki væri ætlunin að virkja þjóðareignina. Ef ekki á að breyta neinu og festa frekar í sessi rétt útgerða yfir fiskveiðiauðlindinni er best að segja það hreint út. Hér gæti orðið óafturkræft tjón. Í stjórnarskrá verða sett falleg orð um þjóðareign sem hvorki breytir né treystir rétt þjóðarinnar yfir auðlindum sínum. Ákall þjóðarinnar eftir samráði var um virka og raunverulega þjóðareign, ekki sýndarmennsku. Þetta er óskatillaga íhaldsflokkanna og undirstrikar rækilega til hvers þessi ríkisstjórn var stofnuð. Til hvers refirnir voru skornir. Forsætisráðherra ætlar að selja þjóðinni að setja upp öryggistæki um allt hús en lætur ekki rafhlöðurnar fylgja með. Hún vísvitandi sleppir þeim. Veitir falska öryggiskennd. Þetta er ekki bara óendanlega dapurt heldur stórhættulegt út frá hagsmunum heildarinnar. Ef Alþingi breytir ekki frumvarpi VG er ljóst um hvað næstu kosningar munu snúast. Þá fær þjóðin tækifæri til að tryggja virka þjóðareign og rétta hlut sinn – eða festa í sessi óbreytt ástand. Reykskynjari án rafhlaðna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is Ó, guð! Yarr! Hafi einhverjir efast um að Pírötum sé ekkert heilagt eftir að þingmaðurinn Björn Leví Gunnarsson viðraði hugmyndir um breytingar á hjúskaparlögum þá þurfa þeir hinir sömu ekki að efast lengur því nú hafa Píratar endanlega afhjúpað sig með til- lögu um breytingu á lögum um þjóðsönginn þannig að flutn- ingur á sálminum í annarri mynd en hinni upprunalegu verði leyfður auk þess sem heimilt verði að nota Ó, guð vors lands í viðskipta- eða auglýsingaskyni. Gróflegar verður varla vaðið yfir helg vé á marglitum sokkunum. Vors lands. Yarr! Nokkur hætta hlýtur að vera á að aðrir flokkar taki undir þjóð- söng Pírata þar sem ýmis tilbrigði við lofsönginn gætu gagnast í kosningaáróðri. Inga Sæland gæti loksins sungið lofsönginn með sínu nefi í kosningakarókí. Augljóst framsóknarfæri er í því að fá Geirmund Valtýsson til þess að útsetja Ó, lands vors í skag- firskri sveiflu og aldrei að vita hversu mörgum atkvæðum Sam- fylkingin gæti landað með því að kyrja um átján rauð smáblóm með titrandi tár. Þó má treysta þingmönnum Miðflokksins til að standa áfram vörð um íslenska menningu og kristin gildi með því að tóna þjóðsönginn sem klaustursmunkar með gamla ómögulega laginu. Yarr! toti@frettabladid.is 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.