Fréttablaðið - 04.02.2021, Side 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
RYK framleiðir kvenfatnað og býður upp á einstaka, íslenska hönnun. Fyrirtækið
hóf að selja hönnun sína árið 2004
á Akureyri og því býr reksturinn
að mikilli reynslu í hönnun og
framleiðslu. Vörumerkið er orðið
nokkuð þekkt og kúnnahópurinn
verður sífellt stærri og fjölbreytt-
ari. Vörulína RYK samanstendur af
peysum, kjólum, buxum, yfir-
höfnum, fylgihlutum og fleiru.
„RYK er framleiðslu- og þjón-
ustufyrirtæki, en við framleiðum
allt í verslun okkar að Bæjarlind
1-3 í Kópavogi,“ segir Kristín
Kristjánsdóttir, stofnandi og
aðalhönnuður RYK. „Við leggjum
okkur mikið fram við gæði í frá-
gangi og að veita góða þjónustu og
fáum reglulega hrós fyrir góða og
persónulega þjónustu. Við lögum
sniðin okkar eins og hægt er að
þörfum íslenskra kvenna og því
sem þeim líður vel með að klæðast
og því finnast fjölbreyttar f líkur í
línunni okkar. Vörulínan er ekki
fjöldaframleidd og við gerum
okkar besta í að framleiða úr
síbreytilegu efnisvali.“
Einstakar flíkur í boði
„Allar RYK vörur eru framleiddar
á staðnum af mjög hæfu starfs-
fólki verslunarinnar. Við höfum
haldið okkar stefnu í framleiðslu
frá upphafi í stað þess að flytja inn
vörur að utan, enda finnst okkur
mikilvægt að halda íslenskri
hönnun og framleiðslu gangandi
og framleiða flíkur sem þú finnur
hvergi annars staðar í heiminum,“
segir Kristín. „Mikil vinna er lögð í
hverja flík og þær eru framleiddar
af mikilli natni af klæðskerum
verslunarinnar. Lögð er áhersla
á fjölbreytt efnisval sem kemur
bæði frá innlendum aðilum og svo
hinum ýmsu smærri aðilum í til
dæmis London og New York.
Við erum sífellt að fá konur til
okkar í verslunina sem voru alls
ekki á leiðinni til okkar, vissu ekki
af þessari verslun og höfðu aldrei
heyrt af henni – og ákveðin upp-
ljómun á sér stað. Flestar þessar
konur eiga svo viðskipti við okkur
í dag,“ segir Kristín. „Við viljum
ná til f leiri íslenskra kvenna því
það eru jú þær sem skapa okkur
atvinnu og við erum þakklátar
fyrir það. Að auki opnuðum við á
síðasta ári vefverslunina ryk.is þar
sem hægt er að kynna sér og versla
vörulínu RYK.“
Auðvelt að bregðast
við óskum
„Vörurnar eru framleiddar í tak-
mörkuðu upplagi og viðskipta-
vinir okkar verða ánægðari fyrir
vikið,“ segir Kristín. „En þar
sem þær eru í svo takmörkuðu
magni hanga flíkur yfirleitt bara
í skamman tíma frammi í verslun
þannig að oft þurfa viðskiptavinir
að bregðast hratt við til að tryggja
sér eintak.
Við viljum aðstoða konur að
finna sér tímalausa flík sem hægt
er að nota við hin ýmsu tilefni,
f lík sem stendur með þeim og
getur staðið af sér tískustrauma,“
útskýrir Kristín. „Þar eru notagildi
og gæði í efnisvali okkur mikilvæg.
Við þekkjum flíkurnar okkar út í
gegn og okkur þykir vænt um þær.
Þessi nálægð viðskiptavinarins
við hönnuðinn og framleiðandann
er einnig sjaldgæf í verslun í dag
og það gerir okkur mögulegt
að hlusta á viðskiptavininn og
bregðast f ljótt við þörfum hans
og óskum,“ segir Kristín. „Þar
sem allt er framleitt á staðnum er
einnig lítið mál að breyta og bæta
eftir þörfum viðskiptavina. Yfir-
leitt förum við strax í málið og í
mörgum tilfellum er það klárað á
meðan viðskiptavinur bíður.“
Bæði hversdags og spari
„Yfirleitt er fjöldinn allur af við-
burðum fram undan á þessum
tíma árs: þorrablót, fermingar og
árshátíðir, svo eitthvað sé nefnt.
Sökum aðstæðna í þjóðfélaginu er
hins vegar óvíst að einhverjar sam-
komur verði næstu mánuði. Það
eru samt blikur á lofti, dagurinn
er að lengjast og við Íslendingar
erum að standa saman og ná
góðum árangri í baráttunni við
faraldurinn. Það styttist því í að
smærri viðburðir fái grænt ljós, og
hver veit, kannski stærri viðburðir
líka,“ segir Kristín. „Okkur finnst
því mikilvægt að á svona tímum
minni maður á sig og láti vita að
vöruúrvalið hjá okkur er til staðar
hvort sem það er fyrir matarboð,
fermingar, giftingar, afmæli eða
hvað annað. Við viljum ná til f leiri
og bjóða alla velkomna í verslun
okkar og hvetjum fólk líka til að
skoða vefverslunina.
Vörulínan okkar er fyrir konur
á öllum aldri sem vilja eignast fal-
lega íslenska hönnun. Við eigum
fatnað fyrir öll tilefni sem hægt er
að klæða upp og niður. Flíkurnar
henta vel í hversdagsleikann sem
og fyrir sparilegri tilefni,“ segir
Kristín. „Það er til dæmis vin-
sælt hjá fermingarmömmum og
ömmum að finna sér f lík fyrir
ferminguna frá RYK. Einnig höfum
við hitt í mark hjá karlmönnum
þegar þeir vilja gleðja konurnar
í sínu lífi. Við veitum þeim góða
aðstoð og hjálpum við að útbúa
fallega gjöf.
Nálægðin við viðskiptavini
okkar er mikil í dag með tilkomu
og notkun samfélagsmiðla. Við
notumst við bæði Facebook og
Instagram og birtum allar nýjustu
vörur þar,“ segir Kristín. „Við
hvetjum því alla sem hafa áhuga
á að fylgjast með okkur að kíkja á
okkur þar og kíkja á vefverslunina
okkar líka.“
RYK býður alla velkomna í verslun-
ina að Bæjarlind 1-3, Kópavogi.
Opið er virka daga frá 11-18 og
laugardaga 11-16. Vefverslunina er
að finna á ryk.is.
RYK hóf að selja hönnun sína árið 2004 á Akureyri og framleiðir allt í versluninni. Kristín segir að mikil vinna sé
lögð í hverja flík og þær séu framleiddar af mikilli natni af klæðskerum verslunarinnar. Flíkurnar eru líka fram-
leiddar í takmörkuðu upplagi, þannig að þær finnast hvergi annars staðar í heiminum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Starfsfólkið hjá RYK vill aðstoða konur á öllum aldri við að finna sér
tímalausa og endingargóða flík sem hægt er að nota við hin ýmsu tilefni,
stendur með þeim og getur staðið af sér tískustrauma. MYND/AÐSEND
Þar sem allt er framleitt á staðnum er lítið mál að
breyta og bæta eftir þörfum viðskiptavina. Oft er það
klárað á meðan viðskiptavinur bíður. MYND/AÐSEND
Hjá RYK eru sniðin aðlöguð að þörfum íslenskra
kvenna og því sem þeim líður vel með að klæðast. Því
finnast fjölbreyttar flíkur í línunni. MYND/AÐSEND
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U R