Fréttablaðið - 04.02.2021, Síða 28

Fréttablaðið - 04.02.2021, Síða 28
Vetrarhátíðin í Hafnarfirði hefst í kvöld þegar Hamar-inn verður lýstur upp í litum vetrarhátíðar og listaverkum úr safni Hafnarborgar verður varpað upp á austurvegg listasafnsins. Andri Ómarsson, verkefnastjóri viðburða hjá Hafnarfjarðarbæ, heldur utan um dagskrána í ár. „Fyrir þau sem ekki vita þá er Hamarinn stórmerkilegt náttúru- fyrirbæri rétt hjá Flensborgarskól- anum. Þetta er friðlýst náttúru- vætti en uppi á Hamrinum er víðsýnt yfir höfuðborgarsvæðið. Best verður að sjá Hamarinn upplýstan frá miðbænum,“ segir Andri. „Austurveggur Hafnarborgar verður líka upplýstur með mynd- list. Við völdum listaverk eftir Eirík Smith, Gunnar Hjaltason og fleiri. Þetta eru grafíkverk sem varpað verður með ljósi á vegg- inn alla vetrarhátíðina,“ útskýrir hann. Snjallleiðsögn við útilistaverk Vegna sóttvarnaráðstafana er dagskráin í ár að mestu utandyra og því er áhersla á útilistaverk bæjarins. Bæjarbúar eru hvattir til að fara í göngutúr milli verkanna með snjallleiðsögn. „Hafnarfjörður er heilsubær og við erum alltaf að hvetja fólk til að vera á ferðinni, upplifa og njóta. Því þótti okkur tilvalið að vera með snjallleiðsögn við valin útilistaverk í miðbænum, sem byrjar við Bóka- safn Hafnarfjarðar og endar við Hafnarborg,“ segir Andri. Unnur Mjöll Leifsdóttir hefur séð um skipulagningu dagskrár- innar í Hafnarborg og er snjallleið- sögnin í samstarfi við bókasafn bæjarins. „Snjallleiðsögnin er prufu- verkefni hjá okkur. Okkur finnst gaman að geta notað tæknina og sameinað heilsueflandi samfélag og að upplifa listina,“ segir Unnur Mjöll. „Þau hjá bókasafninu komu til okkar með þá hugmynd að tengja bókmenntir við listaverkin. Við hvert listaverk er QR-kóði. Við kynnum listaverkið sjálft með texta og svo er kóðinn skannaður inn í síma og farið inn á hljóðlest- ur. Þau hjá bókasafninu hafa hand- valið texta sem passar við hvert verk. Við völdum listaverk sem eru nálægt okkar stofnunum. Þau eru í miðbænum og teygja sig aðeins út fyrir svo þetta er góð 30-40 mínútna ganga á milli verka.“ Tónleikar og fjölskyldusmiðja Á morgun klukkan 18.00 verða tónleikar í Hafnarborg með söngvaskáldinu Svavari Knúti. Þetta eru fimmtu tónleikarnir í tónleikaröðinni Síðdegistónar í Hafnarborg. Svavar Knútur kemur fram ásamt hljómsveit sem þau Ingibjörg Elsa Turchi á bassa, Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir á trommur og Andrés Þór á gítar skipa. Unnur segir að á efnis- skránni verði sannkölluð söngva- skáldaveisla en hljómsveitin mun leika mörg af helstu lögum Svavars, sem hafa notið mikilla vinsælda undanfarið. „Við megum vera með 40 gesti í númeruðum sætum, en tón- leikunum verður einnig streymt á Facebook og vefsíðunni okkar hafnarborg.is,“ segir hún. „Á laugardaginn verður svo fjölskyldusmiðja við Hafnar- borg. Þá geta börn og fullorðnir komið saman og fengið efnivið til að búa til sitt eigið listaverk. Við vonum að það verði gott veður svo hægt verði að hafa þetta úti. Við verðum með alls konar efnivið í boði. Pappír, við og límband. Það verður hægt að búa til mandölur og litla skúlptúra. Svo er hægt að taka mynd af listaverkunum og merkja þau með myllumerkinu #mitteigiðútilistaverk. Þá rúlla inn skemmtilegar myndir af því sem fólk er að búa til.“ Söngur og fjör í bílabíói Á laugardaginn verður einnig boðið upp á bílabíó á bílastæðinu við Flensborgarskólann í sam- starfi við Kvikmyndasafn Íslands. Þar verða sýndar tvær íslenskar kvikmyndir. Regína frá árinu 2001 verður sýnd klukkan 18.00 og Með allt á hreinu frá árinu 1982 klukkan 20.00. Myndirnar verða sýndar á hágæða 16 m² LED-skjá og verður hljóðinu streymt í útvarpið í bílunum á FM 106,1. „Við áttum frábært samstarf um bílabíó við Kvikmyndasafnið í fyrra. Þess vegna lá það í augum uppi að hafa það aftur. Við erum að færa okkur á stærra bílaplan svo fleiri komist, en Ester Bíbí Ásgeirs- dóttir hefur séð um skipulagningu á bílabíóinu,“ segir Andri. „Við vildum velja skemmti- legar myndir sem trekkja að og vonum að það myndist stemning í kringum þetta,“ segir Ester Bíbí. „Með allt á hreinu er auðvitað orðin algjör klassík með mikilli tónlist og gríni. Maður horfir kannski ekki á hádramatískar myndir í bílabíói, svo okkur fannst tilvalið að sýna tónlistar- og söngvamyndir. Svo er örugglega fullt af ungu fólki sem hefur ekki séð Með allt á hreinu og myndi hafa gaman af að sjá hana í bíla- bíói,“ útskýrir Ester Bíbí. „Svo fannst mér Regína alltaf alveg frábær mynd. Hún virkaði fyrir mig sem foreldri og krökkum finnst hún mjög skemmtileg. Þetta er létt og skemmtileg mynd sem ég held að sé alveg kominn tími á aftur. Það er komin ný kynslóð af krökkum sem vita ekkert af henni. Regína er fullkomin fjölskyldu- mynd með krakka í aðalhlut- verkum og Baltasar Kormákur leikur krimmann.“ Ester Bíbí segir að lögin í Með allt á hreinu verði textuð svo allir geti sungið með í bílunum sínum. „Þar sem við getum ekki fagnað saman á tónleikum, þá getum við í það minnsta sungið saman í bílnum,“ segir hún og hlær. Gæsluaðilar verða á staðnum á meðan bílabíóið fer fram og aðstoða við uppröðun bíla. Allir eru velkomnir meðan pláss leyfir en fólk er beðið að halda sig í bíl- unum sínum. „Það er frábært að eiga samstarf við Kvikmyndasafnið þar sem það er staðsett hérna í Hafnarfirði, og koma á framfæri þessum lista- verkum frá þeim,“ segir Andri. „Við hlökkum svo bara til að taka á móti fólki á Safnanótt í vor, en henni hefur verið frestað þar til í maí þegar söfnin geta vonandi tekið á móti f leirum.“ Fjölbreytt útidagskrá í Hafnarfirði Dagskrá Vetrarhátíðar í Hafnarfirði hefst í dag en vegna sóttvarna verður hún með breyttu sniði í ár. Áhersla verður lögð á list í almannarými, útilistaverk, menningarmerkingar og ljóslistaverk. Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, Andri Ómarsson og Unnur Mjöll Leifsdóttir hafa undirbúið fjölbreytta dagskrá í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Fallegt útsýni frá Hamrinum sem verður upplýstur í kvöld.MYND/AÐSEND Útilistaverkið Úr fjötrum eftir Gest Þorgrímsson frá árinu 1992. MYND/SPESSI Hafnarfjörður er heilsubær og við erum alltaf að hvetja fólk til að vera á ferðinni, upplifa og njóta. Því þótti okkur tilvalið að vera með snjallleiðsögn við valin útilistaverk í miðbænum. Andri Ómarsson Við vildum velja skemmtilegar myndir sem trekkja að og vonum að það mynd- ist stemning í kringum þetta. Ester Bíbí Ásgeirsdóttir 8 KYNNINGARBLAÐ 4 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U RVETRARHÁTÍÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.