Vinnan


Vinnan - 01.06.1943, Side 23

Vinnan - 01.06.1943, Side 23
JÓN SIGURÐSSON: Dýrtíðarráðstafanir stjórnarinnar í framkvæmd Eftir að núverandi ríkisstjórn tók við völduin,- kom hver auglýsingin eftir aðra, þess efnis, að blátt bann væri lagt við að selja hina og þessa vörutegund hærra verði en nánar var tiltekið, og virtist við fljótlegt yfir- lit, að um töluverða lækkun væri að ræða, sérstaklega á nauðsynjum, enda lækkaði vísitalan að mun, eftir s.l. áramót, og þar með fylgdi að sjálfsögðu lækkun kaups. Reynd manna varð þó sú, að meira varð vart kaup- lækkunar en lækkunar verðs á nauðsynjum, og þóttust menn eiga óhægra með, eftir en áður, að láta laun sín hrökkva til nauðsynlegustu útgjalda. Dæmi eru til um það — og þá sérstaklega utan af landi — að verð á einstökum vörutegundum hefur hækkað stórkostlega, þrátt fyrir allar auglýsingar um lianti ríkisstjórnar, viðskiptaráðs og verðlagsstjóra við hækkun verðs á hinum ýmsu vörutegundum. Nærtækasta og skýrasta dæmið um það, í hve mikl- Grundvöllur vísitölunnar rangur um ólestri þessi mál eru öll, er það sem nú skal greina: Til Þórshafnar komu kol seint í marzmánuði s.L, og voru þau seld fyrir kr. 287.00 — tvö hundruð áttatíu og sjö krónur — smálestin. Kolin, sem áður voru til, voru seld fyrir kr. 180.00, svo að þarna er um hækkun að ræða, sem nemur hvorki meira né minna en kr. 107.00 — eitt hundrað og sjö krónum á smálest. Af þessu eina dæmi má sjá, hversu hróplegum rang- indum Þórshafnarbúar eru beittir. A sama tíma sem kaup verkafólks og annarra laun- þega lækkar með lækkandi vísitölu, stórhækkar í verði ein af þeim vörutegundum, sem að töluverðu leyti hefur áhrif á vísitöluna. Kauplagsvísitalan er á hverjum tíma miðuð við verðlag hér í Reykjavík, en gildir við ákvörðun kaup- gjalds um land allt, og eru því launþegar úti á lands- byggðinni miklum órétti beittir, ef laun þeirra eiga að Reglugerð þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 16 26. febrúar 1943, um orlof, og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Félagsmálaráðuneytið, 19. maí 1943. Björn Þórðarson. -------------- Gunnl. E. Bríem. Eins og lögin og reglugerðin bera með sér, verða gefnar út orlofsbækur, sem hver maður og kona, sem vinnu stundar, á rétt á að fá afhentar ókeypis á næsta pósthúsi eða póstafgreiðslustöð. Bækurnar eru ekki enn fullgerðar, en munu koma mjög bráðlega og ætti verkafólk ekki að láta undir höf- uð leggjast að fá sér strax bók, þegar þær eru tilbúnar. Þá verður og fólk að gæta þess vel, að hafa alltaf or- lofsbókina við hendina, þegar tekið er við launum, því að atvinnurekendum ber skylda til að líma orlofsmerkin í hana, um leið og þeir greiða launin. Að sjálfsögðu má búast við, að við framkvæmd þess- ara laga komi fram ýmsir annmarkar í byrjun, og mun Alþýðusambandið reyna að fá úr þeim bætt, til þess að lögin verði í framtíðinni, og svo fljótt sem auðið er, verkafólki að þeirri réttarbót, sem til var ætlazt í byrjun. Til þess, að almenningur eigi þess sem beztan kost að kynna sér, hvaða réttindi og skyldur lögin hafa inni að halda, verða þau, ásamt reglugerðinni, prentuð í hverja orlofsbók og ætti fólk að kynna sér hvorttveggja vel. Þá er og í ráði, að hverri orlofsbók verði látið fylgja sérstakt blað með ýmsum skýringum, upplýsingum og leiðbeiningum viðvíkjandi orlofslögunum. I ÞINGTÍÐINDI 17. þings Alþýðusambandsins eru komin út, og hafa nú veriS send gegn póstkröfu til verkalýðsfélaga úti um land. Ætlazt er til, að hvert félag kaupi jafnmörg eintök og margir eru í stjórn þess, því nauðsynlegt er hverjum stjórnanda verka- lýðsfélags að vita um samþykktir þingsins og það annað, sem í Þingtíðindunum er. Nokkur félög í Reykjavík og Hafnarfirði, hafa nú þegar tekið sín eintök, en mörg eiga ótekið ennþá, og ættu þau að gera það sem fyrst. Þingtíðindin fást á skrifstofu sambandsins og kosta kr. 10.00 eintakið. VINNAN 95

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.