Heimilispósturinn - 16.12.1950, Síða 6

Heimilispósturinn - 16.12.1950, Síða 6
vertu, ég er nú hræddur um það. Eitt sinn hótaði skap- stirður stýrimaður að fleygja mér í hafið, ef ég hætti ekki þeim bölv. ósið að skilja eftir á skipshliðinni merki um þann ræfildóm minn að vera sjóveik- ur. Ég hefndi mín á stýrimanni — en jók jafnframt lífshættuna — með því að henda pípunni hans í hafið, enda var sú oft orsök sjóveikinnar. Ævintýri? Einkamál. Segist ekki. Síst af öllu blaðamanni. — Hvað geturðu sagt mér um siglingar Sambandsskip- anna. — Sambandið hefur rekið út- gerð eigin skipa síðan 1946 er það eignaðist Hvassafell. Leið- ir skipanna hafa legið víða, norður í Hvítahaf, suður til Krítar, austur í botn Finnaflóa og vestur . til Ameríku. Að meztu leyti hafa skipin stund- að flutning á þungavöru, þ. e. kolum, salti, sementi og timbri að landinu, en ýmsum afurðum frá því, svo sem saltfiski, síld, fiskimjöli, gærum og ull. Sam- bandið hefur lagt kapp á að koma aðfluttu vörunum sem mezt beint á neyzluhafnirnar, því öll umhleðsla er mjög dýr. I langflestum tilfellum hafa skipin orðið að koma á margar hafnir í hverri ferð. Slíkt er oft tafsamt, einkum á vetrum þeg- ar veður eru slæm, en hafnar- skilyrði víða bágborin, og skip- in full stór fyrir smáhafnir. Finnst okkur, sem á skipunum vinnum oft nóg um þegar við fréttum, að koma skuli á 15— 20 hafnir í sömu ferðinni, en óánægjan hverfur þegar við finnum að fólkið, einkum á smáhöfnum — fagnar skips- komu, og unnið er af því kappi við uppskipun, oft við hin verstu skilyrði, að aðdáunarvert er. Sem dæmi. um siglingar við ströndina má geta þess, að eitt sinn var aðfluttur farmur los- aður á 16 höfnum, en útflutn- ingsvaran lestuð á 20 höfnum í sömu ferðinni. I annað sinn kom skipið að landi á Djúpa- vogi, losaði fyrst þar, sigldi síðan til Reykjavíkur, þá vest- ur og norður fyrir, suður til Fáskrúðsfjarðar, til baka aftur norður, vestur og suður um til Reykjavíkur. Komið var á sam- tals 18 hafnir, og sigldar um 1880 sjómílur, en það er sama vegalengd og frá Reykjavík til Gíbraltar. Ótrúlegt en satt. — Hvað geturðu sagt mér um þitt eigið skip, Arnarfell? — Það er bráðum ársgamalt. Ágætis skip í alla staði. Ódýrt í rekstri eftir núverandi verð- lagi og kaupgjaldi. Hentugt flutningaskip, vel búið tækjum, og aðbúnaður um borð allur hinn bezti. En þetta kemur þú til með að reyna allt sjálfur ef þú ferð með í næstu ferð, eins og mér hefur borizt til eyrna. Einhvers staðar í Atlantshafinu skulum við halda upp á eins árs afmæli Arnarfells, sem þa mun verða búið að sigla um 40 þús- und mílur. Og suður við Grikk- landsstrendur skaltu fá tæki- færi til að tala heim til þín beint frá skipinu — kostar bara 13 krónur. Og nú ekki fleiri lof- orð, en blessaður mundu eftir að taka með þér sjóveikispillur, því hér eru þr'ir stýrimenn um borð, venjulega skapgóðir, — en, hver veit hvað fyrir getur komið ? 4 HEIMILISPÓSTURINN

x

Heimilispósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.