Heimilispósturinn - 16.12.1950, Side 11
I
Úr sænsku kvikmyndinni „Léttlyndi sjóliðinn".
rugl. Þetta hefur hún frá yður.
Hún hefur aldrei notað þessi orð
áður. Ég skal veðja að þér not-
ið þau daglega.
— Rugl, sagði Borten. — Ég
vil ekki sitja og hlusta á þennan
þvætting. Reynið þér að hypja
yður, eða . . .
— Eða! sagði Hammer blítt
og ísmeygilega.
— Eða ég fleygi yður út.
— Hahahahahaha, ja, þér
eruð ágætur herra Borten.
Borten stóð á fætur.
— Sitjið þér, öskraði Hamm-
er.
Borten settist. — Þér hljótið
að vera bandvitlaus, eða drukk-
inn, mælti Borten.
Tær eins og vatn og glamp-
andi algáður, svaraði Hammer.
Hlustið þér nú á. Kona mín hef-
ur farið upp í sumarbústaðinn
á hverjum laugardegi í sex vik-
ur. Hún kom alltaf til baka á
mánudögum. Ég var að hug-
leiða hvernig í ósköpunum á
því stæði að hún þyrfti svona
langan tíma til þess að koma
húsinu í lag. Við komum hing-
að upp eftir í gær, til þess að
vera hér í sumar, eins og venju-
lega. Ég fór í eftirgrennslan til
vissrar konu, sem á heima hérna
í nágrenninu. Mér veittist ekki
örðugt að afla mér nægrar vit-
neskju. Hún sagði mér að kon-
an mín hefði verið hjá yður á
hverju einasta laugardags-
kvöldi, og takið þér nú eftir,
hverja einustu laugardagsnótt,
herra Borten. — Þarna inni.
Hammer benti með skammbyss-
unni á svefnherbergið.
9
HEIMILISPÖSTURINN