Fréttablaðið - 09.02.2021, Side 2
Að meðaltali deyr fjórði
hver fjallgöngumaður sem
reynir við K2 fjallið.
Fastagestir skáluðu á Ölveri
Sportbarinn Ölver opnaði dyr sínar eftir margra mánaða lokun í gær. Fastagestir, sem og þeir sem finnst gaman að fara á barinn til að horfa á
íþróttir, mættu á leik Leeds-Crystal Palace í enska boltanum og skáluðu fyrir auknu frelsi. Töluverður undirbúningur hafði staðið fyrir opnunina
en Ölver getur skipt staðnum upp í mörg sóttvarnahólf. Barinn opnaði klukkan ellefu og var rennirí af fólki allan daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
SAMFÉLAG „Við vitum að núna þegar
myrkrið skellur á í fjallinu er lítil
von um að John finnist á lífi. Hugur
okkar er hjá John Snorra, Ali og Juan
Pablo,“ segir Lína Móey Bjarna-
dóttir, eiginkona Johns Snorra
Sigurjónssonar fjallgöngumanns í
tilkynningu.
Enn hafði ekkert spurst til Johns
Snorra þegar Fréttablaðið fór í
prentun í gærkvöldi. John Snorri
og félagar hans, Muhammad Ali
Sadpara og Juan Pablo Mohr, lögðu
af stað á topp K2 á fimmtudag. Þeir
skiluðu sér ekki í búðir á föstudag
líkt og gert var ráð fyrir og ekki
hefur sést eða spurst til þeirra síðan
klukkan fimm á föstudagsmorgun,
að íslenskum tíma.
John Snorri, sem á fimm börn,
gekk á topp K2 sumarið 2017 og
varð þá fyrstur Íslendinga til að
komast á topp fjallsins að sumri
til. Engum hafði tekist að komast
á topp K2 að vetrarlagi og stefndi
John Snorri að því að verða sá fyrsti
í heiminum til að komast þangað.
Þann sextánda janúar síðastliðinn
komust þó tíu nepalskir fjallgöngu-
menn í sögubækurnar þegar þeir
komust fyrstir á topp K2. Í samtali
við Fréttablaðið árið 2019 sagðist
John hafa sérstaka aðferðafræði
sem myndi nýtast honum við ferð
sína á fjallið, þá sagði hann ferðina
„stórt verkefni og gríðarlega áskor-
un“.
K2 er 8.611 metra hátt og er talið
eitt mannskæðasta fjall heims.
Fjallið er staðsett í Karakorumfjall-
garðinum í Pakistan og er stundum
nefnt Grimmafjall. Þegar John
Snorri og ferðafélagar hans lögðu
af stað upp fjallið voru þeir upp-
haf lega fjórir saman. Einn þeirra,
Sajid Ali Sadpara, sneri við á föstu-
daginn þegar súrefniskútur hans
hætti að virka. Þegar hann kom í
búðir sagði hann að hinir göngu-
mennirnir hefðu verið í góðu standi
þegar hann skildi við þá.
Síðast er vitað til Johns Snorra
á þeim stað á fjallinu sem oft er
kallaður f löskuhálsinn, eða dauð-
svæðið. Svæðið er í 8.211 metrar
hæð og þar er gríðarstór íshella sem
reglulega hrynur úr. K2 er töluvert
hættulegra fjall heldur en önnur
fjöll, líkt og til að mynda Everest.
Þar hefur dánartíðni verið í kring-
um eitt prósent síðan árið 1990 en
á K2 deyr að meðaltali fjórði hver
fjallgöngumaður sem reynir við
fjallið.
Aðstæður við fjallið hafa verið
gríðarlega erfiðar til leitar, vegna
slæms veðurs. Tvær þyrlur á vegum
pakistanska hersins tóku þátt í
leitinni í gærmorgun, en urðu frá
að hverfa vegna óveðurs. Á toppi
K2 getur orðið allt að 75 gráða frost.
Leitarteymi mun halda að nýju að
fjallinu í dag og leita að John Snorra,
Muhammad Ali Sadpara og Juan
Pablo Mohr Prieto.
Ferðamálaráðherra Pakistan
sagði á Twitter í gær að velt verði við
öllum steinum og notast verði við
bestu mögulegu tækni við leitina.
birnadrofn@frettabladid.is
Öll von talin úti fyrir
John Snorra og félaga
Ekkert hefur spurst til fjallgöngumannsins Johns Snorra Sigurjónssonar síðan
á föstudag. Hann var á leið á fjallið K2 ásamt tveimur öðrum. Á toppi fjallsins
er allt að 75 gráða frost. Eiginkona Johns segir ólíklegt að hann sé enn á lífi.
Aðeins fjórtán fjöll á allri jörðinni eru hærri en 8.000 metrar, árið 2019 kleif
John Snorri eitt þeirra, fjallið Manaslu í Nepal. MYND/KÁRI G. SCHRAM
COVID-19 Krár, barir, tækjasalir og
búningsklefar líkamsræktarstöðva
opnuðu aftur í gær eftir að nýjar
reglur um samkomutakmarkanir
tóku gildi. Enn eru í gildi grund-
vallarreglur um tveggja metra reglu
og grímuskyldu og samkomur mið-
ast enn við tuttugu manns. Fjölda-
takmarkanir eiga ekki við um börn
fædd 2005 eða síðar.
Í gær voru 28 einstaklingar í
einangrun hér á landi með virkt
COVID-19 smit og sólarhringinn á
undan greindist eitt innanlands-
smit og var sá smitaði í sóttkví við
greiningu. Þrettán lágu á sjúkra-
húsi vegna COVID-19 í gær, 21 var
í sóttkví.
Frá því að fyrsta smit greindist
á Íslandi í lok febrúar í fyrra hafa
verið staðfest 6.020 COVID-19
tilfelli hérlendis. Yfir 46 þúsund
manns hafa lokið sóttkví og tæp-
lega 268 þúsund sýni hafa verið
tekin innanlands. – bdj
Nýjar reglur
komnar í gildi
SAMFÉLAG Íbúar Vestmannaeyja,
Akureyrar og Eyjaf jarðar eru
jákvæðastir hvað varðar búsetu-
skilyrði, viðhorf til sveitarfélagsins
og hamingju. Íbúar Dalanna og
sunnanverðra Vestfjarða eru nei-
kvæðastir.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
könnunar landshlutasamtaka sveit-
arfélaga og Byggðastofnunar.
Við gerð könnunarinnar var
landinu skipt niður í 24 svæði og
var spurt um 40 atriði sem snerta
búsetuskilyrði. Meðal þess sem var
spurt um var friðsæld, skólamál,
þjónusta og samgöngur.
Íbúar Dalanna voru helst óánægð-
ir með vöruverð, farsímasamband,
umferðaröryggi, mannlíf og laun.
Íbúar höfuðborgarsvæðisins voru
óánægðastir með umferðarmál en
ánægðastir með vöruúrval. – ab
Eyjamenn og
Akureyringar
ánægðastir
Íbúar Vestmannaeyja eru ánægðir.
DANMÖRK Ákveðið var í gær að
hefja söfnun til styrktar fjölskyldu
og börnum Freyju Eg ils dótt ur
Mo g en sen sem var myrt í Dan-
mörku fyrir helgi. Fyrrverandi eig-
inmaður Freyju, Flemming Mogen-
sen, játaði á sig morðin en þau áttu
saman tvö börn.
Freyja sótti um skilnað frá
Flemming árið 2019 en Flemming
hafði áður verið dæmdur fyrir að
hafa orðið barnsmóður sinni að
bana fyrir 25 árum. Jónína Eyvinds-
dóttir, vinkona Freyju, stofnaði
styrktarreikninginn. – kpt
Safna fé fyrir
börn Freyju
Freyja skildi eftir sig tvö börn.
9 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð