Fréttablaðið - 09.02.2021, Síða 10
FORMÚLA 1 Lewis Hamilton skrif-
aði undir eins árs samning við
Mercedes-liðið í Formúlu 1 í gær.
Tilkynnt var um samninginn á
Twitter. Spekingar voru ekki lengi
að leggja saman tvo og tvo og fá út
fjóra og segja að 2021 verði síðasta
árið hans í Formúlunni þó Hamil-
ton hafi aldrei sagt neitt annað en
að hann vilji halda áfram. Hamilton
fær 40 milljónir punda fyrir árið eða
sjö milljarða.
Samkvæmt erlendum miðlum var
ástæðan fyrir því að hann skrifaði
undir skammtímasamning sögð
sú að verið væri að vinna í lengri
samningi sem Mercedes er ekki
viss hvort það vilji gera. Er Hamil-
ton sagður vilja 10 prósent af öllu
verðlaunafé sem Mercedes fær. Ef
hann myndi vinna titilinn enn á
ný eins og sá síðasti vannst myndi
hann fá 13 milljónir punda í vasann
eða rúmlega tvo milljarða. Þetta eru
ekkert sérstaklega háar upphæðir í
Formúlunni en Covid hefur komið
við kappaksturinn eins og f lest
annað og því er Mercedes að vinna
í aðeins öðruvísi fjárhagsáætlun en
oftast áður.
Þá er Hamilton sagður vilja fá
svokallað Veto atkvæði sem þýðir
að hann myndi fá atkvæðisrétt á
liðsfélaga fari svo að Mercedes losi
sig við Valtteri Bottas.
Íslandsvinurinn Jim Ratcliffe, eig-
andi Ineos, gerði fimm ára samning
við Mercedes í fyrra og samkvæmt
erlendum miðlum var Ineos svo
áfjáð í að halda Hamilton að það var
tilbúið að greiða meirihluta launa
hans.
Hamilton er orðinn 35 ára en það
er ekkert farið að hægjast á kapp-
anum eða bílunum sem hann ekur.
Hann hefur unnið sjö heimsmeist-
aratitla og vantar einn í viðbót til
að slá við sjálfum Michael Schum-
acher sem sigursælasti ökumaður
allra tíma í Formúlunni. – bb
Hamilton framlengir samning um ár
Lewis Hamilton verður áfram hluti
af Mercedes. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
KÖRFUBOLTI Selfyssingar hafa
skrifað undir samning við spænska
félagið Real Betis um samstarf við
uppbyggingu ungra og efnilegra
leikmanna til að undirbúa þá fyrir
hæsta getustig körfuboltans. Félög-
in munu vinna að sameiginlegri,
faglegri sýn varðandi liðsuppbygg-
ingu, umgjörð, þróun leikmanna
frá öllum hliðum og hinum æðri
markmiðum körfuboltans. Búið er
að vinna í heilt ár að samningnum.
Real Betis leikur í ACB deildinni
á Spáni sem er af mörgum talin sú
næstbesta í heimi á eftir NBA deild-
inni og hefur þegar einn leikmaður
komið til Selfyssinga frá Betis, Ken-
nedy Clement sem er 18 ára og yngri
landsliðsmaður Spánar.
Vinnan við samninginn hófst að
frumkvæði þjálfarans Chris Caird
sem hefur staðið í ströngu sam-
kvæmt Gylfa Þorkelssyni, formanni
körfuboltadeildarinnar. „Þetta er
spennandi samstarfsverkefni sem
við erum komnir í og varðar upp-
byggingu akademíu okkar. Við
fáum hjá þeim þjálfara og einn leik-
maður hefur verið hjá okkur í vetur.
Það eru opnar leiðir fram og til baka
fyrir unga leikmenn. Annars vegar
fyrir okkar stráka að sjá tækifæri til
að komast á mála hjá þeim og hins
vegar frá þeim fyrir stráka sem eru
ekki að fá margar mínútur til að
koma í akademíuna okkar,“ segir
Gylfi.
Hann segir að körfuboltadeild
Selfoss sé ekki með marga þúsund-
kalla á milli handanna og það
hafi því verið ákveðið að ala upp
leikmenn. „Við erum að horfa í að
byggja upp unga leikmenn. Það eru
sumir sem segja að það sé rétta leið-
in. Við erum ekki að spenna bogann
með fullt af atvinnumönnum. Við
keppum ekki við það og tökum
þennan pól í hæðina. Byggjum
upp ungviðið og bjóðum upp á fag-
legt, gott og sterkt starf sem stenst
kröfur.“
Gylfi bendir á að Spánn sé með
bestu deildina í Evrópu þannig að
hann trúi því að þjálfarar og aðrir
sem koma nálægt starfinu hjá Real
Betis viti hvað þeir komi með til
borðsins. „Þeir hljóta að hafa ein-
hverja hugmynd um hvernig eigi
að gera hlutina,“ segir hann léttur.
Gylfi bendir á að akademían
við FSU sé í boði bæði fyrir stráka
og stelpur en þar er unnið eftir
umhverfi sem Selfoss vill skapa.
Það hafi tekist ágætlega í hinum
boltaíþróttunum, hand- og fótbolta.
„Þetta er mikilvægt skref í þá átt að
það sé faglegt og gott starf. Það eru
fimm strákar frá Englandi, einn frá
Póllandi og einn frá Slóveníu í aka-
demíunni okkar til að vera í þessu
umhverfi.“
Hann vonast til að körfuboltaaka-
demían taki næsta skref með þess-
um samningi en hún var sett á lagg-
irnar árið 2005. Síðan komu hand- og
fótboltinn í kjölfarið, fimleikar,
frjálsar íþróttir og svo golfakademía
sem stofnuð var árið 2020. „Við
erum að taka næsta skref fram á við
að okkar mati með þessum samn-
ingi. Þetta er spennandi verkefni.“
benediktboas@frettabladid.is
Selfoss semur við Betis
Samningur milli körfuboltaakademíu Selfoss og spænska félagsins Real Betis
var undirritaður fyrir helgi. Félögin vinna að umgjörð og þróun leikmanna.
Úr leik Selfoss í körfunni þar sem ungir leikmenn fá að æfa við góðar aðstæður. MYND/KÖRFUBOLTADEILD SELFOSS
Það eru fimm
strákar frá Eng-
landi, einn frá Póllandi og
einn frá Slóveníu í akademí-
unni okkar til að vera í
þessu umhverfi.
Gylfi Þorkelsson,
formaður Körfu-
knattleiksfélags
Selfoss
9 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Ótrúleg útsala í fjórum
búðum og á dorma.is
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
PURE COMFORT
fiberkoddi
Léttur, ódýr og
þægilegur
fiberkoddi.
Stærð kodda:
50x70cm. 700g.
Má þvo á 60°c..
Fullt verð: 3.900 kr.
Aðeins 3.120 kr.
PURE COMFORT
fibersæng
Létt og þægileg fibersæng.
Stærð: 140x200 cm. Sængin er 300g. Má þvo á 60°c
Fullt verð: 9.900 kr.
Aðeins 7.920 kr.
20%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
20%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
DORMA
útsalan
LOKAVIKAN
EKKI MISSA AF ÞE
SSU
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is