Fréttablaðið - 09.02.2021, Page 16

Fréttablaðið - 09.02.2021, Page 16
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Godo var stofnað árið 2012 og fór f ljótlega að bjóða upp á hótelkerfið Property sem fjölmörg hótel og gististaðir af öllum stærðum og gerðum hérlendis og erlendis nýta sér. „Fljótlega fundum við fyrir þörf á markaðnum fyrir hugbúnaðar- lausn sem myndi einfalda ferla og samskipti milli hótela og ferða- skrifstofa og hófst þá vinna og þróun að Travia,“ segir Haukur Birgisson, forstöðumaður ferða- skrifstofulausna hjá Godo. Fyrirtækið leggur mikið upp úr að bjóða upp á framúrskarandi hugbúnað fyrir ferðaþjónustuna, bæði er snýr að hótelrekstri og ferðaskrifstofum. „Við leggjum bæði gríðarlega mikið upp úr fyrirtaks þjónustu og sífelldri þróun til að nýta okkur nýjustu tækni.“ Byggt á tækniforskoti Hugbúnaðurinn Travia gagnast bæði hótelum og gististöðum ásamt ferðaskrifstofum að sögn Hauks. „Tæknin í kringum ferða- þjónustu hefur vaxið í veldisvexti síðustu ár og mörg gríðarlega spennandi fyrirtæki hafa sprottið upp sem byggja á tækniforskoti. Hins vegar hefur þróun á hug- búnaði sem tengir saman ferða- skrifstofur og gististaði gleymst í jöfnunni.“ Hann segir t.d. mjög skrítið að á meðan samskipti milli gisti- staða og ferðamanna, sem kjósa að versla beint af netinu, séu mjög skilvirk standi ferðaskrifstofur enn í því að senda tölvupósta og bíði stundum dögum saman eftir staðfestingu, jafnvel frá sama birgja. „Ferðamaður getur bókað flug, hótel, bíl og afþreyingu og jafnvel borð á veitingastað á einni og sömu heimasíðunni á nokkrum mínútum og fengið allt saman staðfest um leið með viðeigandi kvittunum og staðfestingum frá birgjum. Því er öðruvísi háttað með ferðaskrifstofur sem hætta á að missa viðskiptavini meðan beðið er eftir svari frá birgjum í tölvupósti.“ Skilvirkari samskipti Markmiðið með Travia er að gera samskiptin á milli þessara tveggja aðila markviss, skilvirk og einföld þar sem ferðaskrifstofan getur bókað, breytt bókun og af bókað bókun án þess að þurfa að bíða eftir svari með tölvupósti frá starfsmanni gististaðarins. „Á sama tíma fær gististaðurinn staðfesta bókun í kerfið sitt og þarf enga handavinnu frá starfs- manninum. Það virðisloforð sem við bjóðum upp á getur gefið bæði ferðaskrifstofum og gististöðum mikið samkeppnisforskot og sparað mikinn tíma og þannig kostnað.“ Að auki geta ferðaskrifstofur sótt sér frátekningar, sótt lægsta mögulega verð sem völ er á og verið þannig samkeppnishæf stærstu sölusíðunum bætir Haukur við. „Með þessari einföldun á sam- skiptum verða báðir aðilar mun skilvirkari en áður og reksturinn verður arðbærari og sjálf bærri fyrir vikið.“ Mikil tækifæri Haukur segir að á Covid-tímum hafi starfsmenn lagt sig alla fram við að viðhalda þeirri þróun og hraða sem einkenni „venjulegt“ árferði. „Við teljum að núna séu mikil tækifæri fyrir ferðaþjón- ustuna til þess að núllstilla sig og nýta sér stafræn kerfi mun betur en áður. Okkur hefur bæði tekist vel til að sinna viðskiptavinum okkar, sækja nýja viðskiptavini og kenna þeim betur á hugbúnað okkar svo þeir séu tilbúnir fyrir komandi átök og viðspyrnu ferða- þjónustunnar.“ Notendur Travia nefna margir að hugbúnaðurinn sé byltingar- kenndur þar sem öll samskipti séu nú einfölduð og boðleiðir styttar. „Nýjustu viðskiptavinir okkar nefna einnig að þeir séu að nýta tímann núna sem þeir höfðu ekki áður til að tileinka sér tæknina, sem mun koma sér vel þegar ferða- þjónustan kemst á strik aftur”. Ferðaskrifstofur munu skapa mikilvægan sess í viðspyrnu ferða- þjónustunnar eftir Covid, að sögn Hauks, vegna þess að ferðamenn munu að öllum líkindum sækja sér aðgengi þeirra vegna trygginga- mála, betri af bókunarskilmála og betri þekkingu á staðháttum. „Samkvæmt nýrri könnun hjá Íslandsstofu er vaxandi trú ferða- heildsala á Íslandi mikil og rennir það styrkum stoðum undir mikil- vægi ferðaskrifstofa í endurreisn og viðspyrnu ferðaþjónustunnar.“ Spennandi verkefni Undanfarið hafa starfsmenn verið í markvissri kynningarstarfsemi á Travia hugbúnaðinum fyrir ferða- skrifstofur og hefur það gengið vonum framar að sögn Hauks. „Ferðaskrifstofur virðast vera tilbúnar til þess að nýta sér hug- búnaðinn til að einfalda bókunar- hliðina til muna þegar ferðaþjón- ustan tekur við sér. Við höldum ótrauð áfram að kynna hugbúnað- inn okkar fyrir nýjum viðskipta- vinum og höldum áfram að kenna núverandi viðskiptavinum okkar á hugbúnaðinn, þ.e. hvernig á að nota hann á sem bestan hátt ásamt því að vera í góðum samskiptum við viðskiptavininn til þess að við séum viss um að við séum að þróa réttu hlutina.“ Á sama tíma er fyrirtækið að vinna í gríðarlega spennandi verk- efni í Suður Afríku segir Haukur. „Þar hefur mjög stór ferðaskrif- stofa ákveðið að nýta sér Travia til þess að bóka á þau hótel sem þau nota fyrir ferðamenn sína. Þetta er stórt verkefni þar sem við þurfum að innleiða tugi hótela sem hvert hefur yfir mörg hundruð herbergj- um að ráða, ásamt því að sinna kennslu og öðru sem við kemur innleiðingu hugbúnaðarins.“ Bjartsýnn á framtíðina Haukur er nokkuð bjartsýnn á framtíð upplýsingatækninnar hér á landi. „Í gegnum tíðina hafa verið hér gríðarlega frambærileg tækni- fyrirtæki og afrakstur þeirra hefur verið til fyrirmyndar í gegnum tíðina. Ísland hefur skapað sér sess á heimsvísu þegar kemur að hug- búnaði og öðrum vörum tengdum upplýsingatækni og markað sér mjög góða stöðu.“ Hann telur að upplýsingatækni og umsvif hennar á Íslandi muni einungis vaxa, sérstaklega með allri þeirri þekkingu sem er hér- lendis ásamt því að hingað sækja í auknum mæli alþjóðleg fyrir- tæki til að opna útibú eða ráða til sín starfsfólk. „Það leynast mikil tækifæri víðs vegar í upplýsinga- tæknigeiranum á tímum Covid og mörg fyrirtæki hugsa nú hvernig hægt sé að nýta tækni til þess að vera enn skilvirkari, sjálf bærri og reka þannig arðbærari rekstur til framtíðar.“ Godo býður upp á framúrskarandi hugbúnað fyrir ferðaþjónustuna, bæði er snýr að hótelrekstri og ferðaskrifstofum. Framhald af forsíðu ➛ Ferðamaður getur bókað flug, hótel, bíl og afþreyingu og jafnvel borð á veitinga- stað á einni og sömu heimasíðunni á nokkr- um mínútum og fengið allt saman staðfest um leið með viðeigandi kvittunum og staðfest- ingum frá birgjum. Í gegnum tíðina hafa verið hér gríðarlega frambærileg tæknifyrirtæki og afrakstur þeirra hefur verið til fyrirmyndar í gegnum tíðina. Notendur Travia nefna margir að hugbúnaðurinn sé byltingarkenndur. 2 KYNNINGARBLAÐ 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 Þ R I ÐJ U DAG U RUPPLÝSINGATÆKNI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.