Fréttablaðið - 09.02.2021, Page 19

Fréttablaðið - 09.02.2021, Page 19
Skilar betri þjónustu Skúli Eyjólfsson, deildarstjóri langtíma- leigu hjá bílaleigunni Höldur, segir að Signet hafi gert fyrirtækinu kleift að veita viðskiptavinum sínum betri þjónustu. „Við ákváðum að taka Signet í notkun því við þurfum að fá undirritanir á samninga og oft er sá sem sækir bílinn ekki sá sem má undirrita samninginn. Þá þarf að senda samninginn á aðilann sem sér um bílamál til undirritunar,“ segir Skúli. „Við vorum farin að skoða þessa lausn fyrir COVID en faraldurinn ýtti þessu endanlega af stað. Við erum að vinna hér og þar og það hafa ekki allir aðgang að prentara, þannig að við fórum þessa leið. Þetta er miklu betri leið en að samn- ingurinn sé prentaður, sendur, undirritaður, skannaður inn og svo sendur til baka. Svona erum við að veita kúnnum betri þjónustu,“ segir Skúli. „Viðskiptavinurinn fær samn- inginn bara í tölvupósti eða sms-i og getur smellt á hlekkinn til að skoða samninginn og undirrita hann með rafrænum skilríkjum án þess að standa í neinu brasi. Þetta er líka örugg leið til undirritunar, það er mjög erfitt að falsa rafræna undirskrift. Þetta auðveldar okkur vinnu og er fljót- legt kerfi. Við fáum undirritanir fyrr til baka og fyrir vikið gengur reksturinn hraðar fyrir sig,“ segir Skúli. „Þar að auki erum við að spara pappír, póstsendinga- og bensín- kostnað með þessu, sem er hið besta mál. Áður fyrr kom fyrir að fólk þyrfti að gera sér ferð til okkar bara til að skrifa undir. Það er ekki nokkur spurning að við myndum mæla með notkun Signet,“ segir Skúli. „Það er allt að færast yfir í þetta raf- ræna þannig að ég myndi hvetja alla sem þurfa að fá undirritanir á skjöl, samninga eða hvað sem er til að nýta sér Signet.“ Auðveldara fyrir fyrirtæki og kúnna Kári Arnar Kárason, deildarstjóri upplýs- ingatæknideildar Húsasmiðjunnar segir að Signet hafi auðveldað þeim lífið á marga vegu. „Við tókum Signet fyrst í notkun því við vildum fá rafræna undirritun fyrir ráðn- ingarsamninga,“ segir Kári. „Við bjóðum fólki líka upp að skrá sig inn á þjónustu- vefinn okkar með rafrænum skilríkjum í stað þess að þurfa að muna lykilorð. Svo erum við líka með sjálfvirkt rafrænt ferli í lánaumsóknum, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki, sem mannshöndin kemur hvergi nærri. Við notum Signet einnig fyrir reikningsumsóknir og greiðsludreifingar. Signet hefur sjálfvirknivætt umsóknar- ferli hjá okkur og stytt biðtíma fyrir kúnn- ann, en nú er svartími nokkrar sekúndur í staðinn fyrir tvo daga. Það hefur í raun bætt þjónustu gríðarlega og fækkað hand- tökunum hjá okkur,“ segir Kári. „Þetta hefur auðveldað okkur lífið á marga mismunandi vegu. Þessi lausn er líka góð fyrir umhverfið. Það er ekki lengur verið að prenta og skrifa undir pappíra og sendast með þá um bæinn,“ segir Kári. „Það er því engin spurning að við mælum með notkun Signet fyrir fyrirtæki, bæði til að minnka pappírs- notkun og flýta ferlum.“ Hraðvirkt, aðgengilegt og þægilegt Íris A. Skúladóttir, lánastjóri hjá Birtu lífeyrissjóði, segir að Signet kerfið hafi klár- lega verið til bóta. „Við þurfum að fá kynningargögn fyrir hvert lán undirritað með löggiltum raf- rænum skilríkjum og vorum með annað kerfi fyrir það áður,“ segir Íris. „En sú lausn var ekki nógu þjál, því það tók meira en tvær mínútur að opna undirrituð skjöl. Það var aðal ástæðan fyrir því að við gáfumst upp á gamla kerfinu. Áður fyrr þurftu umsækjendur að skrá sig inn á sitt svæði með rafrænum skilríkjum til þess að nálgast skjöl til undirritunar en núna fá þeir tölvupóst eða sms beint í símann með hlekk og þar birtist skjalið til skoðunar og í kjölfarið undirritunar. Það er mun þægilegra, einfaldara og aðgengilegra fyrir móttakandann og býður upp á betri þjónustu fyrir sjóðfélaga,“ segir Íris. „Undir- skriftum fylgja líka meiri upplýsingar núna, t.d. er hægt að bæta við skýringu á því hver undirritar, einnig birtast nöfn, kennitölur og tímastimplar, sem okkur finnst til bóta og bæta aðgengi að upplýsingum um undirritendur skjala. Það sem mér finnst einnig mjög hentugt er að við fáum fullundirrituð skjöl í sér- staka möppu á lokuðu drifi sem aðeins er aðgengilegt þeim sem vinna með skjölin. Fyrir vikið sleppum við við að skrá okkur inn til að sækja skjölin, sem flýtir fyrir vinnu okkar,“ segir Íris. „Fyrir rafrænar undirskriftir vorum við að prenta gríðarlegt magn af pappír sem sparast núna og það hefur minnkað kolefnissporið verulega. Við mælum klárlega með notkun Signet fyrir alla sem þurfa að undirrita skjöl með hraðvirkum og öruggum hætti, þetta hefur reynst okkur vel og var klárlega til bóta fyrir okkur,“ segir Íris að lokum. M YN D /AÐ SEN D M YN D /AÐ SEN D FRÉTTABLAÐ IÐ /VALLI XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 5 Þ R I ÐJ U DAG U R 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 UPPLÝSINGATÆKNI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.