Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.02.2021, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 09.02.2021, Qupperneq 30
Stafrænar lausnir eru komnar til að vera enda gríðarlega mikilvægur hluti af daglegu lífi,“ segir Sigríður Sigmarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Netheims, sem sinnir alhliða upplýsinga- tækniþjónustu fyrir fyrirtæki. „Stafrænum lausnum er sífellt að fjölga enda erum við farin að nota símann meira í daglegu lífi og viljum í raun einfalda alla ferla og spara tíma.“ Hún segir þetta til dæmis sjást í netverslun þar sem æ fleiri eru farnir að panta vörur heim í stað þess að fara í verslanir og verja tíma sínum þar. „Nútíma- fjölskylda hefur nóg á sinni könnu. Hver kannast ekki við að hlusta á krakkana lesa og vera að elda eða ganga frá í eldhúsinu á sama tíma? Svo þegar hinum „daglegu verkum“ er lokið setjumst við niður um klukkan að ganga 10 um kvöld og munum að það er kominn tími á snjóbuxurnar, vantar nýja skó og svo þarf að versla fyrir helgina?,“ segir hún og bætir við: „Nútímakrafan er að geta leyst þetta á einfaldan hátt, þegar við munum eftir því og helst vera búin að fá úrlausn mála okkar á sem fljótlegastan hátt.“ Áhersla á persónulega og góða þjónustu Netheimur leggur sitt af mörkum til að koma til móts við þessar stafrænu þarfir meðal annars með því að sinna þörfum fyrirtækja fyrir netverslun og þjónustu sem tekur mið af ólíkum þörfum ein- staklinga og fjölskyldna sem ekki eru lengur bundin hefðbundnum vinnu – og opnunartímum. „Netheimur var stofnaður árið 1998 og hefur frá upphafi verið í eigu Ellert Kr. Stefánssonar og Guðmundar Inga Hjartarsonar. Þannig að við höfum farið í gegn- um miklar breytingar og búum að mikilli reynslu,“ segir Sigríður, aðspurð um sögu Netheims. „Við sinnum alhliða upplýsingatækni- þjónustu fyrir fyrirtæki, allt frá tölvuuppsetningum og tengingum við prentara til hýsinga, vefsíðu- gerðar og Business Central bók- haldslausna.“ Ekki aðeins er starfsfólk Net- heims reynsluboltar í tæknibrans- anum heldur hefur fyrirtækið verið í fararbroddi þegar kemur að því að sinna þörfum viðskiptavina sinna. „Við leggjum mikla áherslu á persónulega og góða þjónustu sem endurspeglast í ánægðum viðskiptavinum sem hafa verið með okkur frá upphafi. Við erum einnig dugleg að endurmennta okkur, fylgjumst vel með nýjung- um og erum fljót að tileinka okkur þær,“ segir Sigríður. „Við leggjum áherslu á að vera þetta eina símtal til lausna á verkefnum, reynum ætíð að sjá heildarmyndina strax í upphafi og komum með lausnir sem eru ávallt hagstæðar og mið- aðar alfarið við þarfir viðskipta- vina okkar. Hjá Netheimi eigum við viðskipta„vini“ en ekki kúnna,“ bætir hún við brosandi. Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi En hvaða nýjungum mega við- skiptavinir Netheims búast við árið 2021? „2020 var auðvitað stórskrítið og það ætlar að teygjast eitthvað á því inní 2021,“ viður- kennir Sigríður og bætir við að þó hafi ýmis ljós leynst í myrkri framandi aðstæðna. „Við fundum strax fyrir því að fyrirtæki fengu svigrúm til að endurskipuleggja starfsemi og tæknimál á sama tíma og krafan um betri tækni jókst. Nú geta flestir unnið heima ef svo ber undir. Mörkin milli skrifstofu og stofunnar heima eru í raun engin lengur. Við sjáum að sveigjanleiki bæði fyrirtækja og starfsmanna er mun meiri en við héldum og sýnir okkur líka að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.“ Hún segir helstu nýjungar snú- ast um að aðlaga framlag Netheims að þessum nýju sviðsmyndum. „Fyrst og fremst snúast verkefnin um einfaldleika og þægindi en strax þar á eftir er aðgengi fyrir alla og sjálfsafgreiðslumöguleik- ar.“ Stafrænar lausnir eru nánast óþrjótandi að sögn Sigríðar. „Nú eru rafrænar auðkenningar sem og rafrænar undirskriftir það nýjasta. Það er orðið svo einfalt að sinna öllu sínu á netinu og með Netheimi eru okkur allir vegir færir. Flest tilbúin vefkerfi geta tengst við meirihluta annarra kerfa. Sérsmíði Stafrænar lausnir eru gríðarlega mikilvægur hluti af daglegu lífi Flest komumst við ekki gegnum daginn án stafrænna lausna af einhverju tagi. Netheimur hefur sérhæft sig í alhliða upplýsingatækniþjónustu fyrir fyrirtæki sem kemur einstaklingum til góða. Sigríður Sigmarsdóttir er sölu- og markaðsstjóri Netheims. Hún segir að stafrænum lausnum sé sífellt að fjölga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Hér er rafræn undirskrift. 8 KYNNINGARBLAÐ 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 Þ R I ÐJ U DAG U RUPPLÝSINGATÆKNI

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.