Fréttablaðið - 09.02.2021, Page 34
Námið hentar þeim
sem hafa reynslu af
fræðslustörfum.
Upplýsingatæknin hefur rutt sér til
rúms í grunnskólum með spjald-
tölvum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Nám í upplýsingatækni er í boði hjá háskólum hér á landi og margir hafa nýtt sér
það enda er sívaxandi þörf fyrir
menntun á þessu sviði. Námið
gagnast til dæmis sérlega vel
kennurum enda hefur upplýsinga-
tækni rutt sér til rúms í f lestum
grunn- og framhaldsskólum.
Námið hentar vel fyrir þá sem
vilja efla forystu í þróun skóla-
starfs með hagnýtingu stafrænnar
tækni. Upplýsingatækni nær í
rauninni yfir vítt svið. Upplýsinga-
tækni nýtist vel við gagnavinnslu.
Með tækni er átt við tölvutækni,
fjarskiptatækni og rafeindatækni.
Upplýsingatækni er notuð í við-
skiptalífinu, í iðnaði, í skólastarfi,
við fjarnám, á heimilum, í stór-
mörkuðum og á bókasöfnum.
Námið hentar vel þeim sem hafa
reynslu af fræðslustörfum og vilja
dýpka þekkingu sína og efla sig í
starfi, að því er segir á heimasíðu
Háskólans á Akureyri. Nemendur
skulu hafa lokið grunnnámi á
háskólastigi.
Nám og störf í upplýsingatækni
eru fjölbreytt og henta konum
ekki síður en körlum.
Upplýsingatækni nýtist vel
Tölvuorð- og hugtök geta vafist fyrir fólki. Þá hjálpar að geta leitað útskýringa í
Tölvuorðasafninu í Íðorðabanka
Stofnunar Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum.
Tölvuorðasafnið er afrakstur
vinnu sem Orðanefnd Skýrslu-
tæknifélags Íslands innti af hendi
á 45 ára tímabili, frá 1968 til 2013.
Þar var safnað íslenskum orðum
um tölvur og gagnavinnslu og
erlend orð þýdd. Safnið kom fyrst
út árið 1983 og hafði að geyma
rösklega 700 hugtök með tæplega
þúsund íslenskum heitum og yfir
þúsund ensk heiti. Önnur útgáfa
birtist árið 1986, þá voru hugtökin
tæplega 2.600 og þeim fylgdu um
3.100 íslensk heiti og nær 3.400
ensk heiti. Þriðja útgáfan var
gefin út 1997 og hafði að geyma
um 5.800 íslensk heiti og um
6.500 ensk heiti á rúmlega 5.000
hugtökum. Fjórða útgáfan kom
út 2005 og var jafnframt síðasta
útgáfan á prenti, með um 6.500
hugtök, 7.700 íslensk heiti og um
8.500 ensk heiti.
Fimmta útgáfa Tölvuorðasafns-
ins var sett á vefsíðu árið 2013. Hún
er aðgengileg til leitar í Íðorða-
bankanum og einnig má skoða
Tölvuorðasafnið á heimasíðu
Þorsteins Sæmundssonar. Allar
útgáfur Tölvuorðasafnsins voru
á hendi fjögurra nefndarmanna,
undir formennsku Sigrúnar Helga-
dóttur: Baldurs Jónssonar (1976-
2009), Sigrúnar Helgadóttur (1978-
2013), Þorsteins Sæmundssonar
(1978-2013) og Arnar S. Kaldalóns
(1978-2013).
Tölvuorðasafnið
til hjálpar
Tölvur eiga sitt eigið tungumál.
12 KYNNINGARBLAÐ 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 Þ R I ÐJ U DAG U RUPPLÝSINGATÆKNI
Snjöll öpp
Við höfum sérhæft okkur í að finna leiðir til að auðvelda notendum aðgengi að
þjónustu fyrirtækja með notendavænum lausnum í gegnum snjallsíma.
Stokkur hefur hannað og forritað flest
af vinsælustu öppum Íslands í yfir 13 ár
HAFÐU SAMBAND OG VIÐ FINNUM TÍMA Í SPJALL
ÞÓRUNNARTÚN 2STOKKUR SOFTWARE STOKKUR@STOKKUR.ISDavid Walliams gerði óhjálplega starfskraftinn hana Carole Beer
ódauðlega í þáttunum Little Britain.
Computer says no“ er einn af fyndnari grínsketsum sem komu frá Little Britain
tvíeykinu, þeim David Walliams
og Matt Lucas sem gerðu ýmsa
óborganlega karaktera ódauðlega í
samnefndum sjónvarpsþáttum.
Frasinn er tileinkaður Carol
Beer, bankastarfsmanni, nokkru
síðar starfsdömu á ferðaskrif-
stofu og svo í móttöku á spítala.
Carol, leikin af David Walliams,
er holdgervingur hins óhjálplega
starfsmanns sem flest okkar hafa
rekist á, líklega oft á lífsleiðinni.
Hún er þessi dæmigerði starfs-
maður í viðskiptamannaþjónustu
sem finna má í anddyri ýmissa
stofnana, ósjaldan opinberra. Bak
við gler með tölvuskjá á milli sín
og viðskiptavinar. Þegar hún er
beðin um að veita upplýsingar eða
þjónustu sem ætti að vera í hennar
verkahring, lítur hún áhugalaus á
kúnna, lítur á tölvuskjáinn, pikkar
handahófskennt á lyklaborðið,
lítur aftur á viðskiptavin daufum
augum og segir „Computer says
no“ eða „tölvan segir nei“.
Tölvan segir nei