Vinnan - 01.05.1975, Síða 11
Það er ekki ósennilegt að kynni
margra landsmanna af Bréfaskólanum
séu ekki önnur en það sem fólk heyrir
í útvarpi á veturna þegar framburðar-
kennslan er á dagskrá. Ef betur er að
góð kemur í Ijós að starfsemi Bréfa-
skólans er margþætt og töluvert um-
fangsmikil. Með lögum um fuilorðins-
fræðslu, sem enn hafa þó ekki verið
samþykkt, aukast möguleikaar fyrir
frjálst nám af ýmsu tagi. Þetta á ekki
síst við um bréfaskólanám. Frjálst
nám fullorðins fólks verður með sam-
SPJALLAÐ VIÐ
SIGURÐ A.
MAGNÚSSON
SKÓLASTJ ÓRA
BRÉFASKÓLANS
þykkt laganna gert jafnrétthátt öðru
námi í landinu, sem hingað til hefur
verið bundið skólastofnunum að lang-
mestu Ieyti. Þörfin fyrir endurmenntun
og aukna þekkingu á ýmsum sviðum
eykst stöðugt. Bréfaskólanám hlýtur
að verða mikilvægur þáttur fullorðins-
fræðslunnar, hvort heldur er á sviði
menntunar til einstakra starfa eða
menntunar almennt. Þetta ásamt öðru
kom fram er VINNAN ræddi við Sig-
urð A. Magnússon, en hann hefur ver-
ið ráðinn skólastjóri Bréfaskólans.
Við spurðum Sigurð um þær breyt-
ingar sem helstar eru á næstunni hjá
skólanum, bæði hvað varðar náms-
efnið og námstilhögun. Sigurður sagði
að það væru um 40 mismunandi
námsgreinar, sem fólk ætti kost á að
stunda. Reyndar væri mikið af þessu
efni áratugagamalt og því nánast úr-
elt. Sumt hefði verið fellt niður, en í
undirbúningi væri nú þegar nýtt og
breytt námsefni í mörgum greinum.
Nokkur ný námskeið eru fullbúin og
betur til þess fallin að uppfylla kröfur
um nám og námstækni. Allir nemend-
ur skólans fá stuttan bækling um
námstækni eftir Hrafn Magnússon.
Þar er bent á hvernig nemendur geta
best hagnýtt sér nám af þessu tagi.
Lögð hefur verið áhersla á endurbæt-
ur á tungumálanáminu, en skólinn
hefur komist í samband við franskt
fyrirtæki, sem útbýr málanámskeið,
sem hafa reynst frábærlega vel. Enska,
þýska og spænska hafa verið útbúin
með íslenskum skýringum, og verða
VINNAN 11