Vinnan - 01.05.1975, Síða 14

Vinnan - 01.05.1975, Síða 14
MINNINGAR ÚR ATVINNULÍFINU EFTIR KRISTÍNU NÍELSDÓTTUR FRÁ SELLÁTRI Erindi flutt á hátíðarfundi í Stykkishólmi 1. maí 1975 Erlingur Viggósson skipasmiður, sem lengi var forystumaður verkafólks í Stykkishólmi, spjallar við Kristínu við pökkunarborðið. Góðir félagar og gestir. Ég óska ykkur til hamingju með daginn. Langt er nú síðan ég hóf störf sem verkakona, og þegar mér verður hugs- að til vinnufélaganna, sem sumir eru horfnir, eða hættir störfum á vinnu- stað, minnist ég þeirra með þakklæti, þeir hafa allir kennt mér eitthvað nyt- samlegt. I hugann koma nöfn, sem verða þó ekki nefnd. Þau eru falin þögninni, en standa þó bak við okkur sem óbrotgjarnir varðar frá liðinni baráttutíð. Þeim verður ekki gleymt, og hugurinn hverfur til þeirra á þess- um afmælis- og hátíðisdegi. Ég hef á iiðnum árum sett á blað ýmis atvik úr frystihúsunum, sem ég hef unnið í, og vík ég nú að því. Þá er ég farin að vinna í frystihúsi Kaupfélags Stykkishólms. Mér þykir verst hvað hávaðinn er mikill. Roð- flettingarvélin ætlar alla að æra; ég er rétt hjá henni, það er minn bás, við hliðina á Magdalenu systur minni. Hún er óþreytandi að leiðbeina mér. Svo smákynnist ég vinnufélögunum og allt verður auðveldara. Jafnvel há- vaðinn í beinakvörninni og roðfletting- arvélinni ásamt pönnu- og bakka- glamri, hættir að láta eins átakanlega illa í eyrum eins og á fyrstu dögun- um. Já, vinnufélagarnir; það er allra besta fólk. Siggi Þórðar stendur þarna við roðflettingarvélina. Hann er alltaf í hreinum, hvítum jakka og minnir á heldri mann. Svo strýkur hann vélina og kallar hana kærustuna sína, þegar við erum að dæsa yfir hávaðanum sem hún veldur, en glettnin skín glögglega úr svipnum. Kaffitímarnir eru með sérstökum hætti. Það liggja spiil á borðinu; þau eru fljótt upptekin. Það er spiluð vist. Ingvar Kristjánsson, Þuríður Magnús- dótttir, Magdalena Níelsdóttir og Jó- „MÉR ÞYKIR VERST HVAÐ HÁVAÐINN ER MIKILL” 14 VINNAN

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.