Vinnan - 01.05.1975, Qupperneq 17

Vinnan - 01.05.1975, Qupperneq 17
lagslegu og efnahagslegu jafnrétti kynj- anna. Við þökkum verkamönnum á Selfossi drengilega baráttu fyrir rétti hvers verka- manns óháð geðþótta ráðamanna einstakra fyrirtækja. Við lýsum yfir stuðningi við kröfima um fullan samningsrétt og verkfallsrétt til jafns við aðra launþega til handa félögum innan BSRB og Iðnnemasambands íslands. 1. maí lítur íslensk alþýða um veröld alla. Við sjáum misskiptingu auðsins blasa við og bilið breikkar ár frá ári. Annars vegar gífurleg auðsöfnun og takmarkalaus sóun ráðandi stétta margra iðnríkja með ómennska hernaðarvél að bakhjarli, hins vegar lönd þriðja heimsins, þar sem neyð fólksins skírskotar til samvisku hvers ær- legs manns. Við lýsum eindreginni sam- stöðu með kúguðum þjóðum og stéttum, hvar sem er í heiminum, í baráttu þeirra gegn ofurvaldi auðhringa og stórvelda- stefnu. Við fögnum af alhug sigrum alþýðunn- ar í stríðshrjáðum löndum þriðja heimsins. Við tökum undir með þeim, sem skora á ríkisstjórn íslands, að hún viðurkenni rík- isstjómina í Phnom Penh og Bráðabirgða- byltingarstjórnina í S-Víetnam. Við berum enn á ný fram þá kröfu, að hernaðar- bandalög stórvelda verði leyst upp og all- ar erlendar herstöðvar lagðar niður. Og við krefjumst þess, að stórveldin viður- kenni friðlýsingu lands okkar. í dag horfir reykvískur verkalýður fram á veginn og strengir þess heit að sameina kraftana til markvissrar, öflugrar baráttu fyrir betra lífi undir merkjum jafnréttis- hugsjóna verkalýðshreyfingarinnar, — til baráttu fyrir því þjóðfclagi, scm færir vinnandi fólki öll völd yfir framleiðslu- tækjunum, skipar manninum sjálfum í öndvegi, en hafnar þeirri taumlausu auð- söfnun fárra á kostnað fjöldans, sem i dag blasir við. Reykvísk alþýða! Fylkjum liði á götum borgarinnar í dag. Fyrir endurheimt umsaminna lífskjara. Fyrir atvinnuöryggi. Gegn fjandsamlegri efnahagsstefnu. Reykjavík, 28. 4. 1975 1. maí-nefnd Fulltrúaráðs verkalýðsfélag- anna í Reykjavík: Jón Helgason Helga Guðmundsdóttir Guðjón Jónsson Guðmundur Hallvarðsson (mcð fyrirvara) Ragnar Gcirdal Jón Snorri Þorleifsson Bandalag starfsmanna ríkis og bæja: Haraldur Steinþórsson Jónas Jónasson Iðnnemasamband íslands: Ármann Ægir Magnússon Haukur Már. '■ JP.i ( f A9 *1 * I Í:'áá , ->■ j | .Jf» | $ • Jn KRÖFUR DAGSINS Jafnrétti kynjanna. Launajöfnun. Frelsi, jafnrétti, bræðralag. Herinn burt. ísland úr Nató. Verðbólgan er afskræmi auðhyggju. Félagslega eign á framleiðslutækjunum. Aldrei aftur atvinnuleysi. Fullkomna vinnuvernd og öryggi á vinnustöðum. Verndum sjálfstæði íslands. Lífeyrissjóð fyrir alla launþega. Lifi samtök verkalýðsins Styðjum þjóðfrelsi þriðja heimsins. Við mótmælum kynþáttaofsóknum. 'öreigar allra landa sameinist. Tafarlausa stöðvun verðbólgu. Vinnandi menn ráði vinnustöðunum. Sumarvinnu fyrir skólafólk. Fulla vísitölu á kaup verkafólks. Dagvinnutekjur til menningarlífs. Notið islenskar iðnaðarvörur. Fram til sigurs fyrir kröfum verkalýðsfélaganna. Kjarasamningar verði friðhelgir. Semjið strax við sjómenn. Verkfallsrétt til félaga BSRB. Verkfallsrétt til félaga INSÍ. Verðtrygging lífeyrissjóða. Verkafólk ráði lífeyrissjóðunum. Bætta félagslega aðstöðu kvenna. Afnemum misrétti kynjanna. Fulla vernd trúnaðarmanna í raun. Fyrirtæki greiði fæðingarorlof. Hallalausan rekstur heimilanna. Mótmælum rotnu skattakerfi. 200 milur 1975. VINNAN 17

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.