Vinnan - 01.05.1975, Blaðsíða 26

Vinnan - 01.05.1975, Blaðsíða 26
Hverju er það að þakka að starf verkalýðsfélaganna hér er jafn þrótt- mikið og raun ber vitni? Anna: Starf okkar félags hefur aukist á síðustu árum og féiagið eflst, sem er helst að þakka þessum sameigin- legu húsakaupum og því samstarfi, sem af þeim hafa skapast. Hússtjórn- in hefur tekið ýmis mál til umræðu, sem sameiginleg eru félögunum, það hefur ekki síst styrkt félag eins og Verslunarmannafélagið. Þá hefur það reynst féiaginu ómetanlegt að eiga góð samskipti við jafn traust félag og Verkalýðsfélag Borgarness. Það verð- ur að segjast samt sem áður, að fundarsókn er fremur dræm og áhugi félagsmanna, sem eru um áttatíu, ekki nógu mikill. Jón: Starfsemi Verkalýðsfélagsins hef- ur tekið miklum breytingum frá ár- inu 1960, en þá tók Guðmundur V. Sigurðsson við formennsku, og gegndi því starfi til ársins 1973. Góð eining hefur verið innan félagsins undanfarin ár og pólitískar erjur, sem áður voru tíðar, hafa dvínað. Stjórn félagsins hefur verið samtaka um að vinna að uppbyggingu félagsins. Þó kjara- og atvinnumál hafi að sjálfsögðu skipað mest rúm í starfi félagsins, þá hefur gefist tími til að sinna öðrum þáttum fólagsstarfsins. Má þar nefna árshá- tíðir, skemmtiferðir á sumrin, leikhús- ferðir og margs konar fræðslustarf. Mikil áhersla hefur verið lögð á að efla trúnaðarmannakerfi félagsins. 1 vetur var stofnaður umræðuhópur trúnaðarmanna á vinnustöðum í þessu skyni. Jafnhliða hefur mikil áhersla verið lögð á að bæta aðbúnað á vinnustöðum. Félagið á orlofshús í Ölfusborgum, þar sem félagsmenn eiga þess kost að eyða hluta af orlofi sínu. Þetta hefur verið vinsælt og góð nýting verið á húsinu. Hvað varðar fundarsókn, þá hefur hún farið vax- andi, en við höfum í vetur gert fund- ina líflegri með því að hafa í lok þeirra vísnaþætti, upplestur o. fl. Allt hefur þetta verið til að efla fólagið, sem telur nú rúmlega 300 manns. Árið 1972 keyptu stéttarfélögin í Borgarnesi hús, sem hlaut nafnið Snorrabúð. Þar fer fram öll starfsemi félaganna. Þau hafa sínar sérstöku Kjarkur og einhugur svo úr rætist 22 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.