Vinnan - 01.05.1975, Page 27

Vinnan - 01.05.1975, Page 27
Á síðustu árum hefur starf verkalýðsfélaganna í Borgarnesi staðið með blóma, ekki hvað síst eftir að félögin keyptu hús fyrir starfsemi sína, þar sem nú er rekið félagsstarf af ýmsu tagi. YINNUNNI er það sérstakt ánægju- efni að geta þess hér, öðrum félög- um til eftirbreytni, að Verklýðsfélag Vinnan ræðir við Önnu Ólafsdóttur og Jón A. Eggertsson í Borgarnesi skrifstofur, þar er rúmgóður fundar- sælur auk eldhúss. Öll vinna við breyt- ingar á húsinu og umhirða hefur ver- ið unnin í sjálfboðavinnu, sem er ó- metanleg fyrir félögin. Húsið var vígt 3. mars 1973. Síðan húsið var tekið í notkun hafa verið haldnar þar fimm málverkasýningar, tafl- og spilakvöld, svo dæmi sé tekið um það, sem fram fer í húsinu. Snorrabúð hefur ekki að- eins leyst húsnæðisvanda stéttarfólag- anna hér, heldur einnig skapað ýms- um félagasamtökum bætta félagsað- stöðu. Ég tel að starfræksla Snorra- búðar sé mikil lyftistöng fyrir félaga- samtök í Borgarnesi. Hvernig er fjárhagsstaða félaganna, og hvað eru félagsgjöldin há? Anna: Fjárhagur Verslunarmannafé- lagsins er ekki góður, enda féiags- gjöldin lág. Þau voru á síðasta ári 2200 krónur, en fyrirhugað er að breyta þessu þannig að gjöldin verði ákveðinn hundraðshluti af launum fé- lagsmanna, sem mundi þýða mikið auknar tekjur fyrir félagið. Þetta er áreiðanlega rétt stefna, enda eru verkalýðsfélögin óðum að taka þetta Borgarness og Verslunarmannafélag Borgarness hafa að undanförnu keypt blaðið handa öllum sínum fé- lagsmönnum. Það eru einmift slíkar undirtektir og stuðningur við blaðið, sem getur orðið til þess að efla það að miklum mun, frá því sem nú er, og gera það að útbreiddu og vönd- uðu tímariti, sem berst inn á hvert ANNA: Þeir lægstlaunuðu verða að geta lifað af laununum. fyrirkomulag upp, eftir því sem ég best veit. Jón: Fjárhagsstaða Verkalýðsfélagsins er góð og hefur batnað til muna eftir að við tókum upp prósentugjaldið fyr- ir tveimur árum. Hjá okkur eru fé- lagsgjöldin nú 1% af dagvinnulaun- um, en lágmarksgjald er 2500 krónur. Þá hefur öflugur sjúkrasjóður verið fólagsmönnum mikilil styrkur. Er fyrirhugað að stofna sérstakt svæðasamband á Vesturlandi, líkt og á Norðurlandi, Vestfjörðum og víðar? Jón: Hjá verkalýðsfélögunum hér á Vesturlandi hefur slík stofnun verið til umræðu síðustu mánuði. Við höfum rætt þetta á félagsfundi hjá okkur, þar sem málið fékk góðar undirtektir. Verkalýðsfélögin á Vesturlandi hafa starfrækt samciginlegan lífeyrissjóð í nokkur ár. Þessi samvinna hefur tek- ist mjög vefl, og ég vænti þess vegna m. a. mikils af starfi svæðasambands, ef af stofnun verður. Anna: Við erum mjög fylgjandi stofn- un svæðasambands fyrir Vesturland. Við teljum að það stuðli mjög að því að við getum fært út félagssvæðið, verkalýðsheimili í landinu. Á dögunum ræddi VINNAN við tvo af forsvarsmönnum stéttafélag- anna í Borgarnesi, þau Jón Agnar Eggertsson formann Verkalýðs- félagsins og Önnu Ólafsdóttur for- mann Verslunarmannafélagsins, en þau hafa bæði gegnt formannsstörfum í stuttan tíma, enda ung að árum. JÓN: Það er greinilegt að kröpp kjör eru á mörgum heimilum og stefnir að greiðsluþroti. sem nú er bundið við Borgarnes. Það hefur komið í ljós að fólk, sem vinn- ur hér í nágrenninu og er utan félaga og því réttinda'laust hefur verið hlunn- farið á margan hátt af atvinnurekend- um, í skjóli réttindaleysis þess. Svæða- samband er einmitt nauðsynlegur vett- vangur til þess að leysa slík mál. Hvað um kjaramálin? Jón: Það er ljóst að jafnhliöa miklum verðlagshækkunum að undanförnu hefur dregið úr yfirvinnu, þannig er það a. m. k. hér í Borgarnesi. Það er óraunhæft að halda því fram að dag- vinnan ein nægi verkafólki til þess að framfleyta sér .Það er því löngu kom- inn tími til að dagvinnulaun verði það há, að fólk geti lifað af þeim. Þá væri æskilegt að samningaviðræður gengju fljótar fyrir sig en verið hefur. Verkafólki fimist sú bið ærið löng meðan samninganefndir aðila sitja á rökstólum mánuðum saman. Það er greinilegt að kröpp kjör eru á mjög mörgum heimilum í dag og stefnir að greiðsluþroti, ef ekki verður spyrnt við fótum. Kjarkur og einhugur verka- lýðshreyfingarinnar verður að koma VINNAN 23

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.