Vinnan - 01.05.1975, Qupperneq 35

Vinnan - 01.05.1975, Qupperneq 35
Óskar Vigfússon formaður Sjómannafélags Hafnarfjarðar. víkur. En strax í janúar 1925 var það gert að sjálfstæðu félagi. Þá fékk fé- lagið það nafn sem það ber enn í dag. Fyrsti formaður þessa sjálfstæða fé- lags var Björn Jóhannesson, en hann var jafnframt lengi bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. í hálfa öld er það að sjálfsögðu mikið, sem félagið hefur tekist á við. Fyrir utan kaupgjaldsmál og samninga, hef- ur félagið haft afskipti af atvinnu- málum Hafnarfjarðar, öryggismálum sjómanna, sundlaugabyggingu, svo fátt eitt sé nefnt. Félagið á nú tvö orlofs- hús í Hraunborgum, en þar hafa verið reist ein 14 orlofshús í landi Hraun- kots í Grímsnesi, sem Fulltrúaráð sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði keypti fyrir nokkrum ár- um. Þá skal þess getið að félagið hef- ur tekið virkan þátt í menningarstarf- semi ýmiss konar, jafnt innan verka- lýðshreyfingarinnar og í Hafnarfjarð- arbæ. Formaður Sjómannafélags Hafnar- fjarðar er nú Óskar Vigfússon, en því starfi hefur hann gegnt frá árinu 1973. Aðrir í stjórn félagsins eru Ólafur Sig- urgeirsson, Ólafur Ólafsson, Eysteinn Guðlaugsson og Sigurður Eiðsson. 1 þessari stuttu samantekt í tílefni afmæla þessara tveggja verkalýðsfé- laga, hefur verið stuðst við afmælisrit félaganna, sem eru bæði vönduð að öllum frágangi og hin eigulegustu. VINNAN vill benda lesendum sínum á að þar má sækja margháttaðan fróð- leik um líf og kjör hafnfirskra sjó- manna og verkafólks á Akranesi í 50 ár. Félag bifvélavirkja 40 ára Félag bifvélavirkja varð 40 ára 17. janúar sl. Stofnfundur félagsins var haldinn 17. janúar 1935 í K.R.-húsinu við Vonarstræti. Stofnendur félagsins voru milli 40 og 50 bifreiðaviðgerðar- mcnn, sem starfandi voru í Reykjavík á þeim tíma. Fyrstu ár félagsins var unnið mikið að því að fá bifvélavirkjun staðfesta sem iðngrein. Fyrsti nemandinn, sem stundaði iðnskólanám, lauk sveinsprófi 28. okt- óber 1939. Á þessum árum var vinna oft mjög stopul, sérstaklega á vissum árstímum, sveinar fengu kaup aðeins fyrir þann tíma sem vinna var fyrir hendi, þess á milli varð að bíða á vinnustað eftir því að verkefni bærust. Urðu menn oft að hanga þannig heila og hálfa daga án verkefnis og launa. Framhaldsaðalfundur 19. febrúar 1937 markar tímamót í sögu félagsins. Þá er lögum félagsins breytt á þá lund, að þeir sem veita öðrum atvinnu í iðninni geta ekki orðið félagar í Fé- lagi bifvélavirkja. Þar með er félagið hreint stéttarfé- lag launþega. Þar sem ekkert hafði gengið með að ná samningum við verkstæðiseig- endur var farið að herða á því að fé- lagið gengi í, Alþýðusamband íslands, en nokkrir félagsmenn höfðu lagst rnjög gegn því. Núverandi stjórn, fremri röð f. v.: Eyjólfur Tómasson, Sigurgestur Guð- jónsson, Guðmundur Hilmarsson. Aftari röð: Sigurður Óskarsson, Samson Jóhannsson, Einar Steindórsson og Björn Indriðason. Þar kom að samþykkt var með yfir- gnæfandi meirihluta félagsmanna að sækja um upptöku í A.S.Í. og 11. maí 1937 fær félagið inngöngu í samband- ið. Það eykur félagsmönnum kjark og áræði til aðgerða í kjaramálum. Eftir fimm vikna verkfall sumarið 1937 var gert samkomulag og félagið viðurkennt sem samningsaðili. VINNAN 31

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.