Vinnan


Vinnan - 01.03.1995, Blaðsíða 4

Vinnan - 01.03.1995, Blaðsíða 4
Undirritun kjarasamninga aðfaranótt 21 .febrúar. Frá vinstri: Guðmundur J. Guðmundsson, formaður verkamannafélagsins Dagsbrúnar, Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambands Islands, Magnús Gunnarsson, formaður Vinnuveitendasambands Islands, og Þórarinn V. Þórarinsson, framkvœmdastjóri VSI. Samningar um stöðugleika, hækkun lægstu launa og aukinn kaupmátt Sérstök hækkun lægstu launa. Aukinn kaupmátt- ur. Stöðugleiki tryggður. Þetta eru einkenni þeirra kjarasamninga landssam- banda innan Alþýðusam- bandsins og atvinnurek- enda sem undirritaðir voru aðfaranótt 21. febrú- ar. Laun hækka í tveimur áföngum. Fyrri hækkunin mið- ast við undirskrift samning- anna, sú síðari verður 1. janúar næstkomandi. Þá hafa laun þeirra sem höfðu 44 þúsund krónur á mánuði hækkað í 50.400 krónur, eða um 14,5%, en 84 þúsund króna laun og hærri um 6,4%. Það þýðir að 84 þúsund króna laun verða 89.400 krónur 1. janúar 1996. Laun undir 60 þúsund krón- um á mánuði hækka að meðal- tali yfir samningstímann um 11,3% en laun á bilinu 60 til 84 þúsund krónur hækka að með- altali um 9,2%. Meðalhækkun launa er um 6,9% á samnings- tímabilinu. Enda þótt launafólk, sérstak- lega það sem lægst hefur laun- in, hefði að ófyrirsynju mátt fá betri úrlausn sinna mála er það mat beggja samningsaðila að þessi niðurstaða hafi verið skynsamleg. Sé litið til þjóðar- sáttarsamninganna 1990 má segja að þetta hafi verið rökrétt skref í framhaldi af þeim — skref sem þó hefði þurft að taka mun fyrr. Samningamir eru til tveggja ára en launanefnd fulltrúa samningsaðila, sem á að fylgj- ast með framvindu í, verðlags- og atvinnumálum, getur sagt þeim upp með mánaðar fyrir- vara fyrir 1. janúar 1996 ef marktæk frávik hafa orðið á samningsforsendum. Launahækkun viö undirskrift Fulltrúar sex landssambanda, auk nokkurra félaga og sam- banda innan Þjónustusambands íslands, undirrituðu átta aðal- kjarasamninga aðfaranótt þriðjudagsins 21. febrúar. Þeg- ar samningamenn höfðu ritað nöfn sín undir þau plögg sem þar lágu frammi leit næsta framtíð þeirra þannig út: Öll mánaðarlaun hækkuðu um 2700 krónur og að auki hækkuðu öll laun undir 48 þús- und krónum um eitt þúsund krónur. Sú tala lækkar um eitt hundrað krónur fyrir hverjar 4000 krónur sem launin eru hærri en 48 þúsund krónur, þannig að lægstu laun hækka um 3700 krónur en við 84 þús- und króna laun er þessi sérstaka hækkun horfin og heildarhækk- unin verður 2700 krónur (sjá töflu). Þessar hækkanir miðast við föst laun fyrir dagvinnu, að yf- irborgun meðtalinni, sem þýðir að atvinnurekendum er heimilt að reikna yfirborgun á móti launahækkuninni. Reiknitölur vegna hreinnar ákvæðisvinnu, án tímakaups- greiðslna, hækka um 3,2% en reiknitölur í bónus- og premíu- kerfum, sem byggjast á ttma- kaupi, verða óbreyttar. Launahækkun ó næsta óri Um næstu áramót hækka öll laun félagsmanna í Samiðn, sambandi iðnfélaga, og Rafiðn- aðarsambandi Islands um þrjú prósent en laun félagsmanna V erkamannasambandsins, Landssambands íslenskra versl- unarmanna, Verzlunarmannafé- lags Reykjavíkur, Landssam- bands iðnverkafólks og félaga innan Þjónustusambands Is- lands hækka um 2700 krónur. Þetta er þó háð því að samning- unum verði ekki sagt upp áður. Þá var samið um launabætur með sama sniði og í eldri samningum. Slíkar bætur fá þeir sem höfðu á viðmiðunar- tímabili haft heildartekjur undir 80 þúsund krónum á mánuði. Þessar greiðslur verða endur- teknar árið 1996 verði samn- ingunum ekki sagt upp fyrir áramót og verða inntar af hendi tvisvar hvort árið, í maí og des- ember. Orlofsuppbót verður einnig óbreytt, 8000 krónur fyrir fullt starf en hlutfall af þeirri upp- hæð miðað við starfshlutfall og starfstíma, eins og verið hefur. Óskert desemberuppbót verður 13 þúsund krónur á árinu fyrir þá sem hennar njóta samkvæmt samningum Alþýðusambands- ins. Hún hækkar í 15 þúsund krónuráárinu 1996. Fjallað er um efni samning- anna, hvað varðar launabreyt- ingar og önnur sameiginleg at- riði, í Fréttabréfi ASÍ, 3. tbl. 1995, og Vinnan hvetur Al- þýðusambandsfélaga til að kynna sér þá þar og hafa sam- band við stéttarfélög sín eða skrifstofu Alþýðusambandsins ef nánari útskýringa er þörf. 4 VINNAN - TÍMARIT ALÞÝÐUSAMBANDS ÍSLANDS

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.