Vinnan


Vinnan - 01.03.1995, Blaðsíða 9

Vinnan - 01.03.1995, Blaðsíða 9
Þetta finnst þeim um kjarasamningann Hvaö segir launafólk, félagar í verkalýðsfélögum innan Alþýöusambandsins, um nýgerða kjarasamninga? Vinnan fór á nokkra vinnustaði til að heyra hljóðið í fé- lögunum. Viðtölin áttu sér stað föstudaginn 24. febrúar, þegar enn átti eftir að bera samningana upp í allmörgum félögum. Þórunn Haraldsdóttir, trúnaðarmaður hjá Granda í Reykjavík; Verkakvennafélagið Framsókn — Þessi niðurstaða er náttúr- lega mjög góð miðað við þá samninga sem hafa verið gerðir að undanförnu. Mér finnst þó að þeir hefðu mátt taka gildi strax, ekki á tveim- ur árum. Það hefði líka mátt leggja meiri áherslu á að fá skatt- leysismörkin hækkuð meira því vinni maður yfirvinnu fær maður ekkert fyrir það. Það fæst ekkert fyrir það þótt unnið sé myrkranna á milli, þetta er allt hirt. En ætli maður neyðist samt ekki til að samþykkja þetta? Gréta Jónsdóttir, starfsmaður í Hag- kaupum, Skeifunni; Verzlunarmannafélag Reykjavíkur — Mér líst bæði vel og illa á þessa samninga. Það er margt í sérkröfum sem vantar, meðal annars það að við getum flutt orlof milli vinnustaða. Það vantar líka að fá viðurkennda veikindadaga vegna veikinda barna; það kemur sérstaklega illa við einstæða foreldra. Það sem er gott við þá er að þessi leið var valin sem lyftir allra lægstu laununum. Það er spor í rétta átt. Auðvitað hækkuðu launin Símon Gunnarsson, Eimskipafélaginu, trún- aðarmaður í Sundahöfn; Verkamannafélagið Dagsbrún — Mér líst illa á samningana, mjög illa. Þetta er í fyrsta lagi allt of lítið og menn mega ekki gleyma því að við höfum ekki samið um neinar kjarabætur sem við getum kallað því nafni í sex eða átta ár. Eg hefði viljað sjá allra lægstu launin fara í 60 þúsund í það minnsta. Við megum held- ur ekki gleyma því að stór hluti af Dagsbrúnarmönnum vinnur hjá fyrirtækjum sem skila stór- kostlegum hagnaði; þá erum við að tala um skipafélögin, ol- íufélögin, Mjólkursamsöluna, ekki nógu mikið. En það er ekki hægt að fara fram á stökkbreytingu það má ekki spenna bogann of hátt, maður tapar stundum á því. Granda og svo framvegis. En við erum í rauninni ekkert að semja við Eimskip því allir okkar sérkjarasamningar fara beint í gegnum Vinnuveitenda- sambandið. Það er þó Ijós punktur í þessu að við fáum skattleysis- Smári Stefánsson, lagermaður hjá Slippfélaginu; Iðja, félag verksmiðjufólks — Mér líst sæmilega á samningana miðað við ástandið í þjóðfélaginu. Þetta var ágætis lending. Ánægð- astur er ég með það að loks- ins hækkuðu lægstu laun meira en önnur. mörkin upp um 2000 kall, ef ég man rétt, og breytingin á láns- kjaravísitölunni var algjör for- senda þess að þessir samningar fengjust í gegn. Símon kvaðst ekki reiðubú- inn að segja til um hvort hann ætlaði að styðja samningana á félagsfundi Dagsbrúnar eða ekki, hann þyrfti að sofa á því. — En það verður að koma fram að ég tel verkföll vera úr- elt í kjarabaráttunni, þótt því miður sé það eina vopnið sem við höfum. Hins vegar er að hans dómi svo sorfið að fólki að það getur ekki misst einn einasta dag úr vinnu. Þegar við spjölluðum við hann hafði hann helgina fyrir sér til að gera upp hug sinn. Markmið verkefnisins Frumkvæði - Framkvæmd er að aðstoða iðnfyrirtæki við að afla sér ráðgjafar. Það er gert undir stjórn verkefnisstjóra og með fjárhagslegum stuðningi. Aðstoð er veitt á eftirtöldum sviðum: Stefnumótun Fjárhagsleg endurskipulagning og fjármálastjórnun Vöruþróun og markaðsaðgerðir Skipulagning framleiðslu Gæðastjórnun Umsóknareyðublöð fást hjá Iðntæknistofnun, Iðnlánasjóði og atvinnuráðgjöfum víðs vegar um landið. Frekari upplýsinar gefur Karl Friðriksson í síma 687000. IÐNLÁNASJOÐUR Iðntæknistofnun II Ármúla I3A. 155 Reykjavík. Sími 568 0400. Telefax 568 0950 Kcldnaholt. 112 Reykjavík. Sími 587 7<XX). Telefax 587 7409 VINNAN - TÍMARIT ALÞÝÐUSAMBANDS ÍSLANDS 9

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.