Vinnan


Vinnan - 01.03.1995, Blaðsíða 27

Vinnan - 01.03.1995, Blaðsíða 27
Vissum ekki hvað fólst í því að vera verktaki Þétt handtak, rólegur talandi og bak viö orðin er greinileg festa og ákveðni. Hann heitir Vign- ir Hjálmarsson og hefur ákveðið að segja frá reynslu sinni í von um að hún megi verða öðrum víti til varnaðar. Vignir vinnur sem rafeinda- virki fyrir Islenska útvarpsfé- lagið (ÍÚ) í tengslum við myndlyklaverkefni Stöðvar 2. Hann vinnur á vöktum og er á tímakaupi en er engu að síður ráðinn sem verktaki. Hann er ráðinn tímabundið til 31. mars og við ráðningu var honum strax gert ljóst að ef hann sætti sig ekki við verktakasamning yrði ekki um neina vinnu að ræða. — Ég vissi í rauninni ekki út á hvað verktakasamningur gekk í byrjun. Það var ef til vill vanhugsað að kynna sér ekki málin betur en samningurinn var undirbúinn af lögfræðingi og maður hélt að allt væri í lagi, segir Vignir í samtali við Vinnuna. Sú hefur hins vegar ekki orðið raunin og Vignir telur mjög hæpið að samningur hans við IÚ geti staðist sem verk- takasamningur. Launþegar í dagvinnu — verktakar í yfirvinnu Vignir er einn af sex mönnum sem vinna á verkstæði mynd- lyklaverkefnisins. Þrír þeirra eru launþegar en hinir verktak- ar eins og Vignir. — í byrjun vorum við aðal- lega að gera við myndlykla og unnum bara dagvinnu. En þeg- ar dreifing nýju lyklanna fór af stað varð meira að gera og í framhaldi af því var vinnufyrir- komulagi breytt. I nýja fyrir- komulaginu fólst að fjórir menn voru settir á vaktir en tveir voru ekki á vöktum. Þeir voru aðal- lega í tengingum á myndlykl- um. Alagið var hins vegar svo mikið að auk vaktanna urðu menn að vinna mikla yfirvinnu og yfirmenn IÚ gerðu athuga- semdir við það, segir Vignir. Yfirmenn fyrirtækisins ákváðu því að launþegamir þrír ættu að skila yfirvinnunni sem verktakar en sú ákvörðun var Hvað fylgir því að vera verktaki? AMissir réttar til launa í veikindum AMissir slysatryggingar AGreiðsla 10% iðgjalds til lífeyrissjóðs í stað 4% A Verktaki þarf að standa skil á staðgreiðslu skatta A Verktaki þarf að greiða tryggingagjald af eigin vinnu AOrlofsgreiðslur falla niður AUppsagnarfrestur fellur niður A Verktaki er bókhaldsskyldur, þarf að telja fram til skatts sem atvinnurekandi og standa skil á virðisaukaskatti. Vignir Hjálmarsson rafeindavirki segir lesendum Vinnunnar af samskiptum sínum við Islenska útvarpsfélagið í von um að hún megi verða öðrum víti til varnaðar. tekin án samþykkis launþeg- anna og Vignir telur að með því hafi samningar launþega verið brotnir. A fundi í janúar var bent á þetta samningsbrot og báru forráðamenn ÍÚ fram af- sökun en engin leiðrétting hefur verið gerð. Vignir bendir á að auk lægri launa fylgi verktökunni ýmis aukakostnaður. Skyndilega þurftu launþegarnir að standa skil á opinberum gjöldum, meðal annars að borga í trygg- ingasjóð og skila virðisauka- skatti af seldri vinnu. — Margir hafa kannski enga þekkingu á þessu og þurfa til dæmis að kaupa sér þjónustu til að fylla út eyðublöð vegna op- inberra gjalda sem þarf að skila mánaðarlega og einnig skatt- skýrslu þar sem hún verður mun flóknari við þetta, segir Vignir. Forsendur verktaka- samnings fóar Þessi ágreiningur vegna yfir- vinnu þeirra sem voru á laun- þegasamningum varð til þess að Vignir fór að skoða reglur um verktakasamninga nánar. Eins og fyrr segir vinnur hann vaktavinnu og er á tímakaupi og ræður því ekki vinnutíma sínum. Honum er ekki heldur heimilt að fá annan aðila til að vinna fyrir sig eins og eðlilegt væri í verktakasamningi. í byrj- un skorti verkfæri og Vignir og starfsfélagar hans fengu verk- færapeninga sem þeir keyptu sjálfir verkfæri fyrir. Öll stærri tæki eru hins vegar í eigu IÚ. Forsendur verktakasamnings virðast því fáar. Vignir bendir jafnframt á að samkvæmt iðn- aðarlögum verði viðkomandi að vera meistari til að geta unn- ið samkvæmt verktakasamn- ingi. Slíkt er ekki um að ræða í þessu tilviki því enginn þeirra sexmenninga hefur slík réttindi. Vignir varð ýmislegs vísari þegar hann fór að skoða samn- ingana nánar. — Við erum ráðnir sam- kvæmt samningum Rafiðnaðar- sambands íslands (RSÍ) og vinnum sömu störf og aðrir RSI-félagar. Þrátt fyrir það var VINNAN - TÍMARIT ALÞÝÐUSAMBANDS ÍSLANDS 27

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.