Vinnan


Vinnan - 01.03.1995, Side 8

Vinnan - 01.03.1995, Side 8
Áhrif nýgerðra kjarasamninga Hækkun ráðstöfunartekna mismunandi tekjuhópa Skattalækkun breytir litlu um kjarajöfnun Á myndinni sem hér fylgir eru sýnd áhrif kjarasamn- inganna á ráðstöfunar- tekjur á komandi samn- ingstíma. í þessum reikn- ingum er gengið út frá því að þeir sem hafa meira en 90 þúsund króna mán- aðartekjur fái 3% hækkun í janúar 1996 og jafnframt er reiknað með heildar- áhrifum lækkunar á skatt- lagningu lífeyristekna þó svo að seinasta áfangan- um verði ekki náð fyrr en á miðju ári 1997. Kjarbótum á samningstím- anum má skipta í tvennt. I fyrsta lagi er hækkun kauptaxta sem miðast fyrst og fremst við að hækka lægstu launin meira en hin hærri. Lægri laun hækka hlutfallslega meira en hærri laun og í krónutölu hækka þau meira en laun allt að 120 þús- undum. Hærri laun hækka um fleiri krónur en lægstu launin. Með því að hækka lægstu kauptaxtana hlutfallslega mest næst meiri tekjujöfnun en ef persónuafsláttur hefði verið hækkaður eða skatthlutfall lækkað. Slíkar aðgerðir ná ekki til launa undir skattleysismörk- um. I öðru lagi fékkst fram að fella skuli niður að öllu leyti skattlagningu á 4% framlagi launþega í lífeyrissjóði. Þar til staðgreiðsla skatta var tekin upp árið 1988 voru greiðslur í lífeyrissjóði skattfrjálsar en með skattlagningu þeirra var tekin upp tvísköttun á lífeyris- greiðslum. Frá þeim tíma hefur Alþýðusambandið barist fyrir því að fá þessa tvísköttun afnumda. Þar sem lífeyris- greiðslur eru hlutfall af launum verður skattleysi þeirra ekki til að jafna tekjur. Vegna þess að skatthlutfallið er hærra af hærri tekjum en þeim lægri hækka hærri ráðstöfunartekjur hlut- fallslega aðeins meira en lægri tekjur við þessa aðgerð. Aftur á móti lækka skattar á lægri tekj- um hlutfallslega meira en á þeim hærri. Eins og kemur fram á með- fylgjandi mynd leiða kjara- samningarnir til verulegrar kjarajöfnunar og breyta áhrif skattalækkunarinnar litlu um það. Aftur á móti hækkar skattalækkunin ráðstöfunartekj- ur, sem leiðir til þess að kaup- máttur hæstu ráðstöfunartekna eykst lítillega á tímabilinu. Lægstu ráðstöfunartekjur hækka um 14,5%, tekjur um skattleysismörk um 10%, 80 þúsundin um 9%, 90 þúsundin um 8% og síðan 300 þúsundin um 6,8%. Ætla má að verð- bólgan verði um 5,3% á um- ræddu tímabili svo lægstu ráð- stöfunartekjur hækka um 9% á tímabilinu en hæstu ráðstöfun- artekjumar um 1%. Eftir Guðmund Gylfa Guðmundsson, hagfræðing ASI 8 VINNAN - TÍMARIT ALÞÝÐUSAMBANDS ÍSLANDS

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.