Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 4
TÖLUR VIKUNNAR 07.02.2021 TIL 13.02.2021
8.900
milljarða króna kostnaður er
talinn vera vegna hliðarverkana
laxeldis í heiminum.
60
fyrirtæki grafa
eftir rafmynt
hérlendis. 737
börn, 12 mánaða og eldri, eru
á biðlista eftir leikskólaplássi í
Reykjavík.
Þrjú í fréttum
Oddviti, rektor
og fræðslustýra
Arna Lára Jónsdóttir,
oddviti Í-listans í minnihluta bæjar-
stjórnar Ísafjarðarbæjar
leggst gegn áform-
um um sölu um
eitt hundrað
leiguíbúða
og 29 þjónustu-
íbúða aldr-
aðra til þess
að losa um fé til
byggingar knattspyrnuhúss
og minnka efnahagsreikning
bæjarins að auki. „Þú selur eignina
aðeins einu sinni,“ segir hún.
„Salan tekur ekki á vandanum
nema tímabundið. Við þurfum
að sníða okkur stakk eftir vexti
og ekki fara út í risastórar fram-
kvæmdir þegar við höfum ekki
efni á þeim.“
Jón Atli Benediktsson,
rektor Háskóla Íslands
segir skólann hafa
til skoðunar að
kaupa húsnæði
Hótels Sögu og
sé í því skyni
að r æ ð a v ið
menntamálaráðu-
neyti um kaupin.
Jón Atli segir það ódýrara að festa
kaup á Hótel Sögu, að gefnum til-
teknum forsendum, en að byggja
nýtt húsnæði. Húsnæðið krefjist
einhverra endurbóta til að aðlaga
það að skólastarfinu.
Tótla I. Sæmundsdóttir,
fræðslustýra Samtakanna ‘78
sagði nýlega í fyrir-
lestri að hinsegin
nemendur reyni
a ð f o r ð a s t
l e i k f i m i t í m a ,
b ú n i n g s k l e f a
og íþrót t a hú s .
„Krakkarnir eru að
forðast þessi kynjuðu rými. Þetta
er bara spurning um að búa til
rými þar sem allir geta fundið það
sem þeir þurfa. Ég heyri það í mínu
óformlega spjalli við unglinga að
ungmenni forðast rými þar sem
þeim finnst að öðrum líði óþægi-
lega í kringum þá.“
2.550
íbúðir er áformað að
reisa á á svæði Golfklúbbs
Setbergs.
117
ára Lucile
Randon
sigraðist á
COVID-19.
FERÐAÞJÓNUSTA Stórframkvæmd-
um á ferjunni Norrænu er að
ljúka og aðeins innréttingavinna
eftir. Kostnaðurinn er talinn vera
nálægt 16 milljónum dollara, eða
rúmum 2 milljörðum íslenskra
króna. Skipið fór í slipp þann 19.
desember í Fayard skipasmiðjuna í
Mynkebo í Danmörku.
Linda Björk Gunnlaugsdóttir,
framkvæmdastjóri Smyril Line á
Íslandi, segir framkvæmdirnar hafa
gengið vel og vera á áætlun. Þegar
tilkynnt var um breytingarnar í
september var stefnt á að ferjan yrði
ferðbúin 6. mars næstkomandi og
enn er staðið við þá dagsetningu.
„Við erum að setja ferjuna í and-
litslyftingu sem var kominn tími
á,“ segir Linda. Ferjan var smíðuð
árið 2003 í Þýskalandi en þar áður
hafði eldri ferja siglt frá árinu 1984.
Með nýju breytingunum verður 50
káetum fyrir 100 farþega bætt við
ofan á skipið sem heilli hæð. Ýmsum
nýjungum, svo sem útibar og heit-
um pottum, verður komið fyrir
um borð. Þá er einnig verið að gera
ýmsar endurbætur á öðrum hlutum
skipsins, svo sem veitingastöðum.
Hinar nýju káetur eru skilgreind-
ar sem lúxuskáetur en Linda segir
að Smyril Line sé ekki í auknum
mæli að stíla inn á farþega sem geta
leyft sér meiri lúxus. Það sé hópur
sem hafi alltaf siglt með ferjunni.
Í gegnum tíðina hafi káeturnar
verið endurbættar en nú hafi verið
kominn sá tímapunktur að taka
þróunina skrefi lengra.
Aðspurð um væntingarnar fyrir
ferðamannasumarið í ljósi farald-
ursins segir Linda þær sveiflast en
haldið sé í bjartsýnina. „Vænting-
arnar núna eru að upp úr miðju
sumri fari að glæðast og fólk fari að
hugsa sér til hreyfings. Við finnum
að það eru allir í biðstöðu og vilja
sjá hvernig bólusetningarnar ganga
bæði í þeirra löndum og á Íslandi,“
segir hún. Á hún þá einna helst
við ferðamenn frá Skandinavíu og
meginlandi Evrópu sem hafa hug á
að heimsækja Ísland.
Í viðtali við skipasmíðamiðilinn
Maritime Professional segir Jóhan
av Reyni, hinn færeyski forstjóri
Smyril Line, að verkefnið hafi verið
mikil áskorun. „Það voru ýmsir
hlutir sem hefðu getað orðið að
hindrunum, svo sem hvort að skipið
gæti borið meiri þunga, en þetta
reyndust vera ákaf lega athyglis-
verðar endurbætur,“ segir hann.
Útboð verkefnisins, sem endaði
í höndum danskra hönnuða og
skipasmíðamanna, hófst fyrir tæpu
ári síðan þegar faraldurinn var að
blossa upp í gervallri Evrópu. „Í
byrjun virtist þetta ómögulegt en
við ákváðum að halda áfram með
verkefnið af því að við vissum að
faraldurinn mun taka enda,“ segir
Jóhan.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Andlitslyfting Norrænu mun
kosta um tvo milljarða króna
Endurnýjuð Norræna mun hefja siglingar 6. mars og Smyril Line væntir þess að ferðamannastraumurinn
fari að glæðast síðla sumars. Káetum verður fjölgað og bætt við útibar og heitum pottum. Verkið var
boðið út stuttu áður en faraldurinn braust út í fyrra. Danskir hönnuðir og skipasmiðir hrepptu verkið.
50 káetum hefur verið bætt við, auk útibars, heitum pottum og nýs veitingastaðar ofan á skipinu. MYND/SMYRIL LINE
Við finnum að það
eru allir í biðstöðu
og vilja sjá hvernig bólu-
setningarnar ganga bæði í
þeirra löndum
og á Íslandi.
Linda Björk
Gunnlaugsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Smyril Line
RAFMAGNAÐ ÆVINTÝRI MEÐ ALVÖRU 4X4
Einu rafknúnu Plug-In Hybrid jepparnir í sínum stærðarflokki með lágt drif.
Ótrúlegt verð á bílum hlöðnum lúxusbúnaði.
JEEP COMPASS PLUG-IN HYBRID VERÐ 5.999.000 KR.* JEEP RENEGADE PLUG-IN HYBRID VERÐ 5.499.000 KR.*
*G
ildir m
eðan birgðir endast, hvítur R
enegade, svartur Com
pass Lim
ited.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð