Fréttablaðið - 13.02.2021, Side 6
VELFERÐARMÁL Arnar Gunnar
Hjálmtýsson, forstöðumaður Betra
lífs, sem rekur eitt þriggja áfanga-
heimila sinna í Fannborg í Kópa-
vogi, segist hafa óskað eftir því að
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu
veiti styrk til að ráða megi nætur-
verði að heimilinu.
Umtalsverð sala á fíkniefnum fer
fram á svæðinu í kringum Fann-
borg og Hamraborg eins og fram
kom í Fréttablaðinu í gær. Gefur
auga leið að slík undirheimastarf-
semi fer illa saman við rekstur
áfangaheimilis þar sem íbúarnir
reyna eftir mætti að halda sér alls-
gáðum á meðan þeir bíða eftir að
komast í meðferð á Vogi.
„Það eru menn að koma inn í
húsið eftir að við sem erum að
vinna þarna erum farin,“ segir
Arnar. „Þessi beiðni á sér það til-
efni að það dó hjá okkur kona úr of
stórum skammti. Ég sá á myndavél-
um að það fór einhver maður, sem
átti ekki heima á áfangaheimilinu,
inn á herbergið hennar nóttina
áður. Ég komst síðan að því að þetta
væri þekktur dópsali. Það er mjög
líklegt að hann hafi verið að selja
henni eitthvað.“
Arnar kveðst því vonast til að
styrkbeiðnin vegna næturvörslu
fái jákvæðar undirtektir. „Einhvers
staðar verður þetta fólk að vera,
það er ekki til neitt pláss fyrir það.
Þarna tek ég inn fólk sem er að bíða
eftir að komast í meðferð og er að
berjast við að vera edrú og þetta er
það sem okkur vantar,“ segir hann.
Í Fannborg séu 24 fullbúin herbergi
sem jafnan séu fullskipuð.
Áfangaheimilið í Fannborg er eitt
þriggja sem Arnar rekur. Hin tvö
heimilin segir hann fyrir fólk sem
sé að koma úr meðferð. Í þeim séu
samtals 22 herbergi. „Þar gengur
mjög vel og þarf enga gæslu,“ segir
hann.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í október síðastliðnum óskuðu
Arnar og félagar hans í Bláa band-
inu eftir því að fá gamla Víðines-
heimilið á Álfsnesi til að innrétta
þar meðferðarstöð. Hann segir
þá sjálfa ekki ætla að reka stöðina
heldur sjá um að standsetja bygg-
ingarnar í sjálf boðavinnu. Ekki sé
hægt að bjóða fólki upp á sex mán-
aða bið eftir að komast í áfengis-
og fíkniefnameðferð. „Það er bara
þjóðfélaginu til skammar.“
gar@frettabladid.is
Vill næturvörslu eftir
dauðsfall í Fannborg
Óskað er eftir styrk frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu til að ráða
næturverði á áfangaheimili Betra lífs í Kópavogi. Tilefnið er sagt vera dauðsfall
konu sem bjó á heimilinu eftir að fíkniefnasali heimsótti hana um miðja nótt.
Kynferðisofbeldi mótmælt
Ungir aðgerðasinnar settu á svið jarðarför í Katmandú í Nepal til að mótmæla nauðgunum og kynferðisof beldi þar í landi. Hundruð mótmælenda
tóku þátt í göngu til að mótmæla auknu kynferðisof beldi og heimilisof beldi í garð kvenna. Einn mótmælandinn þóttist vera látin á meðan aðrir
héldu á henni. Mótmælin spruttu í kjölfar dauða 17 ára gamallar stúlku sem var nauðgað og hún myrt á föstudaginn í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Arnar Gunnar Hjálmtýsson við áfangaheimili í Fannborg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þarna tek ég inn
fólk sem er að bíða
eftir að komast í meðferð og
er að berjast við að vera
edrú og þetta er það sem
okkur vantar.
Arnar Gunnar Hjálmtýsson,
forstöðumaður Betra lífs
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
mánuda -f studaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
A stu strönd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
VELDU GÆÐI!
Taktu forskot á Bolludaginn
Þú færð gómsætar bollur hjá okkur
alla helgina.
ÁFENGI Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins hefur fengið samþykkta
stækkun á bjórkælinum í Heiðrúnu
á kostnað vörulagersins.
ÁTVR sótti um til byggingar-
fulltrúa að minnka vörulager og
stækka bjórkæli og verslun. Einn-
ig á að breyta starfsmannarými og
snyrtingum og fyrirkomulagi í Vín-
búðinni auk þess sem skrifstofu er
breytt.
ÁTVR tilkynnti í gær um lokun
á Vínbúðinni í Borgartúni frá og
með mánudeginum 22. febrúar. Í
tilkynningu frá ÁTVR kemur fram
að það harmi þessa niðurstöðu en
því miður séu ekki aðrir valkostir
að svo stöddu. – bb
Bjórkælirinn í Heiðrúnu stækkar
STJÓRNMÁL Áhugafólk um nýja
stjórnarskrá mun ekki bjóða fram
framboðslista til alþingiskosning-
anna í september. „Þessi umræða
kemur alltaf upp við og við en það
er enginn þungi í henni á þessum
tímapunkti,“ segir Katrín Odds-
dóttir, formaður félagsins.
Lýðræðisvaktin bauð fram til
þings árið 2013, með áherslu á
stjórnarskrármálið. Nokkrir stjórn-
lagaþingsfulltrúar voru á lista, svo
sem Þorvaldur Gylfason, Örn Bárð-
ur Jónsson, Lýður Árnason og Þór-
hildur Þorleifsdóttir. Flokkurinn
hafði aðeins 2,5 prósent úr krafsinu.
Stjórnarskrármálin hafa verið
nokkuð til umræðu á árinu, meðal
annars vegna undirskriftalista sem
43.500 manns skrifuðu undir.
Katrín segir að félagið muni beita
sér í kosningabaráttunni þótt það
verði ekki í kjöri.
Hún er þó þögul um þær áætlanir
en segir að félagið muni styðja við
málflutning þeirra frambjóðenda
sem beita sér fyrir nýrri stjórnar-
skrá og hvetja fólk til að kjósa ekki
þá sem standa vörð um óbreytt
kerfi. Nefnir hún helst Sjálfstæðis-
flokkinn í því samhengi. – khg
Félagið verður
ekki í framboði
til þings í haust
Katrín Odds-
dóttir, formaður
Stjórnarskrár-
félagsins
Vínbúðinni í Borgartúni
verður lokað 22. febrúar.
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð