Fréttablaðið - 13.02.2021, Síða 8

Fréttablaðið - 13.02.2021, Síða 8
Þjálfun í litlum hópum hefur sýnt að ekki einungis verður þjálfunin betri, en vin- skapur myndast og er markmiðið að félagsskapur- inn drífi þátttakendur áfram. Guðríður Torfadóttir þjálfari Sjö íslensk skip sukku á árinu 2020 en engin bana- slys urðu við strendur landsins, fjórða árið í röð. SAMFÉLAG Verkefnið Styrkur og vel- líðan sem hannað er af Hinu húsinu hlaut á dögunum styrk frá Lýð- heilsusjóði en námskeiðið er ætlað ungmennum á aldrinum 16-19 ára sem vilja auka virkni og félagsleg tengsl. Berglind Rún Torfadóttir, verkefnastjóri hjá Hinu húsinu segir markmiðið með námskeiðinu vera að kynna þátttakendur fyrir því hvernig hreyfing getur bætt líkam- lega og andlega líðan. „Upplifun okkar í Hinu húsinu er sú að COVID-19 hefur dregið úr félagslegri virkni ungs fólks og að einangrun hafi aukist í samkomu- banni,“ segir Berglind. „Hugmyndin að verkefninu kviknaði í samkomu- banninu þegar framhaldsskólar voru í fjarnámi og líkamsræktar- stöðvar lokaðar,“ bætir hún við. Berglind segist sjálf hafa haft áhyggjur af stöðunni sem aðstæð- urnar í samkomubanninu sköpuðu í lífi ungmenna og sérstaklega and- legri líðan. „Hreyfing eykur vellíðan og styður við almenna andlega- og líkamlegu heilsu. Þátttaka í hreyf- ingu, þá sérstaklega í hópi, stuðlar að félagslegri virkni og oft eignast maður góða æfingafélaga,“ segir hún. „Góð, félagsleg tengsl leiða til aukinnar vellíðunar og munum við hafa það að leiðarljósi í okkar vinnu,“ segir Berglind. Námskeiðið er þannig sett upp að ungmennin mæta einu sinni í viku í Yama heilsu- rækt þar sem þjálfarinn Guðríður Torfadóttir, betur þekkt sem Gurrý, og Daníel Fjeldsted, einkaþjálfari, stjórna æfingu og segir Gurrý mark- miðið það að þátttakendur hafi sjálfstraust til að fara sjálfir af stað í hreyfingu að námskeiðinu loknu. „Þjálfun í litlum hópum hefur sýnt að ekki einungis verður þjálfunin betri, en vinskapur myndast og er markmiðið að félagsskapurinn drífi þátttakendur áfram,“ segir Gurrý. Þá daga sem ekki verður farið í Yama hittist hópurinn í Hinu hús- inu þar sem lögð verður áhersla á að styrkja hópinn og hafa gaman. Berglind segist hafa orðið vör við það í sínu starfi að andlegri heilsu ungmenna hafi hrakað í faraldr- inum og að rannsóknir sýni fram á að einmanaleiki hafi aukist. „Það er einnig í takti við það sem við höfum séð í okkar starfi,“ segir Berglind „Við hvetjum alla á þessu aldurs- bili til að sækja um aðild að nám- skeiðinu á heimasíðu Hins hússins og ekki skemmir fyrir að námskeiðið kostar ekki krónu fyrir þátttakend- ur,“ segir Berglind. „Lokun líkams- ræktarstöðva hefur haft mismikil áhrif á fólk en það er nauðsynlegt fyrir alla að hafa rútínu og við telj- um að hreyfing sé góð leið til þess.“ birnadrofn@frettabladid.is Bæta félagslega virkni unglinga á námskeiði Verkefnið Styrkur og vellíðan hlaut nýlega styrk frá Lýðheilsusjóði. Nám- skeiðið er ætlað 16 til 19 ára ungmennum sem vilja auka virkni og félagsleg tengsl. Verkefnastjóri segir COVID hafa haft mikil áhrif á líðan ungmenna. Berglind Rún Torfadóttir og Breki Bjarnason, Hinu Húsinu, stýra verkefninu Styrkur og vellíðan. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SJÓSLYS Í ársskýrslu rannsóknar- nefndar samgönguslysa um sjóatvik kemur fram að skráð atvik fyrir árið 2020 voru alls 93, sem er lækkun frá fyrri árum. Flest skráð atvik eru á norðvestursvæði, eða 40. Það svæði nær frá Snæfellsnesi að Siglufirði. Næstf lest voru á suðvestursvæði, eða 23, sem er svæðið frá Dyrhólaey að Snæfellsnesi. Engin banaslys urðu á íslenskum sjómönnum við strendur landsins á árinu 2020, sem er sjöunda árið sem það gerist og fjórða í röð. Skráð slys á fólki á árinu 2020 voru 58, engin slys voru skráð hjá nefnd- inni á fiskibátum undir 20 brúttó- tonnum. Samk væmt samantekt voru algengustu slysin að klemmast eða verða á milli, 17 talsins. Önnur algeng slys voru fallslys af ýmsum toga, slys við vindur ásamt ytri áverkum. Meðalaldur slasaðra var 43 ár en þeir sem voru yngstir til að slasast voru tveir 20 ára hásetar á togveiðiskipum. Sá elsti sem slas- aðist var 66 ára matsveinn á dýpk- unarskipi. Eins og fyrri ár eru það undir- menn á skipum sem slasast í mikl- um meirihluta, eða 79 prósent. Flest slysin koma fyrir háseta, eða 36, sem eru 62 prósent af öllum slysum. Aðrir undirmenn sem slasast mest eru netamenn og matsveinar. Sjö skip sukku á árinu, fimm vegna snjóf lóðs á Flateyri, eitt langleguskip í Hafnarf irði og eitt togveiðiskip við bryggju á Stöðvarf irði. Fjórar ásiglingar voru skráðar á árinu, þrjár gerð- ust í höfn og ein á ytri höfninni í Reykjavík, en þar varð slys á far- þega á skemmtibát. – bb Hásetar slasast oftast úti á rúmsjó Hetjur hafsins slasast úti að sækja verðmætin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Auglýst er eftir umsóknum um árlega styrki úr Barnamenningarsjóði Íslands. Sjóðurinn er átaksverkefni til fimm ára, stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins á hátíðarfundi Alþingis 18. júlí 2018. Hlutverk sjóðsins er að styðja fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Verkefni sem stuðla að lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu eða taka mið af inntaki Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hafa sérstakt vægi. Áhersla er lögð á samstarf tveggja aðila eða fleiri, svo sem menningarstofnana, skóla, listafólks og félagasamtaka og er hvatt til þess að samstarfsverkefni séu unnin í samstarfi ólíkra aðila, t.d. að stofnanir leiti samstarfs við skapandi einstaklinga fremur en við aðrar stofnanir. Umsóknarfrestur rennur út 7. apríl 2021 kl. 15.00. Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á barnamenningarsjodur.is. Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi. Rannís, Borgartúni 30, 105 Reykjavík Sími 515 5800, barnamenningarsjodur@rannis.is Styrkir úr Barnamenningarsjóði Umsóknarfrestur er til 7. apríl kl. 15.00 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.