Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 10
11 mínútna löng samantekt af ýmsum demókrötum að segja orðið „berjast“ var sýnd í réttarhöldunum. UTANRÍKISMÁL Flugi tveggja öflugra rússneskra sprengjuvéla á norður- slóðum var beint af leið af her- þotum norska hersins á þriðjudag. Forbes greinir frá því að talið sé að flug þeirra sé svar við fyrirhuguðum æfingum bandaríska flughersins í næsta mánuði, en einnig er hugsan- legt að vélarnar hafi átt að fljúga í átt að Íslandi og senda skilaboð til Atl- antshafsbandalagsins, NATO, vegna loftrýmisgæslu hér á landi. Kremlarstjórn sjálf tilkynnti ferð vélanna, sem eru öf lugustu sprengjuvélar flughersins, af gerð- inni Tu-160, og geta borið kjarna- vopn. Hafa þessar vélar meðal ann- ars verið notaðar til þess að varpa sprengjum á andspyrnumenn í Sýr- landi. Á friðartímum hafa þessar vélar verið notaðar til þess að senda óvinum Rússlands skilaboð. Ekki er óalgengt að rússneskar herflugvélar fari um norðurslóðir og sé vikið burt áður en þær koma að lofthelgi NATO-ríkja. Sú leið sem sprengjuvélarnar fóru er hins vegar talin óvanaleg, eins og verið væri að prófa nýja flugleið til hernaðar í átt að Íslandi. „Þetta gætu hafa verið skilaboð gagnvart loftrýmisgæsluverkefninu á Íslandi,“ segir Hans Kristensen, sérfræðingur í kjarnorkumálum hjá hugveitunni FAS í Bandaríkj- unum við Forbes. FAS var stofnað af vísindamönnum sem komu að gerð fyrstu kjarnorkusprengjunnar árið 1945 en hlutverk þess er að stuðla að heimsöryggi fyrir kjarnorku- vopnum. Ef út brytist stríð milli stórveld- anna er talið að GIUK-hliðið svo- kallaða, milli Grænlands, Íslands og Bretlands, yrði átakapunktur og skotmark rússneskra sprengjuflug- véla. Bandarískar sprengjuflugvélar, staðstettar á Íslandi, geta ógnað rússneskum skotmörkum, til að mynda höfnum. „Þetta gerir Ísland að mikilvægu skotmarki fyrir rúss- neska flugherinn,“ segir Kristensen. Rússnesku vélarnar tvær flugu frá herstöð í borginni Engels í vestur- hluta Rússlands norður í Íshaf. Þaðan vestur til Svalbarða og suður yfir Noregshaf. Tvær orrustuþotur norska flughersins, af gerðinni F-16, flugu þangað og beindu þeim af leið. Héldu þær þá austur og aftur til Eng- els. Joe Biden, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, gerði Vladímír Pútin Rússlandsforseta það ljóst að stefna Bandaríkjanna gagnvart Rússlandi væri breytt. Rússar myndu ekki lengur fá að vaða uppi eins og í stjórnartíð forvera hans. Æfingarnar í Noregi eru til marks um þetta og Rússar hafa mótmælt þeim harðlega. Í æfingunni munu stórar, bandarískar sprengjuvélar, af gerðinni B-1, æfa með norskum vélum af gerðinni, F-35. „Við fylgjumst áhyggjufull með hvernig Noregur leyfir háskaleik útlendinga á eigin landsvæði,“ segir í yfirlýsingu rússneska sendiráðsins í Noregi. „Við erum sannfærð um að það séu engin vandamál í Evr- ópu sem réttlæti komu bandarískra sprengjuflugvéla.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Sprengjuvélum Rússa bægt frá Íslandi Norski flugherinn beindi tveimur rússneskum sprengjuvélum, sem geta borið kjarnorkuvopn, af leið. Þær voru á óvanalegri leið í átt að Íslandi. Fluginu líklega ætlað að senda NATO skilaboð. Svæði milli Íslands og Grænlands gæti orðið átakapunktur í ófriði. Tupelov Tu-160 er öflugasta sprengjuvél rússneska flughersins og getur borið kjarnorkuvopn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Við erum sannfærð um að það séu engin vandamál í Evrópu sem réttlæti komu bandarískra sprengjuflugvéla. Rússneska sendiráðið í Noregi BANDARÍKIN Verjendur Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkja- forseta, f luttu mál sitt í réttarhöld- unum yfir honum í öldungadeild Bandaríkjaþings í gær. Demókratar ákærðu Trump í annað skipti fyrir embættisbrot fyrir um mánuði síðan. Í þetta skipti er hann sakaður um að hafa hvatt til árásarinnar á þinghúsið 6. janúar síðastliðinn. Áður en réttarhöldin hófust í gær sögðu verjendur Trumps að þeir myndu klára málflutning sinn sama dag. Þeir nýttu sér því aðeins tvo daga til að flytja mál sitt. Lögmenn Trumps hófu málflutn- ing sinn á að segja réttarhöldin vera pólitískar nornaveiðar sem væru ekki á rökum reistar. Þeir sögðu að Trump hafi ekki hvatt stuðnings- menn sína til of beldis og hafi alltaf beitt sér fyrir löghlýðni og rétti til friðsamlegra mótmæla. Máli sínu til stuðnings sýndu þeir nokkur myndbönd, sum hver skeytt með dramatískri tónlist. Eitt þeirra bar saman ummæli Trumps til hliðar við ummæli fjölda demó- krata sem þeir töldu sambærileg og sýndu fram á að forsetinn fyrr- verandi hafi ekki hvatt til of beldis. Annað myndband var ellefu mínútna löng samantekt af demó- krötum að segja orðið „berjast“ við ýmsar aðstæður, en notkun Trumps á orðinu í ræðu sinni til stuðnings- manna sinna var ein af ástæðum demókrata fyrir ákærunni á hendur honum. Lögmenn Trumps sögðu mynd- bandið sýna að hægt væri að nota orðið án þess að hvetja til of beldis, og að demókratar hefðu tekið orð Trumps úr samhengi. Réttarhöldin halda áfram næstu daga en líkur eru taldar á að Trump verði sýknaður af ákærunum. Til þess að hann verði sakfelldur þurfa allir f immtíu þingmenn demó- krata og sautján þingmenn repúbl- ikana að greiða atkvæði þess efnis, en  margir repúblikanar hafa lýst yfir að þeir muni ekki beita sér fyrir sakfellingu. – atv Skjótur málflutningur hjá lögmannateymi Trumps David Schoen, lögmaður Trumps, sakaði demókrata um hræsni í málsvörn sinni í réttarhöldunum í gær. Málsvörnin tók fljótt af. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Fulltrúar launamanna í stjórn Birtu lífeyrissjóðs Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2021 til 2023. Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.9) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu stjórnarmanna. Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn (karl og konu) til tveggja ára, einn stjórnarmann (karl) til eins árs og einn varamann (karl) til tveggja ára í stjórn sjóðsins. Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn framboð á útfylltu framboðseyðublaði, sem er að finna á vefnum birta.is, á netfangið valnefnd@birta.is fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 18. febrúar 2021. • vera launamenn sem greiða iðgjald í Birtu lífeyrissjóð. • ekki vera sjálfstætt starfandi atvinnurekendur/einyrkjar. • vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv. 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum lögum, reglum FME, samþykktum sjóðsins og starfsreglum valnefndar. • Skila inn útfylltu framboðseyðublaði með drengskaparyfirlýsingu um að þeir uppfylli skilyrði til slíkrar stjórnarsetu. Allar nánari upplýsingar um stjórnarkjörið, framboðseyðublaðið/yfirlýsinguna og sjóðinn má finna á vefnum birta.is ÞEIR SEM GEFA KOST Á SÉR SKULU Birta lífeyrissjóður I Sundagörðum 2 I 104 Reykjavík I 480 7000 I birta.is 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.