Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.02.2021, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 13.02.2021, Qupperneq 30
Hann afi minn hafði mikla trú á mér og það er dýrmætt veganesti að finna fyrir tiltrú annarra. Hann var sá sem hvatti mig til að læra arkitektúr en ég var ekkert endilega á þeim buxunum þá. Ég vissi það eitt að ég vildi vinna mér inn góð laun og verða fjárhags- lega sjálfstæð en svo kom í ljós að maður fer ekki í arkitektúr til að fá góð laun,“ segir Margrét Leifsdóttir og skellihlær. Hún er arkitekt og heilsumarkþjálfi. Afi Margrétar var Gísli Halldórs- son, landskunnur og mikilsvirtur arkitekt. Hann teiknaði meðal annars Laugardalshöllina, Laugar- dalsvöllinn, Tollhúsið og Hótel Loftleiðir, ásamt fjölda íþrótta- húsa og einbýlishúsa um land allt. „Ég hef oft borið mig saman við afa því hann var stór fyrirmynd í mínu lífi,“ segir Margrét, sem býr í húsi sem afi hennar teiknaði og bjó í á Tómasarhaganum. Afi hennar byggði sömuleiðis vinnustofu í garðinum þar sem Margrét starfar nú sem arkitekt hjá A - arkitektum. „Ég hugsa stundum: „Vá, hvað afi var búinn að hanna mörg hús á mínum aldri, en ég ekki eins mörg“, en við áttum ekki bara arkitektúrinn sameiginlegan. Afi hafði líka brennandi áhuga á lýðheilsumálum, hann var forseti ÍSÍ og Ólympíusambandsins, og stóð meðal annars fyrir framúr- stefnulegri herferð ÍSÍ um að landsmenn færu út að skokka sér til heilsubótar; nokkuð sem annar hver maður gerir í dag en einstaka furðufugl gerði í þá daga. Afi var líka upptekinn af góðum sam- skiptum og mjög hæfur í þeim, sáttfús og diplómatískur og mikið hægt að læra af honum.“ Lærði heilsumarkþjálfun eftir að hafa veikst Margrét hefur, eins og Gísli afi sinn, óþrjótandi áhuga á góðum samskiptum. „Mér finnst stóra málið í lífinu vera hvernig við tölum við okkur sjálf því það endurspeglar hvernig við tölum við aðra. Ef við erum góð við okkur sjálf, erum við líka góð við aðra, en ef við erum vond við okkur sjálf verður líka erfitt að sýna öðrum gæsku,“ segir Margrét, sem stendur fyrir námskeiðunum vinsælu „Tíu daga hreint mat- aræði“. Þar fer hún líka inn á góð mannleg samskipti og fleira sem tengist heilsumarkþjálfun. „Ég veiktist alvarlega árið 2007 og fór þá að læra heilsumarkþjálf- un til að hjálpa sjálfri mér. Ég var svo heppin að kynnast hafnfirsku fimleikastelpunni og heilsumark- þjálfanum Lindu Pétursdóttur og lærði síðar markþjálfun við sama skóla og hún. Eftir að hafa sótt námskeiðið „Tíu daga hreint mat- aræði“ hjá Lindu fór ég að hjálpa henni með námskeiðin og hélt svo áfram með þau hér á Íslandi, en Linda er nú búsett í Banda- ríkjunum,“ útskýrir Margrét, sem stundar líka nám í lífsráðgjöf (e. life coaching) hjá Guðna Gunnars- syni í Rope Yoga. Margrét hefur síðan bætt við fleiri frábærum námskeiðum sem heilsumarkþjálfi. „Ég bý til námskeið sem ég væri sjálf spennt fyrir að sækja. Það er svo mikil alvara í lífinu og þess vegna nauðsynlegt að leika sér sem mest. Í nóvember bjuggum við Tinna Thorlacius hómópati til föstu- og sjóbaðsnámskeið, en höfum síðan haldið áfram með sjó- baðsnámskeiðin og hvílt fösturnar í bili. Þar förum við með fólk í létt sjóböð og strandpartí í fjörunni. Sjóböð hafa mögnuð áhrif til góðs á líkamann og meðal annars mjög góð áhrif á exem. Það er magnað að sjá þátttakendur sigrast á sjálfum sér, fara út fyrir þægindahring sinn og stækka þar með heimildina sína. Það er svo gaman að rækta heilsuna með hópi af góðu fólki. Mér finnst gleðin ómissandi á námskeiðum og mun eflaust hætta að halda þau þegar mér finnst þau ekki lengur spennandi sjálf.“ Mikilvægt að stíla inn á eigið styrkleikasvið Margrét ólst upp á Seltjarnar- nesinu og bjó þar til tvítugs þegar hún fór utan til Berlínar í arki- tektúrnám og bjó þar í sjö ár. „Ég vinn sem heilsuarkitekt, það er sambland af starfsheitinu arki- tekt og heilsumarkþjálfi. Ég er léleg í að sitja og teikna allan daginn, en samstarfskonur mínar, Fríða og Hrefna, eru góðar í því og fagna því að ég sé um víðan völl eins og þarf. Við bætum hver aðra upp; ég fæ að vera í mínu elementi, þar sem ég er best, og þær í sínu. Það er mikil- vægt að þurfa ekki að þvinga sig í verkefni sem henta manni engan veginn. Við eigum að stíla okkur inn á eigið styrkleikasvið; það er svo gaman og þá blómstrum við,“ segir Margrét. Tekur Feel Iceland kollagen til að hjálpa líkamanum Margrét æfði handbolta með Gróttu og fótbolta með KR, þar til hún sleit krossbönd fyrir tvítugt og lenti í þrálátum meiðslum. „Nú iðka ég golf, göngu og fjalla- skíði, því ég má ekkert hlaupa lengur og er komin með brjósk- eyðingu í hnéð. Þess vegna tek ég Feel Iceland kollagen, til að hjálpa líkamanum í þeirri vinnu,“ segir Margrét sem tekið hefur kollagen í rúmt ár. „Ég ákvað að prófa Feel Iceland kollagenið út af hnénu og exemi sem ég hef glímt við. Eftir tvo mán- uði fann ég mikinn mun á nögl- unum og hárinu, sem varð bæði þykkara og líf legra. Ég fann líka fyrir framförum í ræktinni, mér óx afl og gat tekið meiri þyngdir en áður, sennilega vegna þess hve kollagenið er öflugt prótín. Ég trúi því líka að kollagenið sé gott fyrir brjósk, bein og liði. Innihaldslýs- ingin er svo rökrétt,“ segir Margrét, ánægð með áhrif kollagensins. „Ég tek sjaldan inn bætiefni og vil heldur fá þau úr fæðunni, en mér finnst Feel Iceland kollagenið svo nálægt því að vera matur. Mér finnst líka skipta máli að kolla- genið er íslensk afurð, úr villtum, þurrkuðum þorski, og ekki skemmir fyrir að það eru íslenskar konur sem unnu frumkvöðla- starfið að baki Feel Iceland.“ Mælir heilshugar með Feel Iceland kollageninu Margrét setur kollagen út í sítrónu- vatn að morgni eða græna þeyt- inga, en uppáhaldsdrykkurinn er sá sem Guðbjörg vinkona hennar kenndi henni að útbúa og saman- stendur af kollageni, appelsínu, ólífuolíu, vatni og ísmolum. „Þá er eins og maður sé kominn með frískandi góðan sumardrykk á strandbar á Spáni,“ segir hún hlæjandi og gefur nemendum sínum á Tíu daga-námskeiðinu uppskrift að kollagendrykkjum, enda mælir hún heilshugar með kollageninu frá Feel Iceland. Fram undan er nýtt tíu daga- námskeið sem hefst 1. mars og hægt að skrá sig og komast í sam- band við Margréti Leifsdóttur á Facebook og á margretleifs.is. „Þetta eru tíu daga æfingabúðir sem ég held nokkrum sinnum á ári með Oddrúnu Helgu Símonar- dóttur heilsumarkþjálfa. Tilgangur námskeiðsins er að finna hvaða matur gerir manni gott og hvaða matur hentar manni síður. Grunn- urinn að því að breyta einhverju er að skipuleggja hvernig við ætlum að gera það, hvaða trú við ætlum að hafa á sjálf okkur og hvernig umgjörðin á að vera. Það gerist ein- hver galdur þegar maður fer í svona æfingabúðir saman, það er miklu auðveldara og skemmtilegra en maður heldur. Í samkomubanninu færðist námskeiðið yfir í fjarfunda- búnað og þátttakendur eru mjög ánægðir með að hafa matreiðslu- námskeiðið sem fylgir 10 daga- námskeiðinu heima í sínu eldhúsi. Þetta hefur Covid kennt okkur og nú geta allir verið með, hvar sem þeir eru staddir, á landsbyggðinni líka og í útlöndum.“ Feel Iceland fæst meðal annars í öllum helstu apótekum og heilsu- vöruverslunum, svo sem Lyfju, Heilsuhúsinu, Lyf og heilsu, Apó- tekaranum, Fjarðarkaupum, Hag- kaup, Krónunni, Nettó og í Fríhöfn- inni. Sjá nánar á feeliceland.com Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Margrét æfði fótbolta með KR og hand- bolta með Gróttu á árum áður. Hún stundar nú golf, göngur og fjalla- skíði en er hætt að hlaupa vegna brjóskeyðingar í hné. Hún notar Feel Iceland kollagen til að hjálpa líkam- anum í þeirri vinnu. FRÉTTA- BLAÐIÐ/VALLI Margrét setur kollagen út í appelsínudrykk, sítrónuvatn og þeytinga. Margrét leiðir meðal annars heilsubætandi sjóböð á skemmtilegum nám- skeiðum sem enda með góðu strandpartíi. MYND/HJÖRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.