Fréttablaðið - 13.02.2021, Page 31
Áhugi á heilsueflandi eigin-leikum rauðrófunnar er sífellt að aukast og þá sér-
staklega hjá íþróttafólki, vegna
þess að rauðrófan inniheldur
nitröt sem geta aukið blóðflæði og
á þann hátt leitt til aukins úthalds
og snerpu.
Meiri orka sem endist
Fæstir eiga safavél heima hjá sér og
enn þá færri nenna að standa í því
að pressa sér hreinan rauðrófusafa
á hverjum degi þar sem því fylgir
mikið uppvask og býður upp á að
litarefnið úr safanum liti allt sem
það kemst í tæri við, segir Sólveig
Bergsdóttir landsliðskona sem
deilir með okkur reynslu sinni á
náttúrulegu rauðrófuhylkjunum
frá Natures aid.
,,Rauðrófuhylkin eru ótrúlega
þægileg lausn þar sem ég hef
oftast nær lítinn tíma heima, hvort
sem það er á morgnana eða fyrir
æfingar. Ég hef lengi þekkt heilsu-
eflandi eiginleika rauðrófunnar og
þegar ég komst að því að hægt væri
að taka duft í stað safans varð ég
spennt að geta bætt þessu loksins
inn í mína daglegu bætiefnarútínu.
Það sem ég gerði fyrst var að
lesa mér til um rauðrófuhylkin,
athuga innihaldið og hvernig
þetta er framleitt. Það skiptir
máli að þetta sé alvöru og að
sjálfsögðu mikilvægt að það séu
engin óæskileg aukaefni, sérstak-
lega fyrir íþróttafólk sem stundar
alþjóðlegar keppnir sem krefjast
lyfjaprófa. Ég ákvað að prófa að
taka töflurnar á mismunandi
tímum dags, en mestan mun fann
ég þegar ég tók þær fyrir æfingar.
Ég kýs að borða ekki stóra máltíð
fyrir æfingu heldur létta máltíð
u.þ.b. 2 tímum fyrir. Hálftíma
fyrir æfinguna tek ég tvær töflur
af rauðrófuhylkjunum frá Natures
Aid og áhrifin koma fram þegar
æfingin byrjar. Það sem ég finn
helst fyrir er að líkaminn er f ljótari
að hitna og helst lengur heitur eftir
upphitun. Það er kannski erfitt
að útskýra tilfinninguna en ég get
helst borið þetta saman við rót-
sterkan espressóbolla sem hressti
mig við næstu tvo tímana, eins og
eins konar ‘preworkout’ án auka-
verkana. Ég hef notað Beetroot í
dágóðan tíma núna og reyni að
taka hylkin inn daglega. Mæli
innilega með þeim fyrir alla, og
sérstaklega íþróttafólk.“
Vinsæl ofurfæða
Rauðrófur eru af sömu plöntu-
ætt og spínat, skrauthalaætt og
tilheyra tegundinni Beta vulg-
aris. Rauðrófur eru sneisafullar
af næringar- og plöntuefnum og
innihalda m.a. ríkulegt magn
af járni, A-, B6- og C-vítamíni,
fólínsýru, magnesíum og kalíum.
Þar að auki innihalda þær góð
f lókin kolvetni, trefjar og öf lug
andoxunarefni.
Ekki eru allir jafn hrifnir af
bragðinu af rauðrófunni eða
rauðrófusafanum og því er rauð-
rófuduft í hylkjum góð lausn til
að bæta þessari vinsælu ofurfæðu
inn í daglega rútínu. Auðvelt er að
opna hylkin og bæta duftinu út í
heilsudrykki eða grautinn.
Rauðrófuhylkin frá Natures Aid
eru 100% náttúruleg og án allra
aukefna. Eitt hylki jafngildir 4.620
mg af þurrkaðri rauðrófu. Mælt
er með 2 hylkjum á dag með mat
(9.240 mg af þurrkaðri rauðrófu).
Þar sem talið er að nítröt í rauð-
rófum hafi áhrif á blóðþrýsting
ættu þeir sem hafa lágan blóðþrýst-
ing eða taka blóðþrýstingslyf að
ráðfæra sig við lækni áður en þeir
bæta rauðrófum við mataræði sitt.
Fæst í flestum apótekum, heilsu-
búðum og heilsuhillum stórmark-
aða og verslana.
Aukin orka og lengra úthald
Í aldanna raðir hefur neysla á rauðrófum verið talin geta haft heilsueflandi áhrif og notkun þeirra
má rekja allt að 2000 ár aftur í tímann til Rómverja. Sólveig Bergsdóttir deilir hér sinni reynslu.
Sólveig Bergs-
dóttir, Íslands-
meistari og
landsliðskona
í fimleikum,
hefur verið að
taka rauð-
rófuhylki frá
Natures Aid
daglega í dá-
góðan tíma og
mælir með fyrir
alla, sérstaklega
íþróttafólk.
MYND/AÐSEND
Rauðrófuhylkin frá Natures Aid eru
100% náttúruleg og án allra aukefna.
Glucosamine
& Chondroitin Complex
Þetta bætiefni inniheldur glúkósamín og kondtrótín súlfat en þessi
tvö efni hafa reynst mörgum vel fyrir liðina.
Dagsskammtur inniheldur 1000 mg af glúkósamíni og 200 mg af
kondrótíni ásamt engifer, túrmerik, C-vítamíni og rósaldin (rosehips).
C -vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks.
Í þínu liði fyrir þína liðheilsu
Allt að 3
mánaða
skammtur
í glasi.
Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 1