Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 62
ari sem auglýsti námskeið og bjóst við að nokkrir myndu sækja um, en það voru bara fleiri hundruð manns sem vildu vera með. Hann bara trúði þessu ekki.“ Björgvin og leikhópurinn fara á æfingar einu sinni í viku í Hlíðar­ fjalli en hann segir æðislegt hversu stutt er að fara upp í fjallið og upp­ lifa fjalladýrðina. „Þetta er bara svo góð stemning. Við erum með geggjaðan kenn­ ara, hann heitir Þráinn. Færið er ótrúlega gott og ég er nýfarinn að geta rennt mér smá. Þetta er alveg drullugaman. Þetta er bæði góð æfing fyrir líkamann og svo færðu líka adrenalínið sem fylgir því að renna sér niður brekkurnar. Ég náði í fyrsta sinn að renna mér um daginn og það var þvílíkur sigur. Við vorum nokkur sem skutluð­ umst út í snjóinn og duttum. Það verða samt engin stórslys á göngu­ skíðunum, við dettum í mesta lagi aðeins á rassinn.“ Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Það hefur orðið sprengja í gönguskíðaiðkun, sérstak­lega eftir COVID, skilst mér á þeim sem þekkja til hérna,“ segir Björgvin Franz, sem ásamt hópi af vinnufélögum hjá Leikfélagi Akur­ eyrar réði sér þjálfara og mætir einu sinni í viku upp í Hlíðarfjall á gönguskíðaæfingu eftir æfingar á söngleiknum um Benedikt búálf. „Þegar maður flytur norður verður maður að elska snjóinn. En við erum að reyna að vera ábyrg, við leikararnir hérna. Við viljum ekki snúa okkur og meiða okkur og þá er gönguskíðasportið örugg­ ast. Við erum farin að fara niður brekkur og gera allan fjandann. Þetta er ógeðslega gaman, það eru sem betur fer nokkur nokkuð venjuleg í hópnum sem halda okkur hinum niðri á jörðinni,“ segir Björgvin og hlær. Björgvin segir að þrátt fyrir að hafa ekki stundað gönguskíði áður sé skíðaíþróttin ekki alveg ný fyrir sér. „Ég byrjaði að stunda skíði í Minnesota. Það var ógeðs­ lega fyndið. Ég hef aldrei verið íþróttatýpan og var alltaf valinn síðastur í liðið. Ég er með frekar skrýtnar hreyfingar þegar kemur að íþróttum. Það er tekið eftir því hvað þær eru ósamhæfðar. Ég og bolti eigum til dæmis ekki vel saman,“ segir hann. „En svo bara datt ég inn í skíðin. Ég fór á námskeið í Minnesota og skíðaþjálfarinn sagði við mig að ég panikaði mikið. Ég sagði bara: Já, ég veit. En svo bara allt í einu kom þetta og þá fannst mér viðbjóðs­ lega gaman. Við fjölskyldan vorum á fullu í þessu. Það voru skíði og snjóbretti og allur pakkinn.“ Björgvin segir að hann hafi svo lagt skíðaskóna á hilluna þegar hann fór að leika í Ellý í Borgarleik­ húsinu og sýna sex sinnum í viku. „Þá hugsaði ég: Þú getur ekki farið að hringja í Kristínu Eysteins og segja: Þú trúir aldrei hvað gerðist á skíðum um helgina. Raggi Bjarna er ekki að fara að mæta á næstu sýningar, því miður. Þannig að ég lagði niður skíðin.“ Fjalladýrðin æðisleg Vinafólk Björgvins, sem hann býr hjá á Akureyri, er aftur á móti á fullu á svigskíðum að sögn Björg­ vins og hefur mikið reynt að draga hann með sér á skíði. „Ég fer yfirleitt í Hlíðarfjall, en ég fór til Ólafsfjarðar um daginn. Þá var ég með vönu fólki en ég hélt mig bara með eldri borgurunum í neðri hringnum. Það var alveg nóg fyrir mig. Það er svo skrýtið að það er eins með gönguskíðin og svig­ skíðin. Það er smá panik fyrst og svo er þetta bara ógeðslega gaman. Skíðakennarinn sagði einmitt við mig fyrst þegar við hittum hann, að einu sinni hefðu bara nokkrir skrýtnir karlar og konur stundað gönguskíði en nú væru bara allir byrjaðir á því. Það var einn kenn­ Þetta er ógeðslega gaman Gönguskíðaæði hefur gripið um sig meðal þjóðarinnar og fjöldi iðkenda hefur margfaldast. Björgvin Franz Gíslason leikari er einn þeirra sem er nýfarinn að stunda þetta skemmtilega sport. Hópurinn sem er að æfa Benedikt búálf með LA fer einu sinni í viku saman upp í Hlíðarfjall að æfa sig á gönguskíðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Leikhópurinn hress saman í Hlíðarfjalli á gönguskíðum. MYND/AÐSEND Björgvin Franz æfir gönguskíði með vinnufélögunum. MYND/SAGA SIG/ Þegar maður flytur norður verður maður að elska snjóinn. En við erum að reyna að vera ábyrg, við leikar- arnir hérna. Við viljum ekki snúa okkur og meiða okkur og þá er gönguskíðasportið öruggast. 6 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U RVETRARSPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.