Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 66
Hvað þýddu 150
kossar upp úr
aldamótum 1900? Við
vitum það ekki. Við
getum aldrei verið alveg
viss um hvað heimild-
irnar vitna um.
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Huldukonur.is er afrakstur söfnunar og rannsókna þeirra Ástu, Hafdísar og
Írisar á íslenskum heimildum um
konur og kynverund á Íslandi frá
18. öld og til ársins 1960, þegar
nútíma sjálfsmyndarhugtök, á
borð við lesbía og tvíkynhneigð,
hófu vegferð sína inn í tungutak
þjóðarinnar. Allar vinna þær nú hjá
Háskóla Íslands. Ásta er nýdoktor
í íslenskum bókmenntum, Íris er
lektor í deild faggreinakennslu við
Menntavísindasvið og Hafdís er
doktorsnemi í sagnfræði.
„Helsti hvatinn fyrir því að við
settum saman þetta námsefni er
sá að það er ekki til neitt námsefni
um hinsegin sögu sem miðað er að
nemendum í framhaldsskóla, en í
aðalnámskrá framhaldsskólanna
er kveðið á um að nemendur læri
um margbreytileika mannlífsins,
meðal annars hvað varðar kyn og
kynverund. Þau sem kenna kynja-
fræði í menntaskóla hafa bent á að
þetta vanti sárlega,“ segir Ásta.
Efnið á vefnum er opið fyrir
alla sem hafa áhuga á að kynna
sér hinsegin kynverund kvenna
frá 1700–1960. Námsefninu er
skipt í 10 kafla með mismunandi
þemu sem kanna frekar hinsegin
kynverund kvenna fyrir 1960.
Námsefnið er fjölbreytt og er hægt
að flétta inn í ýmsar námsgreinar
eins og mannkynssögu, kynja-
fræði, íslensku og fleira. „Verk-
efnið byrjaði á því að við vorum
að grúska og stunda rannsóknir á
hinsegin sögu og í heimildum fyrir
20. öld virtist ekkert vera til um
hinsegin konur. Einhverjir gætu
haldið því fram að hinsegin konur
hefðu ekki verið til, en við vitum
að það er einfaldlega ekki rétt. Það
virtist hins vegar vera erfiðara að
finna heimildir um hinsegin konur
heldur en karla. Við þurftum að
leita eftir þeim sérstaklega og
fengum styrk frá Jafnréttissjóði
Íslands. Þá skoðuðum við bréf,
dagbækur, skjöl, greinar í dag-
blöðum og ýmislegt fleira.“
Ásta segist ekki vera viss um
hvort til sé álíka námsefni sem
hafi verið gefið út annars staðar
í heiminum. „Mig langar að vona
að það sé til eitthvað, af því þetta
er eitt það mikilvægasta sem hægt
er að gera til þess að varpa ljósi á
hinsegin sögu. Það er lítið til um
hinsegin sögu á Íslandi almennt
og víða erlendis líka. Meira hefur
verið gert á enskum málsvæðum
en mest af þessari þekkingu er
einskorðað við háskólana þar sem
hún hefur ekki nægileg áhrif. Þessi
þekking þarf að skila sér í fræðslu
til almennings.“
Námsefnið á huldukonur.is er
ekki skylduefni í framhaldsskóla
frekar en annað námsefni. „Við
munum á næstu mánuðum kynna
efnið á meðal framhaldsskóla-
kennara. Þá vonumst við til þess
að kennarar sýni frumkvæði að
því að taka upp námsefnið í sína
kennslu, enda er það ábyrgðar-
hlutverk af hálfu þeirra, sem taka
það alvarlega að uppfylla ákvæði
aðalnámskrár, að skoða svona efni
og gera því skil í sinni kennslu.“
... þín einlæg elskandi vina-
Kaflarnir 10 taka fyrir ákveðin
þemu sem tengjast kyni og kyn-
verund, eins og tilfinningar milli
kvenna, þögn og eyður, konur í
buxum og fleira. Hver kafli byrjar
á því að kynna þemað. Næst eru
tekin dæmi um heimildir sem
falla undir þemað og í lokin eru
umræðuverkefni fyrir nemendur.
Í einum kaflanum er fjallað um til-
finningar kvenna og tekið er dæmi
um bréfaskriftir Ingibjargar Guð-
brandsdóttur, sem var kölluð Imba
Brands, og Ingibjargar H. Bjarna-
son, sem var fyrsta konan til að sitja
á Alþingi á Íslandi. Í sumum bréfum
sem Imba skrifar til Ingibjargar
birtast, að því er virðist, skýr dæmi
um rómantíska ást þeirra á milli,
ef bréfin eru skoðuð út frá nútíma-
hugmyndum um vináttu og ást.
Imba lýkur til dæmis einu bréfi sínu
á: „Vertu margblessuð elskan mín
góð og guð gefi þjer mörg gleðileg
nýár já og helst ástrík, því algjör
gleði getur það ekki verið nema
maður elski einhvern og offri [fórni]
sjer fyrir ekki satt? ...þín einlæg
elskandi vina Imba Brands.“
Einnig talar Imba um að senda
tvær tennur til Ingibjargar, sem
virkar stórfurðulegt fyrir nútíma-
lesanda. „Þetta er vissulega
heillandi og skrítið. En á þessum
tíma var eðlilegt að gefa ástvini lokk
af hári. Það er spurning hvort hér sé
gengið lengra? Eða hvort um sé að
ræða verðmætar gervitennur sem
hægt var að endurnýta?“ En eins og
er með merkingu endurgjaldsins
sem Imba biður um á móti, það er
100 eða 150 kossar, þá eru þetta
spurningar sem er ómögulegt að
svara. „Hvað þýddu 150 kossar upp
úr aldamótum 1900? Við vitum það
ekki. Við getum aldrei verið alveg
viss um hvað heimildirnar vitna
um. Það er ekkert sem segir okkur
hvernig sambandinu var háttað og
hvort að þær hafi litið á sjálfar sig
sem eitthvað meira en góðar vin-
konur.“
Þagnir og eyður
Sagan á bak við bréfin er annars
áhugaverð og varpar ákveðnu ljósi
á innihald þeirra. Ingibjörg H.
Bjarnason var þjóðfræg kona en
einkalíf hennar hefur verið nokkuð
hulið. „Einkaskjalasafn hennar er
þó tiltölulega nýkomið inn á Lands-
bókasafn, rétt fyrir nokkrum árum
þegar við vorum að byrja að safna
heimildum fyrir verkefnið. Safnið
innihélt meðal annars þessi bréf á
milli Ingibjarganna tveggja og eru
mörg þeirra á svipuðum nótum.
Þau lýsa löngun kvennanna til
þess að vera nálægt hvor annarri
og áætlunum um að búa saman.
Hér finnst okkur vera skýrt dæmi
um eyðu eða þögn sem getur átt
sér stað í sögunni. Það er, til eru
ýmsar heimildir en þeim er af ein-
hverjum ástæðum haldið til hliðar
og geymdar, þar sem fræðimenn
og almenningur komast ekki í þær.
Á meðan þessum heimildum er
haldið til hliðar getum við ekki
kynnst þessari hlið sögunnar.
Annað dæmi er um tvær konur,
Þær Ingibjörgu Ólafsson og
Despinu Karadja prinsessu, sem
voru sambýliskonur í fjörutíu
ár. Þegar Ingibjörg lést árið 1962
lét Despina Borgarskjalasafn
Reykjavíkur fá skjalasafn hennar.
Samkvæmt öllum skilgreiningum
í dag voru þær lífsförunautar. Ingi-
björg ferðaðist mikið en á þessum
40 árum er þó ekki til ein einasta
heimild um bréfaskriftir þeirra
á milli sem stenst engan veginn.
Líklegasta svarið er að Despina hafi
fjarlægt bréfin sjálf þar sem þau
gætu hafa innihaldið persónulega
tjáningu þeirra á milli sem þær
vildu ekki að heimurinn fengi að
sjá.“
Kennsla í gagnrýninni hugsun
„Það sem ég held að verði skemmti-
legt við þetta námsefni er að ungt
fólk í framhaldsskóla er ekki jafn
fast í sömu hugsanarömmum
og til dæmis fræðifólk í háskóla-
samfélaginu. Við vitum ekki fyrir
fram hvernig þau muni upplifa
svona tjáningu og þess vegna geta
umræður um svona atriði verið svo
áhugaverðar.
Ég vona svo sannarlega að nem-
endur útskrifist úr framhaldsskóla
með þær hugmyndir að hinsegin
konur hafi verið til fyrr á öldum
þó svo við lesum ekki um þær í
sögubókunum. Þetta snýst fyrst og
fremst um að hjálpa nemendum að
átta sig á því hvernig fólk hugsaði til
dæmis fyrir 200 árum um kyntján-
ingu, kynjahlutverk, klæðaburð
og vináttu og að við getum ekki
varpað okkar hugmyndum á for-
tíðina og skilið hana út frá okkar
sjónarmiði. Við finnum vissulega
dæmi, eins og á milli Ingibjargar og
Imbu, þar sem við könnumst við
ýmislegt, en við vitum ekki hvað
á að kalla það. Ég yrði hamingju-
sömust með að vita að nemendur
hugsuðu í framhaldi á gagnrýninn
hátt um námsefnið sem þeim
stendur til boða.“
Hulu svipt af hinsegin sögu kvenna
Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Íris Ellenberger opnuðu huldukonur.is
í janúar 2020. Í vikunni bættu þær við fróðlegu námsefni handa nemendum í framhaldsskóla.
Hafdís Erla, Ásta Kristín og Íris standa að baki huldukonur.is og varpa ljósi á hvernig hinsegin kynverund kvenna
var tjáð fyrir tíma nútíma sjálfsmyndarhugtaka á borð við lesbía eða tvíkynhneigð. MYND/DAVÍÐ ALEXANDER CORNO,
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is
MYNDLIST Á ÍSLANDI
Sérblaðið Myndlist á Íslandi kemur út laugardaginn 25. febrúar.
Þarna viljum við gefa stórum og litlum söfnum og galleríum tækifæri til að
koma á framfæri því sem verður í gangi á nýja árinu! Í þessu blaði bjóðum við
upp á hefðbundnar auglýsingar og kynningar sem unnar eru í samráði við
blaðamenn og ljósmyndara Fréttablaðins.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R