Fréttablaðið - 13.02.2021, Qupperneq 74
Landinu er hollara að vera
klætt og í því felst líka stór
ávinningur fyrir loftslagið.
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir
okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Kristinn Fjeldsted
frá Raknadal við Patreksfjörð,
lést í faðmi fjölskyldunnar í Perth í
Ástralíu, föstudaginn 15. janúar, eftir stutt
veikindi. Hann verður jarðsettur á Patreksfirði og mun
útför hans verða auglýst síðar.
Frances Taylor
Ragnar Fjeldsted Hrafhildur Hjálmarsdóttir
Kristín Fjeldsted
Styrgerður Fjeldsted Jóhannes Héðinsson
Helga Fjeldsted Kjartan Björnsson
Egill Steinar Fjeldsted Caren E. Capangpangan
Júlía Veronica Fjeldsted
Aaron Kristinn Fjeldsted
Sigursteinn Steinþórsson Þóra Guðrún Grímsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Vilhjálmur K. Hjartarson
bifreiðastjóri,
Fossvegi 8, Selfossi,
áður Bakkaseli 24, Reykjavík,
sem lést þann 28. janúar síðastliðinn
verður jarðsunginn frá Fella-og Hólakirkju miðvikudaginn
17. febrúar kl. 13. Jarðsett verður í Laugardælakirkjugarði í
Flóa að athöfn lokinni.
Ekki verður streymt frá athöfninni en allir ættingjar og
vinir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Þ. Harpa Jónsdóttir
Hjörtur V. W. Vilhjálmsson Sangwan Wium
Ragnhildur Vilhjálmsdóttir Ingibjörn Jóhannsson
Gunnar Örn Vilhjálmsson
Jón Vilhjálmsson Súsanna Gunnarsdóttir
Kristinn Þ. Vilhjálmsson Anna Lilja Rafnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Svala Jónsdóttir
Lautasmára 1,
Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi
6. febrúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði miðvikudaginn 17. febrúar kl. 13.
https://youtu.be/iVGMPejj7tM
Bragi Friðþjófsson
Sigurborg Bragadóttir Karl Helgason
Dagbjört Jóna Bragadóttir Skarphéðinn Skarphéðinsson
Göran Skog
Björk Bragadóttir Þorvaldur Kröyer
Roger Seager Jenny Seager
og ömmubörn.
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Svavar Gestsson
Hjartans þakkir til allra sem minntust
Svavars við andlát hans og útför.
Sú hlýja og væntumþykja sem
við fundum fyrir frá vinum og
vandamönnum, nær og fjær, var
okkur ómetanlegur stuðningur í sorginni.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæslu
Landspítalans í Fossvogi og við Hringbraut,
sem sýndi einstaka fagmennsku, alúð og
virðingu við Svavar. Það var dýrmætt fyrir
okkur, hans nánustu.
Guðrún Ágústsdóttir
Svandís Svavarsdóttir Torfi Hjartarson
Benedikt Svavarsson María Ingibjörg Jónsdóttir
Gestur Svavarsson Halldóra Bergþórsdóttir
Ragnheiður Kristjánsdóttir Svavar Hrafn Svavarsson
Árni Kristjánsson Anna María Hauksdóttir
Gunnhildur Kristjánsdótttir Sigurður Ólafsson
og fjölskyldur
Dúi Landmark hefur verið ráðinn hjá Landgræðsl-unni til eins árs sem verkefnastjóri miðlunar. Það er nýtt starf. „Land-græðslan er að þróast
sem þekkingar- og þjónustustofnun,
því er miðlun upplýsinga vaxandi hluti
af starfseminni,“ útskýrir hann og bætir
við: „Miðað við heimsmarkmið Sam-
einuðu þjóðanna, sem við Íslendingar
tökum þátt í, og mikilvægi umhverfis-
verndar í almennri umræðu, hafa verk-
efni Landgræðslunnar breyst. Að hluta
til snúast þau um að hjálpa náttúrunni
að hjálpa sér sjálf, það fer eftir ástandi
svæða. Okkar stóra markmið er að vekja
almenning til vitundar um að þetta land
okkar er stórskaddað. Gróðurþekja þess
er aðeins 5% af því sem talið er að hún
hafi verið við landnám.“
Eru til gróðurkort frá þeim tíma?
„Nei,“ svarar Dúi. „En við erum að vinna
að heildarúttekt á gróðurfari landsins.
Ég get bent á svæði innan borgarinnar
sem mikið er sótt í til gönguferða, Úlf-
arsfellið. Það ætti að vera gróðri vaxið
upp á topp eins og var við landnám.
Sama má segja um marga staði – verk-
efnið er risastórt.“
Er ekki í lagi að hafa auðnir sums
staðar ef þær eru ekki að fara neitt?
„Þegar ég vann sem leiðsögumaður
sýndi ég ferðamönnum stoltur auðnir
landsins og víðerni. En Ólafur Arnalds
gaf út fyrir nokkrum mánuðum rit sem
nefnist Ástand lands og hrun íslenskra
vistkerfa, hann notar þar hugtakið
samdaunasýki. Við venjumst landinu
og finnst það eiga að vera eins og það
er, en þegar gögn um rannsóknir eru
skoðuð kemst maður að raun um annað.
Landinu er hollara að vera klætt og í því
felst líka stór ávinningur fyrir loftslagið.
Við verðum að græða það eins mikið og
við getum og vinna að heimsmarkmið-
unum.“
Enn þrjóskast ég, bendi á að hægt sé
að stíga svo óvarlega til jarðar í upp-
græðslu að óafturkræf spjöll verði á
íslenskri náttúru, samanber lúpínuna.
„Landgræðslan sáir ekki lengur lúpínu,“
fullyrðir Dúi og viðurkennir að hún hafi
reynst of ágeng. „Við munum vinna að
því að koma landinu í hægfara bata og til
upprunalegs horfs, komandi kynslóðum
til hagsbóta á heimsvísu. Okkur langar
að vekja almenning til vitundar um
hvernig ástandið er og tala meðal annars
við fólkið sem mestu máli skiptir, unga
fólkið. Við viljum vinna fyrir það og með
því.“ gun@frettabladid.is
Verðum að græða landið
Dúi Jóhannsson Landmark hefur starfað við myndatöku og framleiðslu efnis fyrir fjöl-
miðla og sem leiðsögumaður. Nú er hann verkefnastjóri miðlunar hjá Landgræðslunni.
Dúi vill vekja almenning til vitundar um hvernig ástandið er og hefur Úlfarsfellið sem viðmið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT