Fréttablaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 92
Lífið í
vikunni
07.02.21-
13.02.21
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
FORNVINAFUNDUR
Þingflokkur Framsóknarflokksins
setti sig í stellingar vinanna í
Friends í auglýsingu fyrir opna
Zoom-fundi með kjósendum. En
er þá Sigurður Ingi Ross? Passar
Lilja Dögg í sæti Rachel? Willum
Þór þingflokksformaður upplýsti
Fréttablaðið um að tilviljun mætti
ráða því hver úr flokknum væri
hvaða vinur.
MARTRÖÐ Í
FRAMTÍÐAR-
DRAUMI
Stefán Mekk-
inósson fékk
martröð sem
varð kveikjan
að handriti
sálfræðitryllis og
lokaverkefnis hans í kvikmynda-
námi í Kanada og setti af stað
hópsöfnun til þess að safna upp í
framleiðslukostnað myndarinnar
sem hann bindur miklar vonir við
að muni opna honum og sam-
starfsfólki hans greiðari leið inn í
kvikmyndabransann.
GÓÐAR DRUSLUR
Íslenska kvikmyndin Hvernig á að
vera klassa drusla, sem Ólöf Birna
Torfadóttir skrifar og leikstýrir, er
komin í bíó og fékk ***1/2 stjörnu
hjá gagnrýnanda Fréttablaðsins
sem meðal annars sagði hana
gera út á ærslagang og grín þar
sem stelpurnar taka völdin, gefa
staðalímyndum langt nef, og sýna
svo ekki verður um villst að það er
alveg hægt að vera klassadrusla.
EFTIRSÓTT HLAÐVARP
Sóley Margrét
Valdimarsdóttir
er formaður
hlaðvarps-
nefndar
Verzlunar-
skóla Íslands,
sem heldur úti
hlaðvarpinu Verzló
Podcast þar sem rætt er við nem-
endur og fyrrum nemendur við
skólann. Gísli Marteinn gaf sig
sjálfur fram sem viðmælanda eftir
að óskað var eftir honum sem
gesti á Instagram.
Málverkin mín eru eins og mann-e s k j a n s e m er alls konar, f lókin, falleg, ljót, marglaga,
full af andstæðum, mistökum, til-
finningum og mótsögnum,“ segir
Sunneva Ása Weisshappel um
einkasýninguna Undirlög, þar sem
hún leikur sér með myndmálið í
gróteskri og bleikri dýrð.
„Ég er alltaf mikið að fást við tím-
ann í málverkinu og gjörningana
bak við málverkin. Ég hef alltaf
verið heilluð af striganum og hinu
tvívíða hugarástandi málverksins
og á þessari sýningu er ég að reyna
að sýna fram á tíma í málverki,“
segir Sunneva og bætir við að í til-
raunum sínum kafi hún ofan í feg-
urð, grótesku og alls konar tabú.
Árás á striga
„Ég ríf strigann í sundur. Það er mjög
grótesk aðgerð að rífa sundur mál-
verk og líma saman aftur og bæta
kannski við lögum sem eru með-
höndluð á ólíkan máta og mynda
saman verk sem er marglaga, hrátt
og tímatengt.“
Striginn verður þannig einhvers
konar gjörningur og með nokkurri
einföldun má segja að fyrri verk og
gjörningar Sunnevu séu í raun hrá-
efni verkanna. „Það eru gjörningar
þarna, Polaroid-myndir og efni sem
ég er búin að vera að nota í sýning-
um og verkum síðustu tíu ár.
Þannig að ég er að taka efni sem
eru kannski úr þekktum gjörn-
ingum, setja inn í strigann og vinna
með augnablikið og læt í rauninni
tímann verða að kyrru málverki,“
segir Sunneva og bendir á að í und-
irlögunum leynist meðal annars
undirföt.
Nærföt og nælon
„Öll verkin eru eiginlega bleik og
það eru nærföt þarna og nælon-
sokkabuxur og alls konar vísanir
í kvennakúltúr og sýningin heitir
Undirlög vegna þess að bak við mál-
verkið eru öll þessi lög. Það er svo
löng saga inni í hverju málverki.
Mörg lög af tíma. Ég meina, þetta
eru bara nælonsokkabuxur sem ég
hef verið í áður í tuttugu gjörning-
um og svo eru þær núna fastar inni
í málverki.“
Sunneva segir að þessu megi líkja
við hamskipti. Að losa sig við eitt-
hvað gamalt en skilja samt eitthvað
eftir.
Sunneva hefur fundið listsköpun-
inni farveg í málverkinu, gjörning-
um, innsetningum, myndböndum
og hönnun leikmynda og búninga
en segist í raun alltaf vera að fást við
það sama.
Máluð leikmynd
„Ég er í grunninn að vinna með and-
stæður og að festa tíma á striga. Það
er svo skemmtilegt við myndlistina
að maður er í rauninni að tala með
myndum og að gera leikmynd fyrir
kvikmynd er bara eins og að mála á
striga,“ segir Sunneva.
Sömu lögmál gildi einnig um
búningahönnun. „Ég horfi bara á
mannslíkamann eins og skúlptúr og
er þá að segja sögu manneskjunnar
með myndum. Þetta er ótrúlega
nátengt þegar þú hugsar út í það og
þar sem ég hef unnið með frásagnir
og líkama hef ég átt auðvelt með að
vinna í leikhúsi og kvikmyndum,“
heldur Sunneva áfram.
„Ég hugsa ekki um mig sem leik-
mynda- eða búningahönnuð. Ég er
bara alltaf að búa til myndmál og
hugsa um með hvaða myndmáli ég
get sagt hverja sögu best og leyfi mér
bara að nota þetta til þess að styrkja
mig sem listakonu,“ segir Sunneva,
sem hefur nýlokið störfum sem
leikmyndahönnuður sjónvarps-
þáttaraðanna Katla og Ófærð 3
þar sem hún hefur unnið náið með
kærastanum sínum, leikstjóranum
og framleiðandanum, Baltasar Kor-
máki.
„Við vinnum mjög vel saman og
erum bæði frekar prófessjonal, held
ég,“ segir Sunneva um samstarf ð og
sambandið, sem stóðst álagspróf
kvikmyndagerðarinnar.
toti@frettabladid.is
Undir lögum Sunnevu
Gamlar nælonsokkabuxur Sunnevu Ásu nýtast sem merkingar-
bært undirlag í tilraun hennar til að gera augnablikið eilíft á striga.
Sunneva Ása sýnir undirlög sín í Þulu við Hjartatorg frá miðvikudegi til sunnudags út febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÉG MEINA, ÞETTA ERU
BARA NÆLONSOKKA-
BUXUR SEM ÉG HEF VERIÐ Í
ÁÐUR Í TUTTUGU GJÖRNINGUM
OG SVO ERU ÞÆR NÚNA FASTAR
INNI Í MÁLVERKI.
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Ótrúleg útsala í fjórum
búðum og á dorma.is
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
PURE COMFORT
fiberkoddi
Léttur, ódýr og
þægilegur
fiberkoddi.
Stærð kodda:
50x70cm. 700g.
Má þvo á 60°c..
Fullt verð: 3.900 kr.
Aðeins 3.120 kr.
PURE COMFORT
fibersæng
Létt og þægileg fibersæng.
Stærð: 140x200 cm. Sængin er 300g. Má þvo á 60°c
Fullt verð: 9.900 kr.
Aðeins 7.920 kr.
20%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
20%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
DORMA
útsalan
LOKAHELGIN
EKKI MISSA AF ÞE
SSU
Allar verslanir Dorma eru opnar á laugardögum og einnig á sunnudögum á Smáratorgi
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð