Stefnir - 01.05.1962, Síða 4

Stefnir - 01.05.1962, Síða 4
Alfreð Ásffeir Geir Guðlaugur Jónas í RITIÐ SKRIFA: Alfreð Gíslason alþingismaður er fæddur í Reykjavik 7. júli 1905, sonur Jóhönnu Sigríðar Þorsteins- dóttur og Gísla Þorbjarnarsonar fasteignasala frá Bjargarsteini í Borgarfirði. Hann lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1927 og embættisprófi í lögum frá Háskóla Islands 1932. — Starf- aði Alfreð síðan að málflutnings- störfum til ársins 1937 og rak m.a. eigin málfiutningsskrifstofu i Rvík 1934 til 1937, en bað ár var hann skipaður lögreglustjóri í Keflavik og gengdi hann því starfi og em- bætti bæjarfógeta þar til hann tók við starfi bæjarstjöra í Keflavík á s.l. ári. Alfreð hefur setið i bæjar- stjórn Keflavíkur frá 1954 og var forseti bæjarstjórnar írá þeim tíma þar til hann á sl. ári tók við starfi bæjarstjóra. Haustið 1959 var Alfreð Gíslason kosinn á þing sem landskjörinn þingmaður, en í hönd farandi bæjarstjórnarkosningum skipar hann fyrsta sæti á fram- boðslista flokksins í Keflavík. Ásgeir Pétursson sýslumaöur er fæddur i Reykjavík 21. marz 1922, sonur Þórunnar Ingibjargar Guð- mundsdóttur og Péturs Magnússon- ar bankastjóra. Hann lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Rvík 1943 og embættisprófi í lögum frá Háskóla Islands i janúar 1950. Það ár var hann settur fulltrúi í menntamálaráðuneytinu og var full- trúi og deildarstjóri þar unz hann var skipaður sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýsiu árið 1961. Ásgeir var formaður Heimdallar F.U.S. 1950 og 1951 og átti sæti í stjórn S.U.S. 1 nokkur ár m.a. sem form. þess 1955 og 1956. Ásgeir Pétursson var frambjóðandl Sjálfstæðisflokks- ins í Mýrarsýslu í júni 1959 og fjórði maður framboðslista flokks- ins í alþingiskosningunum það haust. Hann var skipaður formaður stjörn- ar Sementsverksmiðju ríkisins árið 1960. Ásgeir Pétursson hefur á und- aníörnum árum starfað af Islands hálfu i ýmsum menningarmálastofn- unum á vegum Evrópuráðsins. Geir Hallgrímsson borgarstjóri er fæddur í Reykjavík 16. des. 1925, sonur Ásiaugar Zoega og Hallgrims Benediktssonar stórkaupm. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum í Reykjavik 1944 og embættis- prófi i lögum frá Háskóla Islands 1948 og stundaði síðan fram- hajdsnám í lögfræði og hagfræði í Bandríkjunum í eitt ár. Geir varð héraðsdómslögmaður 1951 og hæsta- réttarlögmaður 1957 og rak hann málflutningsskrifstofu í Reykjavík 1951—'59. Forstj. H. Benediktsson h.f. 1955—'59 og varð það ár borgar- stjóri í Rvik og hefur verið það síð- an. Hann var kosinn i borgarstjórn Rvikur árið 1954 og hefur átt sæti í borgarráði síðan. Átti sæti í stjórn Heimdallar F.U.S. í 8 ár, þar af sem form. 1952 og 1953, í stjórn S.U.S. í nokkur ár og form. þess 1957—'59. Geir sat á Alþingi sem varamaður íyrir Rvík haustið 1959. Hann skipar nú fyrsta sæti á íram- boðslista flokksins við borgarstjórn- arkosningarnar I Reykjavík. Guðlaugur Gíslason alþingismaður er fæddur á Stafnesi í Gullbringusýslu 1. ágúst 1908, sonur Jakobínu Haf- iiðadóttur og Gísla Geirmundsonar bónda þar. Guðlaugur stundaði nám i verzlunarskóla i Kaupmannahöín 1930 til 1931 og varð síðan bæjar- gjaldkeri í Vestmannpeyjum 1934 til 1936, hafnargjaldkeri og fram- kvæmdastjóri útgerðarfyrirtækjanna Snæfells h.f. og Fells h.f. frá 1942. Hann var kosinn i bæjarstjórn Vestmannaeyja, 1938 og 1942 og síð- an 1950. Guðlaugur hefur verið bæjarstjóri og formaður bæjar- ráðs Vestmannaeyjakaupstaðar frá 1954. Þá var hann formaður félags Sjálfstæðismanna í Vest- mannaeyjum og ritstjóri Fykis í mörg ár. Guðlaugur Gíslason var kosinn þingmaður Eyjanna i júni 1959 og þingmaður Suðurlandskjör- dæmis i október sama ár. Hann skipar nú fyrsta sæti á framboðs- lista flokksins við bæjarstjórnarkosn- ingarnar i Vestmannaeyjum. Jónas G. Eafnar alþingismaður er fæddur á Akureyri 26. ágúst 1920, sonur Ingibjargar Bjarnadóttur og Jónasar Rafnar yfirlæknis á Krist- nesi. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1940 og embættisprófi í lögum frá Há- skóla Islands 1946. — Eftir það starfaði Jónas sem erindreki og framkvæmdastj. flokksins á Norður og Austurlandi um nokkurra ára skeið, varð héraðsdómslögmaður 1947 og hefur siðan rekið málflutn- ingsskrifstofu á Akureyri. Hann var kosinn þingmaður Akureyrarka.up- staðar árið 1949 og 1953 og aftur i júni 1959 og þingmaður Norður- landskjördæmis eystra haustið 1959. Jónas var kosinn í bæjarstjórn Ak- ureyrar 1958 og hefur átt sæti þar síðan. Hann átti um nokkurra ára skeið sæti i stjórn S.U.S. og var lengi form. félags Sjálfstæðismanna á Akureyri. Frá sept. 1961 til jan. 1962 gengdi Jónas Rafnar starfi bankastjóra Útvegsbanka íslands I Reykjavik.

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.